Miðvikudagur 21. september

Ítalíuferðin - partur 3 - Róm - Vatíkanið

tn_DSC08580.JPG


þriðji og næstsíðasti hluti ferðasögu frá ítalíu gerist í róm. í raun er svosem ekki margt um það að segja. ég held að myndirnar 50 sem verða komnar inn í albúmið eftir nokkrar mínútur muni mun frekar segja söguna.


en í stuttu máli þá gerðum við víðreist í Róm í 2 daga. Róm er ofsalega falleg borg og heillandi, þurfi maður ekki að vera á bíl!! við leigðum okkur lítið hús á tjaldstæði í úthverfi, en þaðan gekk svo rúta á klukkutíma fresti niður í vatíkan. þannig að það var að virka fínt. en mikið vorkenndi ég rútubílstjóranum að göslast um á trukk í innanbæjarumferðinni þarna. en hann tók þessu með stóískri ró og djöflaðist áfram á flautunni og var með skrúfaða niður rúðuna til að geta gefið öðrum vegfarendum viðeigandi bendingar...


það má segja það sama um róm og flórens, við eigum enn mikið eftir að sjá, en náðum svona því helsta. vatíkanið er án efa og klárlega það mesta sem maður hefur séð í skreytingum og handverki. hafi maður haldið að maður hafi séð mikið af slíku áður þá var það bara rangt. og eftir að hafa séð Péturskirkjuna í Róm og Sistínsku kapelluna jah,... þá þarf maður ekki að sjá fleiri. Þvílíkt og annað eins. við erum að tala um 100 metra lofthæð og eitthvað þvíumlíkt. engin orð fá þessu lýst, skoðiði bara myndirnar eða betra, fariði bara á staðinn...

á morgun ætla ég svo að reyna að klára þessa sögu og setja inn síðustu myndir en þær verða frá Pisa og heimferð til Grenoble þaðan, en þá var stoppað í Monakó meðal annars.


fallegt veður í dag -- ég held við séum bara farin til fjalla... :)

- mundi | 10:10
Umræður

Torfi:

... farið þangað - sjálfur kem ég af fjöllum.

Það var reyndar snjór í þeim fjöllum sem ég koma af :-|

(21.09.05 16:41)

Ziggy Flotti:

Já og ekki gleyma kuldanum á þessum fjöllum Torfi!! Hásumar núna og snjór og kuldi :-(

(21.09.05 17:56)

Torfi:

nú er við hæfi að syngja lagið góðkunna:

Arí dú arí dú ra dei
Arí dú arí dá a
sem kóngur ríkti hann með sóma og sann
eitt sumar á landinu bláa

Þökkum Jónasi fyrir það.

(22.09.05 10:00)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni