september 29, 2005
Manjúall

ég held að ég hafi í fyrsta skiptið lesið manjúal í fyrradag. þar sem ekki er nú sérdeilis mikið við að vera á kvöldin, sé maður á fjöllum, þá er ráðlegt að hafa með sér bók eða eitthvað að grúska svona fyrir svefninn. ég, hugfanginn af nýja dótinu mínu, ákvað því að virkilega lesa manjúalinn með dótið mér við hlið. uppgötvaði alveg fullt við það, og dótið gerir mun meira en ég vissi þegar ég keypti. sennilega er því nú þannig farið með flest, - maður les bara aldrei manjúalinn! sennilega hefði ég komist að því að brauðristin mín er líka þvottavél og þurrkari, ef ég hefði bara ekki hent manjúalnum. nú sit ég uppi með einfalda brauðrist.
en ég varð fyrir því skemmtilega atviki í fjöllunum í dag að á húsið settist sérdeilis spakur ungur hrafn. mér tókst að nálgast hann merkilega mikið og skaut hann þennan með nýja dótinu. margoft. en í þetta skipti (sem og önnur kannski!) þá komst "bráðin" lifandi frá skothríðinni.
já og svo eru bæði daia og torfi búin að "klukka" mig.... úffff mar..
september 28, 2005
Búið að klukka mig
Hér hefur ekkert verið bloggað um hvað hefur á daga okkar drifið eftir að við komum heim frá Ítalíu. Það er skemmst frá því að segja að síðasta vika var djammvika mikil: djamm á miðvikudagskvöldinu með krökkunum á hæðinni, Íslendingadjamm á fimmtudagskvöldið og svo með Kelit og Daniel á laugardagskvöldið. Þessi vika er búin að vera aðeins "eðlilegri": nóg að læra hjá mér og Mundi að vinna hjá Gonna. Skólinn fer bara vel af stað hjá mér og mér finnst bara alveg æði að vera byrjuð aftur. Er núna að byrja að kenna Ameríkönum frönsku í gegnum netið. Afar spennandi.
En hún Dæja er búin að klukka okkur Munda fyrir löngu svo það er víst best ég segi ykkur eitthvað (ó)merkilegt um sjálfa mig:
1) Ég skil ekki fólk sem kaupir bara merkjavöru, mundi aldrei borga 20 þús fyrir gallabuxur bara af því það stendur Diesel á þeim.
2) Mér finnst samt merkjavara oft mjög flott, hún er bara overpriced. Þetta útskýrir sennilega að ég fór ekki inn í einu einustu búð á Ítalíu en kom samt heim með 3 Valentino töskur, eina Prada, eitt Gucchi úr og Chanel sólgleraugu. Að sjálfsögðu er þetta allt fake en alveg jafn flott og gott fyrir því.
3) Ef ég er pirruð eða í fýlu dugir oftast að gefa mér eitthvað gott að borða til að fá mig til að brosa.
4) Dvöl okkar Munda í Grenoble hefur meðal annars fengið mig til að átta mig á hvað það er frábært að eiga þvottavél. En hún hefur líka kennt mér að það er stórlega ofmetið að búa í stórri íbúð/húsi.
5) Ég elska að leggja mig á daginn en verð alltaf pínu fúl út í sjálfa mig þegar ég vakna og sé að ég hef sofið allt of lengi. Reyni því að leggja mig ekki en leyfi mér það endrum og eins.
Ég ætla að klukka Heiðu, Baldur og Jón og Guðrúnu
-Svanhildur
| 18:21
| Comments (3)
september 26, 2005
Myndavél

mér varð það á að kaupa mér nýja myndavél í vikunni sem leið. ég var búinn að vera að velta þessu fyrir mér í svolítinn tíma. vélin sem ég valdi að kaupa heitir Sony DSC-H1.
nú þarf maður bara að fara að lesa manjúalinn og læra á þá fídusa sem maður var að greiða fyrir.
annars það helst héðan að ég er rétt ófarinn til fjalla - Gonni kallar. - þangað til næst -
september 24, 2005
Hráskinka

ein af snilldunum við það að búa í suðurlöndum er þegar maður fer í búðina og það er óvænt tilboð á spænskri hráskinku. maður kaupir sér þá einn fót á standi fyrir sem nemur 2250 íslenskum spírum.
mmmmmjjöööög gott.
september 22, 2005
Ítalíuferðin partur 4 - Pisa - Monaco - Côte Azur - Alpar

já síðasti hluti ferðasögunnar er hér. við ókum langan legg þegar við fórum frá Róm, því að við tjölduðum í raun ekki svo langt frá frönsku landamærunum. Eða um 50 km vestan við Genova. Við keyrðum ströndina uppeftir, gáfum okkur samt tíma til að stoppa svona hér og hvar og þar á meðal í Pisa. Þeir eiga skakkan turn þar, við gátum nú svosem ekkert fyrir hann gert annað en að berja hann augum, jú og mynda.
eftir að hafa gist eina nótt í tjaldi á ítölsku rivíerunni færðum við okkur yfir á þá frönsku. fyrsta stopp sem við gerðum var þó ekki í frakklandi heldur Mónakó. þar voru teknar nokkrar handbremsubeygjur og svo lagði ég bílnum milli nokkurra ferrarídruslna og við röltum í bæinn. skrítið samfélag. þarna haugast ríka fólkið saman til þess að þurfa ekki að borga skatta. svei-attan.
svo hentum við upp tjaldinu fyrir síðustu nóttina um 20 km vestan við Nice. þar keyrðum við í gegn en stoppuðum að vísu ekki. eftir að hafa snætt kvöldverð, brauð ost og gerjaðann vínberjasafa á ströndinni fórum við í háttinn. um nóttina gerði grenjandi rigningu, en það var nú bara fyrir gróðurinn. ég náði síðasta moskítóbiti ferðarinnar þarna, svanhildur slapp.
á sunnudeginum tókum við síðan það sem heitir "Route Napoleon" frá miðjarðarhafinu og til grenoble. tókum reyndar smá útúrdúr og fórum yfir skarð eitt ógurlegt til að komast til bæjarins Barcelonette. þar átum við svo góða steik áður en við brýndum Volfgang til heimferðar.
almögnuð ferð - síðustu myndirnar eru komnar í albúmið.
september 21, 2005
Ítalíuferðin - partur 3 - Róm - Vatíkanið

þriðji og næstsíðasti hluti ferðasögu frá ítalíu gerist í róm. í raun er svosem ekki margt um það að segja. ég held að myndirnar 50 sem verða komnar inn í albúmið eftir nokkrar mínútur muni mun frekar segja söguna.
en í stuttu máli þá gerðum við víðreist í Róm í 2 daga. Róm er ofsalega falleg borg og heillandi, þurfi maður ekki að vera á bíl!! við leigðum okkur lítið hús á tjaldstæði í úthverfi, en þaðan gekk svo rúta á klukkutíma fresti niður í vatíkan. þannig að það var að virka fínt. en mikið vorkenndi ég rútubílstjóranum að göslast um á trukk í innanbæjarumferðinni þarna. en hann tók þessu með stóískri ró og djöflaðist áfram á flautunni og var með skrúfaða niður rúðuna til að geta gefið öðrum vegfarendum viðeigandi bendingar...
það má segja það sama um róm og flórens, við eigum enn mikið eftir að sjá, en náðum svona því helsta. vatíkanið er án efa og klárlega það mesta sem maður hefur séð í skreytingum og handverki. hafi maður haldið að maður hafi séð mikið af slíku áður þá var það bara rangt. og eftir að hafa séð Péturskirkjuna í Róm og Sistínsku kapelluna jah,... þá þarf maður ekki að sjá fleiri. Þvílíkt og annað eins. við erum að tala um 100 metra lofthæð og eitthvað þvíumlíkt. engin orð fá þessu lýst, skoðiði bara myndirnar eða betra, fariði bara á staðinn...
á morgun ætla ég svo að reyna að klára þessa sögu og setja inn síðustu myndir en þær verða frá Pisa og heimferð til Grenoble þaðan, en þá var stoppað í Monakó meðal annars.
fallegt veður í dag -- ég held við séum bara farin til fjalla... :)
september 20, 2005
Ítalíuferðin - partur 2 - Feneyjar - Flórens

tökum upp þráðinn.
morguninn eftir keyrðum við til Feneyja. þangað komum við á sunnudagsmorgni og gistum eina nótt. daginn notuðum við vel og löbbuðum sólana undan skónum. þessi borg er ofsalega falleg, gríðarmikið af byggingum og öðru sem er fallegt fyrir augað. á hinn bóginn er þessi staður sennilega sá túrista og túrisma væddasti staður sem ég hef komið á. endalausar minjagripabúðir og einhvernveginn verið að reyna að selja manni allt. mér fannst það nú draga aðeins úr sjarmanum, en ekki það að að maður hafi átt von á öðru. þarna var alveg urmull af fólki í sömu erindagerðum og við. ég er ekki hissa á því að íbúarnir þarna hafi lengi kvartað undan ágangi ferðamanna, en á hinn bóginn eru þeir jú auðlind bæjarins.
eftir nætursvefn í tjaldi í feneyjum var haldið af stað á mánudaxmorgni til Flórens.
þegar þangað var komið var slegið upp tjaldi enn á ný í blíðviðri á tjaldstæði kenndu við Michelangelo, skammt frá miðbænum. þarna dvöldum við í tvær nætur. um Flórens hef ég það helst að segja að það er borg sem heillaði mig gersamlega. Þarna er alveg hreint ótrúlega mikið að sjá og við komumst ekkert nálægt því að sjá allt það sem við hefðum getað og viljað á þessum 2 dögum. en sáum þó margt og höfðum það gott. það varð okkur þó helst til vandræða að skordýrabitum hafði heldur betur fjölgað, og við náðum því samanlagt að hafa á sjötta tug. svanhildur fékk í ofanálag sýkingu í bit á fæti og við máttum því leita til læknis til að fá pensilín við því.
- allt annað í Flórens: fimm rokkstig...
á miðvikudagsmorgni var svo ekið af stað til höfuðborgarinnar Rómar - en meira um það á morgun. myndir frá þessum hluta eru á myndasíðu. og sem fyrr birtast þær þar í öfugri tímaröð, ekki veit ég af hverju og mér tekst bara ekki að finna út úr því!!! ;(
september 19, 2005
Ítalíuferðin - partur 1 - Vigevano - Garda

Þá eru komnar inn fyrstu myndir frá Ítalíu. Ferðasagan verður eflaust ansi löng og því mun ég einungis stikla á því allra stærsta hérna.
Eins og áður hefur komið fram þá lögðum við af stað á fimmtudegi eftir hádegi. við ókum sem leið lá í gegn um alpana og hin menguðu Frejus-göng yfir til Ítalíu. Fram hjá Torino og keyrðum fast að Milano fyrsta legg. Þar fundum við tjaldstæði eftir talsverða leit. Það átti eftir að koma á daginn að þetta var ekki gott tjaldsvæði, moskítóbitin urðu mörg. við vorum rétt búin að slá upp tjaldi og kveikja upp í grilli þegar það brast á með úrhelli. við ákváðum að harka samt af okkur og éta matinn en urðum ansi blaut við þá athöfn. fall er fararheill. þetta var ekki alveg að gera sig þarna hjá okkur!!! ;-)
daginn eftir fórum við svo að heimsækja gamla skólasystur mína sem búið hefur í Vigevano, um 40 km frá Milano, í allnokkur ár. Harpa gaf okkur að borða og sýndi okkur bæinn sinn áður en við kvöddum hana, húsbóndann og soninn Erik seinnipart dags og fengum flösku af ítölsku víni frá héraðinu, að skilnaði, ásamt leiðbeiningum af ýmsum toga.
áfram var ekið, í mikili umferð fram hjá Milano og að Garda. Þar tókum við enga sénsa á rigningu og leigðum okkur hjólhýsi. Það var gamalt og slitið en þrifalegt og ódýrt. við lögðumst til svefns eftir að hafa fengið okkur pizzu á veitingahúsi tjalsvæðisins. það var alveg ekta "ólífuauglýsingarfílingur" á því, því pizzan var fram borin af gamalli þybbinni ítalskri kerlingu í svuntu. eitthvað svo ekta við það !
eftir hanagal, fórum við í bæinn. þarna skammt frá tjaldsvæðinu var smábær Dezensano og við þangað. þegar þangað var komið þá sáum við ferju vera að koma að landi og ákváðum að kanna hvert hún var að fara. þetta var þá svona vatnastrætó og gekk þvers og kruss um vatnið. við keyptum okkur ferð yfir að bænum Garda, þar sem við spókuðum okkur svo fram eftir degi. vorum sannir túristar í þeim bæ, í stuttbuxum með bændafar og myndavél framan á belgnum. leigðum okkur hraðbát og krúsuðum um gardavatnið í góða veðrinu. ekkert að því.
um kvöldið tókum við bátinn til baka og fórum að sofa, næsta dag var nefnilega ekið til Feneyja.
...en meira um það og myndir frá því á morgun. myndir frá Vigevano og Garda eru komnar í albúmið
Nagdýr
...enn verður einhver smá bið á ferðasögu og myndum.
það kom nefnilega í ljós þegar við vorum að pakka í bílinn fyrir ferðalagið að kassarnir með fötunum okkar sem við höfðum fengið að geyma hérna í bílskúrnum höfðu orðið nagdýrum að bráð. gömlu skíðabuxurnar mínar voru étnar upp að hnjám og svo og fína teppið mitt frá kaupþing, sem ég kallaði lífeyrissjóðinn minn, - það var jafn götótt og lífeyrisgreiðslurnar... ;) eitt stykki framlengingarsnúra var í sundur og svo videre.
þannig að ekki var annað hægt en að fara í dag og þvo allt sem í þessum kössum var, þvo föt ferðalagsins og kaupa mat í ískápinn og koma þessu svo fyrir. það stendur enn yfir, hér er líka útilegugír, út um allt, orðinn þurr eftir rigningu síðustu nóttina.
hér er á 15 fermetrunum er því GERSAMLEGA allt á hvolfi - segi og skrifa.
september 18, 2005
Komin til baka. Myndir og ferðasaga innan skamms.... :)
september 8, 2005
nýkomin - rétt ófarin
við fórum og hittum 3 af fjórum íslendingum sem við vitum af hérna í grenoble í gær, fórum út að borða saman svona til að kynnast. það var bara mjög gaman og gott að vita af íslendingum í grenndinni.
þannig að þetta fer vel af stað. svanhildur er búin að ganga frá þeim málum sem hægt er að ganga frá varðandi skólann og ég, já ég er búinn að gera alveg merkilega lítið!!
þess vegna erum við bara farin, já nú á að setja bensín á volfgang (það er víst betra) og blússa til ítalíu. ekki vitum við alveg hvert verður farið en hugsanlegir kandídatar eru, Torino, Milano, Feneyjar, Flórens, Pisa og Róm. Jafnvel Korsíka. - en við vitum svosem minnst um þetta mál. áætluð heimkoma 18.sept.
góðar stundir
september 7, 2005
Þögnin rofin

þá ætla ég að fara að belgja mig út á veraldarvefnum aftur.
Myndin hér að ofan sýnir veðrið á Seyðisfirði fyrir réttri og sléttri viku síðan þegar við kvöddum klakann. Síðan tók við bátsferð, tjaldferð, bæjarferð, verslunarferð og svo langferð, á þar til gerðum bíl. Við erum semsagt búin að fá fyrir-ferðina.
Volfgang skilaði okkur hingað um klukkan hálftíu í gærkvöldi en þá voru réttir og sléttir 16 tímar liðnir frá brottför í Billund. Þar höfðum við verið í 2 nætur og jafn marga daga að ná úr okkur sjóriðunni og venja okkur við sólina. Ökuferðin hingað niðureftir gekk vel, varð reyndar æsispennandi á kafla þegar volfgang vildi sopann sinn en þar til gerð þjónusta var bara heldur langt í burtu. garmurinn var farinn að koka og kúgast, hósta og freta undir það síðasta og rétt marði sig upp á heiðarbrúnina hérna milli Genf og Annecy. Frígírinn varð okkur að gagni þegar toppnum var náð og því betur var bensínstöð við fjallsræturnar, 9 km seinna.
Fyrir eigendur sambærilegra ökutækja bendi ég á að 721 kílómeter er hámarksvegalengd sem má ná á einum tank !! ;/
annars gott að frétta - við erum í óða önn að koma okkur fyrir og látum bara meira af okkur vita fljótlega.