júlí 17, 2005

Síðasta blogg sumarsins - fullt af góðum fréttum

Hæ hæ, það er ekkert að ganga að ætla eitthvað að blogga á sumrin. Það er bara allt of mikið að gera og enginn tími til að sitja við skrif í tölvunni. Þetta verður því sennilega síðasta blogg sumarsins og munu skrif ekki hefjast hér á ný fyrr en í september. En það er víst best að ég segi ykkur nokkrar lokafréttir áður en síðan fer í sumarfrí.


Við Mundi vinnum bæði eins og brjálæðingar og erum bæði komin með nett nóg af því. Tókum okkur þó bæði frí síðsustu helgi (nóta bene eina helgin sem við höfum átt frí frá því við komum heim) og vorum búin að plana að labba Leggjabrjót. En svo brugðudt veðurguðirnir okkur svo að við enduðum á írskum dögum á Akranesi í góðum félagsskap. Fórum út úr bænum eftir vinnu á föstudag og skelltum niður tjöldum á tjaldstæðinu á Akranesi í roki og rigningu. En það stytti upp inn á milli svo að við náðum að grilla og drekka mikið rauðvín. Fórum svo á fótboltavöllinn og hlustuðum á KK og Magga Eiríks spila og sungum og dönsuðum með. Svo var farið aftur á tjaldstæðið, meira drukkið, farið í leiki og sungið fram á nótt. Það er ekki laust við að maður hafi verið smá þunnur á laugardeginum en við náðum mestu af þynnkunni úr okkur í sundlauginni. Svo var tekið við að hita upp fyrir kvöldið og grilla og svo haldið á lopapeysuballið. Það var líka svona svakaleg snilld: fyrst Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds, svo Paparnir á fullri ferð til klukkan 3 og þá tók Sálin við. Klukkan hálf fimm var Sálin enn að spila og við búin að dansa og syngja eins og brjálæðingar í 5 tíma og orkan og úthaldið á þrotum svo að við fórum heim í tjald. Sunnudeginum var svo að mestu eytt í að sofa því það tekur ekki minna á að fara í djamm-útilegu en göngu-útilegu.


Þetta er svona það helsta sem gert hefur verið fyrir utan að vinna. Gengum reyndar upp á Keili um daginn og fórum í Bláa Lónið eftir gönguna. Svo fórum við í smá göngutúr í Hengli eftir vinnu á fimmtudaginn þegar góða veðrið var. Svo grilluðum við með George og Betu í gærkvöldi, rosa gaman.


Annars er helst í fréttum að ég komst áfram í skólanum svo að við erum á leið aftur til Frakklands í haust. Auk þess fékk ég styrkinn sem ég sótti um hjá franska sendiráðinu svo að það bara rignir yfir okkur gleðitíðindum. í dag á ég svo fjögurra vikna reykleysisafmæli.
Þannig að ykkur er velkomið að óska mér til hamingju með þetta allt saman. Ég er alveg svakalega hamingjusöm og finnst lífið mitt alveg frábært, væri reyndar til í að vinna aðeins minna og geta farið meira í útilegur en tími samt ekki að fá mig lausa margar helgar því þá tapa ég svo miklum pening. Maður er nú ekki alveg í lagi. En það er aftur frí næstu helgi og þá er ljóst að það verður farið út úr bænum aftur.


Ég óska ykkur öllum góðs sumars og svo sjáumst við aftur hér á síðunni í haust.

-Svanhildur | 12:14 | Comments (7)

júlí 2, 2005

Við erum á lífi

Veit ekki hvort einhver les þetta lengur, ekkert búið að skrifa svo lengi. En það á sér nú allt skýringar: fyrst eftir að ég kom heim lá síðan niðri í nokkra daga og svo þegar það var komið í lag þá mundi ég ekki slóðina til að blogga. Er svo vön að fara bara í "blogga" í FAVORITES í okkar tölvu að ég gat engan vegin klórað mig út úr þessu á tölvunni í vinnunni. En með hjálp frá tölvusnillingnum okkar henni Dæju, þá fékk ég svör við mínum spurningum og get nú loksins bloggað smá. Annars þá reikna ég nú ekki með að það verði mikið um að vera hér í sumar.


En bara til að koma með smá fréttir af okkur, þá er bara allt gott að frétta en þó lítið fréttnæmt sem hefur á daga okkar drifið hér á Íslandi. Við bara vinnum bæði eins og brjálæðingar, erum til dæmis bæði í vinnunni núna á laugardegi og verðum bæði að vinna á morgun. Erum sem sagt ekki búin að eiga frídag frá því við komum til landsins. En ég er ekkert að kvarta samt, vinnan mín er skemmtileg og krefjandi. Er samt farin að hlakka mikið til næstu helgar því þá verð ég í fríi og vonandi verður gott veður og tekin gönguferð yfir Leggjabrjót. Allir velkomnir með sem hafa áhuga. Bara hringja í gamla númerið hans Munda, ég er lúði og er ekki með neitt íslenskt gsm númer en hægt að ná í mig heima hjá mömmu og pabba eða í vinnunni: Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar.


En nú þarf ég víst að fara að gera eitthvað í vinnunni. Hlakka til að sjá ykkur sem flest í sumar.


Bæjó spæjó.

-Svanhildur | 09:05 | Comments (2)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni