Fimmtudagur 8. september

nýkomin - rétt ófarin

við fórum og hittum 3 af fjórum íslendingum sem við vitum af hérna í grenoble í gær, fórum út að borða saman svona til að kynnast. það var bara mjög gaman og gott að vita af íslendingum í grenndinni.


þannig að þetta fer vel af stað. svanhildur er búin að ganga frá þeim málum sem hægt er að ganga frá varðandi skólann og ég, já ég er búinn að gera alveg merkilega lítið!!


þess vegna erum við bara farin, já nú á að setja bensín á volfgang (það er víst betra) og blússa til ítalíu. ekki vitum við alveg hvert verður farið en hugsanlegir kandídatar eru, Torino, Milano, Feneyjar, Flórens, Pisa og Róm. Jafnvel Korsíka. - en við vitum svosem minnst um þetta mál. áætluð heimkoma 18.sept.

góðar stundir

- mundi | 07:58
Umræður

Ziggy Flotti:

Skemmtið ykkur á ítalíu og ekki smeik við að prufa nokkrar góðar chianti, klikka varla í heimalandinu!

(08.09.05 08:27)

jons:

Snilld! og aftur Snilld!

(08.09.05 08:31)

Jón Gunnar:

Bon Voyage vinir mínir! Ekki......ég endurtek (sagði andasteggurinn) EKKI KEYRA INN Í RÓM!! Það er dauði og djöfull! Þetta eru verstu ribbaldar í umferðinni ever....!

kveðja frá einum sem er að fara í gæsaveiði í fyrramálið.

Jón Gunnar Benjamínsson.

Pálmi Reyr Þorsteinsson frá Gröf biður að heilsa!

(08.09.05 23:18)

Torfi:

ferðina

(09.09.05 14:21)

Hildur:

Góða ferð góða ferð, bið að heilsa Flórens Svansý með þökk fyrir síðast :)

(14.09.05 09:05)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni