Sunnudagur 17. júlí

Síðasta blogg sumarsins - fullt af góðum fréttum

Hæ hæ, það er ekkert að ganga að ætla eitthvað að blogga á sumrin. Það er bara allt of mikið að gera og enginn tími til að sitja við skrif í tölvunni. Þetta verður því sennilega síðasta blogg sumarsins og munu skrif ekki hefjast hér á ný fyrr en í september. En það er víst best að ég segi ykkur nokkrar lokafréttir áður en síðan fer í sumarfrí.


Við Mundi vinnum bæði eins og brjálæðingar og erum bæði komin með nett nóg af því. Tókum okkur þó bæði frí síðsustu helgi (nóta bene eina helgin sem við höfum átt frí frá því við komum heim) og vorum búin að plana að labba Leggjabrjót. En svo brugðudt veðurguðirnir okkur svo að við enduðum á írskum dögum á Akranesi í góðum félagsskap. Fórum út úr bænum eftir vinnu á föstudag og skelltum niður tjöldum á tjaldstæðinu á Akranesi í roki og rigningu. En það stytti upp inn á milli svo að við náðum að grilla og drekka mikið rauðvín. Fórum svo á fótboltavöllinn og hlustuðum á KK og Magga Eiríks spila og sungum og dönsuðum með. Svo var farið aftur á tjaldstæðið, meira drukkið, farið í leiki og sungið fram á nótt. Það er ekki laust við að maður hafi verið smá þunnur á laugardeginum en við náðum mestu af þynnkunni úr okkur í sundlauginni. Svo var tekið við að hita upp fyrir kvöldið og grilla og svo haldið á lopapeysuballið. Það var líka svona svakaleg snilld: fyrst Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds, svo Paparnir á fullri ferð til klukkan 3 og þá tók Sálin við. Klukkan hálf fimm var Sálin enn að spila og við búin að dansa og syngja eins og brjálæðingar í 5 tíma og orkan og úthaldið á þrotum svo að við fórum heim í tjald. Sunnudeginum var svo að mestu eytt í að sofa því það tekur ekki minna á að fara í djamm-útilegu en göngu-útilegu.


Þetta er svona það helsta sem gert hefur verið fyrir utan að vinna. Gengum reyndar upp á Keili um daginn og fórum í Bláa Lónið eftir gönguna. Svo fórum við í smá göngutúr í Hengli eftir vinnu á fimmtudaginn þegar góða veðrið var. Svo grilluðum við með George og Betu í gærkvöldi, rosa gaman.


Annars er helst í fréttum að ég komst áfram í skólanum svo að við erum á leið aftur til Frakklands í haust. Auk þess fékk ég styrkinn sem ég sótti um hjá franska sendiráðinu svo að það bara rignir yfir okkur gleðitíðindum. í dag á ég svo fjögurra vikna reykleysisafmæli.
Þannig að ykkur er velkomið að óska mér til hamingju með þetta allt saman. Ég er alveg svakalega hamingjusöm og finnst lífið mitt alveg frábært, væri reyndar til í að vinna aðeins minna og geta farið meira í útilegur en tími samt ekki að fá mig lausa margar helgar því þá tapa ég svo miklum pening. Maður er nú ekki alveg í lagi. En það er aftur frí næstu helgi og þá er ljóst að það verður farið út úr bænum aftur.


Ég óska ykkur öllum góðs sumars og svo sjáumst við aftur hér á síðunni í haust.

- Svanhildur | 12:14
Umræður

Hildur:

Til hamingju aftur með þetta allt saman, þú getur sko allt!! Ef þessar hljómsveitir eru á hverju ári á á írskum dögum þá legg ég til að þetta verði árlegt hjá okkur líka.. þetta var bara of gaman :)

(17.07.05 20:34)

Ólöf:

Til hamingju með þetta allt saman.. góða skemmtun í sumar:)

(18.07.05 11:13)

Dagný:

Til hamingju með þetta! Frábærar allar þessar fréttir! :)
Hafið það sem best í sumar, vonandi förum við nú að sjást eitthvað þetta sumarið, verandi nokkurn vegin á sama stað á hnettinum.. heyrumst!
kv, Dagný and the boys

(18.07.05 12:52)

heida h:

Gledi gledi gledi!!!! Innilega til hamingju elsku Svanhildur min med tetta allt!!!!! Geggjad!!!!
Kannski eg komist ta einhvern timann til Grenoble hehehe;)
Gros bisous til ykkar beggja:)

(19.07.05 10:40)

Björk:

Til lukku með þetta allt saman.
Vinir mínir úr verkfræðinni eru að flytja til Grenoble um miðjan ágúst og verða þar í eitt ár.

(25.07.05 18:08)

svanhildur:

Takk fyrir allar hamingjuóskirnar.


Heiða: Já þú veðrur endilega að kíkja í heimsókn í vetur. Við tökum eina svakalega djammhelgi saman!


Björk: Er það nokkuð Ásdís? Hún er verkfræðigella sem er búin að hafa samband við mig varðandi húsnæðisleit og svoleiðis. En hún sagðist reyndar bara vera ein og verður í Grenoble í tvö ár. En þekkirðu eitthvað þessa stelpu?

(31.07.05 08:42)

jons:

Já til hamingju með þetta allt saman

(02.08.05 07:55)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni