Þriðjudagur 20. september

Ítalíuferðin - partur 2 - Feneyjar - Flórens

tn_DSC08537.JPG

tökum upp þráðinn.

morguninn eftir keyrðum við til Feneyja. þangað komum við á sunnudagsmorgni og gistum eina nótt. daginn notuðum við vel og löbbuðum sólana undan skónum. þessi borg er ofsalega falleg, gríðarmikið af byggingum og öðru sem er fallegt fyrir augað. á hinn bóginn er þessi staður sennilega sá túrista og túrisma væddasti staður sem ég hef komið á. endalausar minjagripabúðir og einhvernveginn verið að reyna að selja manni allt. mér fannst það nú draga aðeins úr sjarmanum, en ekki það að að maður hafi átt von á öðru. þarna var alveg urmull af fólki í sömu erindagerðum og við. ég er ekki hissa á því að íbúarnir þarna hafi lengi kvartað undan ágangi ferðamanna, en á hinn bóginn eru þeir jú auðlind bæjarins.


eftir nætursvefn í tjaldi í feneyjum var haldið af stað á mánudaxmorgni til Flórens.


þegar þangað var komið var slegið upp tjaldi enn á ný í blíðviðri á tjaldstæði kenndu við Michelangelo, skammt frá miðbænum. þarna dvöldum við í tvær nætur. um Flórens hef ég það helst að segja að það er borg sem heillaði mig gersamlega. Þarna er alveg hreint ótrúlega mikið að sjá og við komumst ekkert nálægt því að sjá allt það sem við hefðum getað og viljað á þessum 2 dögum. en sáum þó margt og höfðum það gott. það varð okkur þó helst til vandræða að skordýrabitum hafði heldur betur fjölgað, og við náðum því samanlagt að hafa á sjötta tug. svanhildur fékk í ofanálag sýkingu í bit á fæti og við máttum því leita til læknis til að fá pensilín við því.

- allt annað í Flórens: fimm rokkstig...


á miðvikudagsmorgni var svo ekið af stað til höfuðborgarinnar Rómar - en meira um það á morgun. myndir frá þessum hluta eru á myndasíðu. og sem fyrr birtast þær þar í öfugri tímaröð, ekki veit ég af hverju og mér tekst bara ekki að finna út úr því!!! ;(

- mundi | 12:22
Umræður

Torfi:

sjaldan er góð vísa of oft kveðin...


... þannig að ég las bara báðar færslurnar þó eins væru :-)

(20.09.05 13:01)

Dagný:

Frábærar myndir, hefur greinilega verið mikið gaman og mikið frábært ferðalag! (engin öfund.. neinei..)
ps. í sleðanum efst á myndasíðunni (<< admin options) er eitthvað sem heitir sort items og þar geturðu breytt röðinni alveg twist og bast!

(20.09.05 13:05)

mundi:

heyðru ég fer í það Dagný - reyni að klóra mig fram úr þessu. takk takk.

og torfi - munurinn var sá að það var ekki komin inn myndin sko - þetta ætti nú að vera komið í lag núna ... 8-)

(20.09.05 13:08)

mundi:

jeeeeiiiii - gatða. nú er allt komið í rétta röð... :)

(20.09.05 13:12)

sara:

æðislegt að lesa þetta. öfunda ykkur reyndar ekki með skordýrabitin, ég er með 5 stykki og það er að pirra mig. kossar og knúsar héðan.

(20.09.05 17:32)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni