Föstudagur 26. ágúst

Haustið komið

Sæl veriði. Kannski kominn tími á smá skrif hérna. Síðustu tvær vikur eru nú búnar að vera frekar rólegar í vinnunni svo maður herfur svo sem alveg haft tíma til að stela nokkrum mínútum til að blogga en andinn hefur bara ekki komið yfir mig. Hann er nú eiginlega ekki kominn enn og mér finnst sem þessi færsla eigi eftir að verða svakalega þurrprumpuleg og leiðinleg. En mig langaði samt til að segja ykkur aðeins frá plönunum okkar. Málið er nefnilega að sumarið er að verða búið og allt að taka breytingum.


Í dag er síðasti dagurinn í vinnu hjá Munda og í fyrramálið leggur hann af stað norður á vit stang- og skotveiði með félögunum. Ég ætla að vinna örlítið lengur og flýg svo til Egilstaða á miðvikudagskvöldið þar sem ég mun hitta Munda. Þar ætlum við að gista eina nótt áður en keyrt verður til Seyðisfjarðar og silgt til Danmerkur með Norrænu. Þar munum við ná tæpum 3 dögum með tengdó en þurfum svo að bruna til Grenoble því ég þarf að mæta í skólann til að skrá mig og fara á fundi 7. og 9. sept. Vonandi næ ég að klára allt þetta vesen þann 9. því þá er planið að leggja af stað í sumarfrí og er stefnan tekin á Ítalíureisu. Ég hlakka alveg svakalega mikið til enda erum við bæði farin að þrá smá frí saman, sumarið alveg búið að hverfa frá okkur í vinnunni. Skólinn byrjar svo 19. sept og ég er bara svaka spennt að byrja aftur.

- Svanhildur | 14:32
Umræður

Heida i Genf:

eg kem i heimsokn i haust!!!! tad er a hreinu!!!!! hlakka ogurlega til ad kikja til ykkar:)

(27.08.05 12:19)

svanhildur:

JEEIIIJJJJ!!! Hlakka til að fá þig í heimsókn. Það verður ógurlegt stuð!

(28.08.05 09:59)

Birta:

Eruð þið að fara aftur út??? Ég er ekki alveg með á nótunum, hélt að þú værir búin með þennan skóla þegar þú skilaðir lokaritgerðinni þinni??? Greinilegt að ég þarf meiri útskýringar á þessu :þ
Já, sumarið hefur flogið áfram og ég barasta ekkert búin að hitta þig Svanhildur mín - alveg ferlegt!!! En hafðu það sem allra best í Grenoble í vetur og góða skemmtun á Ítalíu, það verður örugglega alveg meiriháttar!!!
Kossar og knús, Birta

(28.08.05 23:50)

svanhildur:

Já þetta er svolítið flókið. Þetta var ekki beint lokaritgerð heldur bara stórt verkefni. Málið er að Frakkarnir voru að breyta kerfinu sínu. Áður tók maður eins árs nám eftir BA sem hét Maîtrise og gat svo bætt einu ári við það, sem hét DESS eða DEA. Nú er búið að smella þessum gráðum saman í eina gráðu sem heitir Master. Vandamálið er að það er ekkert búið að breyta kennslufyrirkomulaginu. Áður kláraði maður Maîtrise með lokaritgerð svo að enn þarf að gera lokaritgerð við lok annarrar annar í Master, auk þess er ekkert öruggt að maður fái að klára masterinn þar sem enn eru gerðar sömu kröfur um inngöngu og voru gerðar fyrir Maîtrise og DEA/DESS, þ.e. allir með BA-FLE (nenni ekki að útskýra) komast inn í Maîtrise FLE en svo komast baar hæstu einkunnir áfram í DEA eða DESS. Það er því ekki nema von að þú hafir ekki alveg skilið þetta Birta mín, og eflaust skilurðu þetta ekki enn því ég nenni ekki að eyð meiri tíma í að útskýra þetta.


En já, sumarið líður alltaf allt of hratt og ég er ekki búin að hitta nærri því alla sem ég ætlaði að hitta.
En það fer nú að styttast í að maður flytji heim og þá fer nú að verða auðveldara að hittast.

(29.08.05 09:32)

jons:

Glæzilegt, þið vitið að þið eruð alltaf velkomin að stoppa við í Paríz á leiðinni til Grenoble :)

(29.08.05 12:58)

svanhildur:

Já, ég væri sko alveg til í það en því miður verðum við að taka Billund-Grenoble á einum degi svo það verður ekkert stopp í París í þetta skiptið. En það er aldrei að vita nema við kíkjum í heimsókn seinna í haust.
Þú veist þú ert líka alltaf velkominn til Grenoble.

(29.08.05 16:09)

jons:

Já, í lok sept / byrjun okt þá verður vörn hjá mér í Grenoble, ég kíki pottþétt amk á ykkur þá!

(31.08.05 09:38)

mundi:

óþarfi að fara í vörn sko.... mundu að sókn er besta vörnin.

(04.09.05 16:16)

jons:

Þokkalega, það verður sko engin vörn hjá mér. Það verða sko engar spurningar í lokin til mín, ég spyr bara prófessorana og leyfi engum að komast að. jeeeeeeeeeee

Hvenær kemur svo ný færsla?

(05.09.05 08:13)

mundi:

heyrðu - það fer bara alveg að bresta á - erum í mörkinni en verðum í grenoble annaðkvöld - þriðjudag ef að líkum lætur. veit ekki alveg hvenær verður keypt tenging.

(05.09.05 09:54)

Torfi:

halló halló halló - á ekki að hleypa inn, það var sagt að það væri sjóv...

(05.09.05 11:53)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni