Fimmtudagur 22. september

Ítalíuferðin partur 4 - Pisa - Monaco - Côte Azur - Alpar

tn_DSC08692.JPG

já síðasti hluti ferðasögunnar er hér. við ókum langan legg þegar við fórum frá Róm, því að við tjölduðum í raun ekki svo langt frá frönsku landamærunum. Eða um 50 km vestan við Genova. Við keyrðum ströndina uppeftir, gáfum okkur samt tíma til að stoppa svona hér og hvar og þar á meðal í Pisa. Þeir eiga skakkan turn þar, við gátum nú svosem ekkert fyrir hann gert annað en að berja hann augum, jú og mynda.


eftir að hafa gist eina nótt í tjaldi á ítölsku rivíerunni færðum við okkur yfir á þá frönsku. fyrsta stopp sem við gerðum var þó ekki í frakklandi heldur Mónakó. þar voru teknar nokkrar handbremsubeygjur og svo lagði ég bílnum milli nokkurra ferrarídruslna og við röltum í bæinn. skrítið samfélag. þarna haugast ríka fólkið saman til þess að þurfa ekki að borga skatta. svei-attan.


svo hentum við upp tjaldinu fyrir síðustu nóttina um 20 km vestan við Nice. þar keyrðum við í gegn en stoppuðum að vísu ekki. eftir að hafa snætt kvöldverð, brauð ost og gerjaðann vínberjasafa á ströndinni fórum við í háttinn. um nóttina gerði grenjandi rigningu, en það var nú bara fyrir gróðurinn. ég náði síðasta moskítóbiti ferðarinnar þarna, svanhildur slapp.


á sunnudeginum tókum við síðan það sem heitir "Route Napoleon" frá miðjarðarhafinu og til grenoble. tókum reyndar smá útúrdúr og fórum yfir skarð eitt ógurlegt til að komast til bæjarins Barcelonette. þar átum við svo góða steik áður en við brýndum Volfgang til heimferðar.


almögnuð ferð - síðustu myndirnar eru komnar í albúmið.

- mundi | 15:22
Umræður

Fanney:

Þetta hefur verið góða ferðalagið...
það verður náttla að átta sig á því að volvóinn er nú allt annað en þessar ferrarí druslur.. fer bráðum að slefa í fornið.. eða þannig.
Þetta hefur verið æðisleg ferð hefði viljað verð kakkalakki í ferðatösku þarna hahahah :)
Skemmtileg lesning þarna, þið eruð snillingar..
Kv. Fanney

(23.09.05 08:21)

Torfi:

Rokk þetta er alltsaman !

(26.09.05 10:49)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni