Mánudagur 20. júníDagur 1...sem ný og betri reyklaus manneskja hófst í gær. Í fyrradag fór ég í apótekið og keypti nikótínplástra og gaf svo Anne allar sígaretturnar mínar nema eina til að reykja um kvöldið. Í gærmorgun setti ég svo á mig einn plástur og fékk allmikið nikótínsjokk. Lá bara í rúminu í þrjá tíma því mér var svo bumbult og var svo máttlaus eitthvað. Íhugaði mikið að taka plásturinn af mér og fara bara aftur í apótekið í dag og kaupa veikari plástra. En við gerðum svona "próf" í apótekinu til að sjá hvernig plástra ég ætti að fá og samkvæmt því þá átti þetta að vera við mitt hæfi og auk þess var ég á veikustu plástrunum sem til eru til að byrja að hætta að reykja. Það eru til veikari plástrar en þeir eru til að venja sig af plástrunum. Svo að ég lét þetta yfir mig ganga og hugsaði með mér að þetta væri alla vega að drepa sígarettulöngunina. Gat alls ekki hugsað mér að reykja líðandi svona illa í maganum. Þetta endaði með því að ég ældi eftir nokkra klukkutíma og eftir það leið mér betur og seinnipartinn fór löngunin aðeins að kræla á sér. En að sjálfsögðu stóðst ég mátið og gaf Daniel og Kelit alla bjórana sem ég átti í ísskápnum því ég á ekki heldur að drekka. Og einhverjir hafa verið að spyrja mig hvort það sé nauðsynlegt að hætta að drekka líka og ég get hér með bætt við mín fyrri rök að það stendur í "Hættu að reykja með nikótínplástrum" bæklingnum sem ég fékk í apótekinu að maður eigi að forðast áfengi. Þar stendur líka að maður eigi að vera duglegur að hreyfa sig, forðast sætindi, borða ávexti og drekka vatn og tannbursta sig þegar mann langar mikið í sígarettu. Mér sýnist því að mitt plan hafi bara verið alveg eftir bókinni, fyrir utan að ég er búin að bæta þessu með tannburstunina inn : )
- Svanhildur | 09:10
Umræður
Hildur: Stendur þig vel stelpa, áfram svona! (20.06.05 17:09)
jons: Dugnaður (21.06.05 09:35)
jons: En hvað með Munda? Ætlar hann að hætta einhverju? Ætli það séu til nógu sterkir plástrar við þessu: http://www.jonthor.com/gallery/innflutningur/DSCF0114 Mér er spurn! (21.06.05 09:38)
Birta: Þú stendur þig rosa vel og frábært að þú skulir ákveða að taka heilsuna svona í gegn!!! Ég þarf líka að fara að gera eitthvað í mínum málum. Hugsa til þín og krossa fingur. Stórt knús og faðmlag, já og til hamingju með ritgerðarskilin....alveg glæsilegt :) (21.06.05 23:10)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
Yfir móðuna miklu
Síða í dauðateygjunum? Jólaútilegan 2007 Gleðileg Jól Að eiga erindi Fyrir utan Hamrahlíðina í dag... Nú bar vel í veiði Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|