Miðvikudagur 5. október

Paparazzi

tn_DSC08778.JPG

í dag varð ég vitni að hasar út um gluggann minn. í húsi hérna gegnt okkar var ölvaður og örvinglaður maður sem snappaði. hann stóð úti á svölum, upp á handriðinu á 4. hæð og gargaði og gólaði öll ljótu orðin sem hann kunni og hótaði því að henda sér fram af.


ekki leið á löngu þar til lögregla og slökkvulið mættu á staðinn með körfubíla og alle græ til að reyna að róa manninn og ná honum heilum niður. stóð það yfir í dágóða stund - eða um hálftíma gæti ég trúað. að lokum hefur þeim tekist að dýrka upp hurðina á íbúðinni og læðast inn. og á meðan slökkvuliðsmenn í körfunni beindu athyglin mannsins í aðra átt þá komu þeir aftan að honum og tókst að rífa hann ofan af handriðinu og niður á svalirnar. meira veit ég svosem ekki, en þetta var í senn æsispennandi og óhugnalegt á að horfa.


með nýja dótið að vopni tók ég því mína fyrstu fréttaljósmynd, hún er nú svosem ekki sú besta, en þar má greina slökkvuliðsmenn í körfu og svo manninn sem átti ekki góðan dag. ég náði henni nokkrum sekúndum áður en þeir gallaklæddu réðust til eldsnöggrar atlögu.


- ég finn fyrir vissum paparazzifíling !!! :)

- mundi | 18:38
Umræður

sara:

djöfull er þetta geðveikt. góð mynd hjá þér Mundi. þú ert paparazzi framtíðarinnar.

(05.10.05 20:48)

Ziggy Flotti:

Mundi hvað gerðist í raun og veru hjá Díönu og Dódí??

(06.10.05 08:52)

Torfi:

.... mér skilst að þeir á DV séu að leita að mönnum

(06.10.05 09:11)

Jón Gunnar:

Góður Mundur....

Þess er ekki lengi að bíða að maður fari að sjá myndir af fræga fólkinu, löðrandi í majónesi í súrrealískum kynlífsleikjum inn á einhverju hótelherbergi í Grenoble teknar af Munda sem var "bara að mála" þarna i nærheden!

Þetta er ekki spurning....carrier move Mundi

Guðmundur Valdimar Rafnsson, Paparazzi.....it's got a nice ring to it!


(08.10.05 13:51)

Mikki:

Merry Christmas and Happy New year! Baseball Cap http://www.chooseyour.info/baseball-cap/

(26.12.05 07:49)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni