Miðvikudagur 15. júní

Var að koma heim...

af djamminu (minni á að klukkan er tveimur tímum á undan því sem birtist á skjánum). Eitt af því sem ég á eftir að sakna frá Frakklandi er að geta farið að djamma hvaða dag vikunnar sem er! Kelit var að klára prófin og bankaði hjá mér rétt fyrir klukkan níu og bauð mér með henni og Daniel í partý. Að sjálfsögðu var ég til, fór með þeim í partý og svo á Couche Tard. Mikið stuð og mikið gaman. Svolítið öðruvísi stemmning á Couche Tard en venjulega, bara spiluð frönsk og spænsk tónlist en venjulega er spilað mikið af "international hittum" því venjulega er allt fullt af útlendingum þarna. En nú eru þeir allir farnir heim og nú var staðurinn hálfullur af fólki á milli fertugs og fimmtugs sem dansaði uppi á stólum eins og ég hef svo oft gert þarna og ég ákvað í kvöld að svona ætlaði ég að verða þegar ég yrði á þessum aldri: skreppa öðru hvoru á djammið og dansa uppi á stólum! Svo, eins og ég er löngu búin að ákveða, þá ætla ég að verða eins og Svana amma þegar ég verð gömul og eyða dögunum í að ferðast og spila golf. Til að hafa heilsu til að eiga svona skemmtilega elli þá er ég búin að ákveða að hætta að reykja í sumar og nú er það opinbert. Það er engin tilviljun að ég set það hér á netið heldur er það til að allir viti af því svo að það séu meiri líkur á að ég haldi reykingarbannið. Finnst eiginlega verst að ég verð að hætta að drekka líka í nokkra mánuði svo að ég falli ekki á reykingabanninu í glasi. En nú er ég ákveðin, ég ætla að hætta þessu og vera mjög dugleg við að rækta líkamann í sumar, synda og hjóla á hverjum degi! Og bara svo þið vitið það, þá er ég ekki að skrifa þetta núna af því ég er pínu í glasi heldur er ég búin að ákveða þetta fyrir löngu og ekkert eftir nema að fara út í apótek og kaupa nikótín plástur.

Jæja, ekki fleiri fréttir í bili.


Góða nótt.

- Svanhildur | 23:30
Umræður

Torfi:

Stattu þig stelpa.... !

(16.06.05 10:16)

svanhildur:

Ég þakka peppið.

(16.06.05 12:00)

Hildur:

Vahááá hvað mér líst vel á þetta, ég skal sko styðja þig áfram og peppa.. hlusta samt ekki á þetta kjaftæði með vínið, hvernig fer maður í útilegu ef það er ekki bjór með?? Mér líst svona líka vel á það að vera hress í ellinni og stefni að því að verða þá gamall karl en ekki kona því þeir eru miklu skemmtilegri ;)

(16.06.05 16:12)

Hildur:

Til hamingju annars kærlega með skilin og gleðilega þjóðhátíð á morgun!

(16.06.05 16:41)

svanhildur:

Já þetta kemur í ljós varðandi vínið. En ég heyrði í útvarpinu um daginn að fólki gengi betur að hætta að reykja ef það hefði hætt áður því þá vissi það hvernig það myndi bregðast við og hvaða hættur þyrfti að varast. Ég hef lært að þegar ég fæ mér í glas þá verður löngunin í sígarettu afar mikil og líka að ég borða meira og fitna og nota það sem afsökun til að byrja aftur. Þannig að ég held það sé best að sleppa víninu í smá tíma og svo verð ég að hreyfa mig til að fitna ekki. Það er ekkert mál að fara í útilegu án bjórs, ég hlýt að geta verið hress og sungið hástöfum með kakó í bolla!


Varðandi það að verða kall í ellinni þá finnst mér vera of mikið vesen að fara í aðgerð til að breyta því, þó mig hafi nú alltaf langað pínu til að vera strákur. Auk þess er til fullt af skemmtilegum gömlum konum og ég ætla að vera ein af þeim.


Og já, gleðilega þjóðhátíð og góða skemmtun öll sömun á morgun!

(16.06.05 17:20)

b:

Váááá, brilljant ákvörðun hjá þér. Þú hefur allan minn stuðning!

(16.06.05 21:32)

svanhildur:

Takk fyrir

(16.06.05 22:17)

jons:

Já gangi þér vel! You can do it!

(17.06.05 08:42)

Hildur:

Flott hjá þér! ég styð þig þá bara með því að stinga upp á fjallgöngum, göngu-, hjóla- og línuskautaferðum á kvöldin í sumar :)

(17.06.05 20:46)

svanhildur:

Allt samþykkt nema línuskautaferðirnar. Planið er sko að hjóla alltaf í vinnuna, fara í sund (helst líka fyrir vinnu) og í léttan göngutúr eða stutta fjallgöngu á kvöldin. Verst að ég hef bara eiginlega ekki tíma til að vinna í sumar ef ég ætla að vera svona dugleg að hreyfa mig : )

(18.06.05 07:33)

Björk:

Styð að hætta að reykja, bölvaður óþverri. Ég skal sko koma með þér í fjallgöngu á kvöldin.

(19.06.05 21:39)

svanhildur:

Já líst vel á það Björk. Er samt pínu hrædd um að eiga ekkert í þig, þú ert svo rosaleg fjallageit og í margfalt betra formi en ég. En ef þú ert til í að fara pínu hægt þá er ég sko til : )

(20.06.05 09:40)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni