Mánudagur 13. júní

Búin...

með ritgerðina! Er búin að prenta allt út, en það tók rúma 2 tíma að prenta þetta allt saman, enda 80 blaðsíður í þríriti. Þá er bara eftir að binda þetta inn og það geri ég í fyrramálið. Það má því segja að ég sé komin í sumarfrí. Á bara eftir að ljúka við umsóknina um skólavist fyrir næsta vetur og klára að pakka. Annars get ég bara hangið í sólbaði þangað til að ég fer heim eftir viku. Bara verst að vera einn í fríi. Nú er ég búin að vera ein í þrjá daga og er alveg komin með nóg af því. Reyndi að breyta fluginu mínu til að koma fyrr heim en það var allt uppbókað. Svo að ég verð bara að láta mig hafa það að liggja í sólbaði og lesa bækur í nokkra daga. Það hljómar nú reyndar alls ekkert illa svo það er bara um að gera að njóta þess og hætta þessu væli. Verður sennilega lítið um afslöppunartíma í sumar svo það er bara gott að geta hlaðið batteríin aðeins núna.


Annars er það helst í fréttum að ég fékk óvæntan gest í heimsókn í gær. Flaug lítil og sæt finka inn um gluggann minn og settist í eina hilluna hjá mér og dvaldi þar í nokkrar mínútur og flaug svo út aftur. Verð að viðurkenna að mér finnst mun skemmtilegara að fá fugla en flugur í heimsókn.


Mundi kom til Billund í gærkvöldi og mun dvelja þar í góðu yfirlæti næstu daga áður en haldið verður áfram til Færeyja.


Þangað til næst...


- Svanhildur | 13:31
Umræður

mundi:

já sólbað hljómar ekki svo illa hérna í rigningunni í Billund. en vonandi fer nú að skína sól hér líka. kv. M

(13.06.05 14:35)

Dagný:

já sammála þér með fuglana, mun betri gestir en satans flugurnar, svo borða þeir líka flugur!
Til lukku með ritgerðina! Ljúf tilfinning ;)

(13.06.05 14:37)

Beta:

Til lukku með að vera búin!

(13.06.05 21:34)

svanhildur:

Takk takk. Já þetta er ansi ljúf tilfinning.

(13.06.05 22:00)

sara:

til hamingju, frábært að vera búin. þetta er æðisleg tilfinning. ég held einmitt að það sé rosa gott eftir svona verkefnatörn að slappa af, lesa, hlusta á tónlist og fleira. njóta þess bara geðveikt að vera í fríi í nokkra daga. ég var að kaupa mér klikkaðan disk um daginn.. hann er með Anthony and the Johnsons.. rosalega falleg tónlist. myndi verða mér út um lag sem heitir "I´m your sister"
velkominn til DK Mundi,hér er búin að vera demba síðan á föstudaginn.. en þar á undan var bongóblíða.. vona að hún komi fljótlega aftur. hvað ertu að fara að gera í færeyjum?
knúsar

(14.06.05 06:32)

Torfi:

ritgerð búin - gott...

12. stig.

(14.06.05 08:42)

svanhildur:

Kærar þakkir fyrir heillaóskirnar.

Mundi er að fara að ferðast um Færeyjar í tvo daga því honum er nauðugur einn kostur. Þegar maður tekur Norrænu til Íslands frá Danmörku þá verður maður að stoppa tvo daga í Færeyjum á meðan Norræna siglir til Noregs og aftur til baka. Þeir eru sniðugir að ná sér í ferðamenn Færeyingarnir!

(14.06.05 12:42)

Dagný:

já, ekki fer maður að fara nauðugur til Noregs, fussss :p

(14.06.05 15:06)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni