ágúst 26, 2005

Haustið komið

Sæl veriði. Kannski kominn tími á smá skrif hérna. Síðustu tvær vikur eru nú búnar að vera frekar rólegar í vinnunni svo maður herfur svo sem alveg haft tíma til að stela nokkrum mínútum til að blogga en andinn hefur bara ekki komið yfir mig. Hann er nú eiginlega ekki kominn enn og mér finnst sem þessi færsla eigi eftir að verða svakalega þurrprumpuleg og leiðinleg. En mig langaði samt til að segja ykkur aðeins frá plönunum okkar. Málið er nefnilega að sumarið er að verða búið og allt að taka breytingum.


Í dag er síðasti dagurinn í vinnu hjá Munda og í fyrramálið leggur hann af stað norður á vit stang- og skotveiði með félögunum. Ég ætla að vinna örlítið lengur og flýg svo til Egilstaða á miðvikudagskvöldið þar sem ég mun hitta Munda. Þar ætlum við að gista eina nótt áður en keyrt verður til Seyðisfjarðar og silgt til Danmerkur með Norrænu. Þar munum við ná tæpum 3 dögum með tengdó en þurfum svo að bruna til Grenoble því ég þarf að mæta í skólann til að skrá mig og fara á fundi 7. og 9. sept. Vonandi næ ég að klára allt þetta vesen þann 9. því þá er planið að leggja af stað í sumarfrí og er stefnan tekin á Ítalíureisu. Ég hlakka alveg svakalega mikið til enda erum við bæði farin að þrá smá frí saman, sumarið alveg búið að hverfa frá okkur í vinnunni. Skólinn byrjar svo 19. sept og ég er bara svaka spennt að byrja aftur.

-Svanhildur | 14:32 | Comments (11)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni