Mánudagur 19. september

Ítalíuferðin - partur 1 - Vigevano - Garda

tn_DSC08482.JPG

Þá eru komnar inn fyrstu myndir frá Ítalíu. Ferðasagan verður eflaust ansi löng og því mun ég einungis stikla á því allra stærsta hérna.


Eins og áður hefur komið fram þá lögðum við af stað á fimmtudegi eftir hádegi. við ókum sem leið lá í gegn um alpana og hin menguðu Frejus-göng yfir til Ítalíu. Fram hjá Torino og keyrðum fast að Milano fyrsta legg. Þar fundum við tjaldstæði eftir talsverða leit. Það átti eftir að koma á daginn að þetta var ekki gott tjaldsvæði, moskítóbitin urðu mörg. við vorum rétt búin að slá upp tjaldi og kveikja upp í grilli þegar það brast á með úrhelli. við ákváðum að harka samt af okkur og éta matinn en urðum ansi blaut við þá athöfn. fall er fararheill. þetta var ekki alveg að gera sig þarna hjá okkur!!! ;-)


daginn eftir fórum við svo að heimsækja gamla skólasystur mína sem búið hefur í Vigevano, um 40 km frá Milano, í allnokkur ár. Harpa gaf okkur að borða og sýndi okkur bæinn sinn áður en við kvöddum hana, húsbóndann og soninn Erik seinnipart dags og fengum flösku af ítölsku víni frá héraðinu, að skilnaði, ásamt leiðbeiningum af ýmsum toga.


áfram var ekið, í mikili umferð fram hjá Milano og að Garda. Þar tókum við enga sénsa á rigningu og leigðum okkur hjólhýsi. Það var gamalt og slitið en þrifalegt og ódýrt. við lögðumst til svefns eftir að hafa fengið okkur pizzu á veitingahúsi tjalsvæðisins. það var alveg ekta "ólífuauglýsingarfílingur" á því, því pizzan var fram borin af gamalli þybbinni ítalskri kerlingu í svuntu. eitthvað svo ekta við það !


eftir hanagal, fórum við í bæinn. þarna skammt frá tjaldsvæðinu var smábær Dezensano og við þangað. þegar þangað var komið þá sáum við ferju vera að koma að landi og ákváðum að kanna hvert hún var að fara. þetta var þá svona vatnastrætó og gekk þvers og kruss um vatnið. við keyptum okkur ferð yfir að bænum Garda, þar sem við spókuðum okkur svo fram eftir degi. vorum sannir túristar í þeim bæ, í stuttbuxum með bændafar og myndavél framan á belgnum. leigðum okkur hraðbát og krúsuðum um gardavatnið í góða veðrinu. ekkert að því.


um kvöldið tókum við bátinn til baka og fórum að sofa, næsta dag var nefnilega ekið til Feneyja.


...en meira um það og myndir frá því á morgun. myndir frá Vigevano og Garda eru komnar í albúmið

- mundi | 19:05
Umræður

Spilda:

úhúú þetta er bara spennandi framhaldssaga- flottar myndir :)

(20.09.05 10:33)

Torfi:

Algott að fá þetta í skömmtum...

... datt einhver í vatnið ?

... var dökkhærði maðurinn vasaþjófur ?

... varð einhver var ?

(20.09.05 10:41)

Ziggy Flotti:

Þetta hljómar alls ekki illa ef að frá eru skilin moskítóbitin!!

(20.09.05 11:16)

mundi:

já og það var nú ekki búið með þau - andsk... var skaparinn að huxa þegar hann ákvað að semja þessi kvikindi?

(20.09.05 11:45)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni