Mánudagur 24. október

Dagurinn og vegurinn

það hefur farist fyrir undanfarið að setja færslur hérna inn - þær koma í það minnsta ekki eins reglulega núna og oft áður.


hverju er um að kenna, leti, hugmyndaleysi eða bara tíðindaleysi það er ekki gott að segja, en einhverskonar sambland af þessu öllu er kannski ekki svo slæm skýring. það er kannski árstíminn, mér sýnist allavega að sambærilegar síður sem ég heimsæki reglulega eigi við sama vanda að stríða, sumar hverjar í það minnsta.


þessi helgi leið tíðindalítið. hér var rigning og súld hangandi yfir og nenna almennt lítil. föstudagurinn var hins vegar fullbókaður. hann Jón paríslenski kom nefnilega í fylgd foreldra sinna þeirra Sigurvins og Svanhildar. þar með var hæsta hlutfalli Svanhilda náð í grenoble síðan mælingar hófust. þau borðuðu með okkur hádegismat hérna heimvið og síðan fylktum við liði með Jón í broddi fylkingar inn í bæ og alla leið á kjarnorkustofnunina þar sem hann varði mastersverkefni sitt á glæsilegan hátt og getur nú kallað sig verkfræðing. hann var ekki öfundsverður þar sem hann stóð fyrir framan 6 stykki atómhausa og svaraði spuringum um framleiðslu vetnis. en gerði það vel. okkar innilegustu hamingjuóskir Jón.


að því loknu fórum við síðan öll í miðbæinn en þar voru dagar víns og tónlistar frá fimmtudegi og fram á sunnudag. gegn vægu gjaldi var hægt að fá að smakka allt það besta frá fjöldamörgum vínbændum, sem flestir komu frá Bordeaux eða Bourgogne. Einhverjir voru þarna frá Alsace með hvítvínin sín. ég var pínu spældur að Rónarbændur héldu sig heima, þeim hefur kannski ekki þótt nauðsynlegt að kynna sínar afurðir hérna í þessum nærliggjandi hreppi. Þarna á torginu bættust síðan Eiríkur og Helga í hópinn. Kvöldinu eyddum við síðan við pízzuát með þeim en Jón og meðreiðarsveinar og meyjar héldu til baka til parísar um kvöldmatarleitið.


í þessari viku fáum við svo gesti. Snæbjörn er í sinni árvissu ferð í flugherminn í parís og tók frú og son með og þau ætla að koma hingað að tölvuleik loknum á fimmtudag og vera hérna með okkur fram yfir helgi. einhverju sniðugu verður því fundið upp á í vikulokin.

- mundi | 07:09
Umræður

Ziggy Flotti:

Atóm haus, þetta er úrvals blótsyrði fyrir vitlausan einstakling þar sem atómið er ekki mjög stórt!!

(24.10.05 13:26)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni