júní 20, 2005
Dagur 1
...sem ný og betri reyklaus manneskja hófst í gær. Í fyrradag fór ég í apótekið og keypti nikótínplástra og gaf svo Anne allar sígaretturnar mínar nema eina til að reykja um kvöldið. Í gærmorgun setti ég svo á mig einn plástur og fékk allmikið nikótínsjokk. Lá bara í rúminu í þrjá tíma því mér var svo bumbult og var svo máttlaus eitthvað. Íhugaði mikið að taka plásturinn af mér og fara bara aftur í apótekið í dag og kaupa veikari plástra. En við gerðum svona "próf" í apótekinu til að sjá hvernig plástra ég ætti að fá og samkvæmt því þá átti þetta að vera við mitt hæfi og auk þess var ég á veikustu plástrunum sem til eru til að byrja að hætta að reykja. Það eru til veikari plástrar en þeir eru til að venja sig af plástrunum. Svo að ég lét þetta yfir mig ganga og hugsaði með mér að þetta væri alla vega að drepa sígarettulöngunina. Gat alls ekki hugsað mér að reykja líðandi svona illa í maganum. Þetta endaði með því að ég ældi eftir nokkra klukkutíma og eftir það leið mér betur og seinnipartinn fór löngunin aðeins að kræla á sér. En að sjálfsögðu stóðst ég mátið og gaf Daniel og Kelit alla bjórana sem ég átti í ísskápnum því ég á ekki heldur að drekka. Og einhverjir hafa verið að spyrja mig hvort það sé nauðsynlegt að hætta að drekka líka og ég get hér með bætt við mín fyrri rök að það stendur í "Hættu að reykja með nikótínplástrum" bæklingnum sem ég fékk í apótekinu að maður eigi að forðast áfengi. Þar stendur líka að maður eigi að vera duglegur að hreyfa sig, forðast sætindi, borða ávexti og drekka vatn og tannbursta sig þegar mann langar mikið í sígarettu. Mér sýnist því að mitt plan hafi bara verið alveg eftir bókinni, fyrir utan að ég er búin að bæta þessu með tannburstunina inn : )
Annars var deginum eytt í að pakka ofan í pappakassa og svo var fjölskyldan á efri hæðinni búin að bjóða mér í kvöldmat, en fyrir þá sem ekki muna þá er ég búin að vera að hjálpa yngri stráknum með heimavinnuna í vetur. Þau voru afar hissa þegar ég afþakkaði fordrykk og bað bara um vatn svo ég útskýrði ástæðuna fyrir þeim. Eftir matinn komu svo ostar á borðið og þau sögðu að ég yrði nú eiginlega að fá mér smá rauðvín með þeim og ég gat ekki annað en verið sammála og drakk hálft rauðvínsglas með ostunum og verð nú bara að segja að það fékk mig ekkert til að langa í sígarettu.
Svo að so far so good, vona bara að það haldi áfram að ganga vel. Held að önnur vikan sé erfiðust og geri mér grein fyrir að það er of snemmt að hrósa sigri en ég er mjög ákveðin og auðvitað snýst þetta mest um viljastyrk og sjálfsaga og ég tel mig búa yfir þessu hvorutveggja.
í dag á svo að klára að pakka og þrífa og svo verður bara lagt í hann heim í fyrramálið.
Sjáumst!
-Svanhildur
| 09:10
| Comments (4)
júní 15, 2005
Var að koma heim...
af djamminu (minni á að klukkan er tveimur tímum á undan því sem birtist á skjánum). Eitt af því sem ég á eftir að sakna frá Frakklandi er að geta farið að djamma hvaða dag vikunnar sem er! Kelit var að klára prófin og bankaði hjá mér rétt fyrir klukkan níu og bauð mér með henni og Daniel í partý. Að sjálfsögðu var ég til, fór með þeim í partý og svo á Couche Tard. Mikið stuð og mikið gaman. Svolítið öðruvísi stemmning á Couche Tard en venjulega, bara spiluð frönsk og spænsk tónlist en venjulega er spilað mikið af "international hittum" því venjulega er allt fullt af útlendingum þarna. En nú eru þeir allir farnir heim og nú var staðurinn hálfullur af fólki á milli fertugs og fimmtugs sem dansaði uppi á stólum eins og ég hef svo oft gert þarna og ég ákvað í kvöld að svona ætlaði ég að verða þegar ég yrði á þessum aldri: skreppa öðru hvoru á djammið og dansa uppi á stólum! Svo, eins og ég er löngu búin að ákveða, þá ætla ég að verða eins og Svana amma þegar ég verð gömul og eyða dögunum í að ferðast og spila golf. Til að hafa heilsu til að eiga svona skemmtilega elli þá er ég búin að ákveða að hætta að reykja í sumar og nú er það opinbert. Það er engin tilviljun að ég set það hér á netið heldur er það til að allir viti af því svo að það séu meiri líkur á að ég haldi reykingarbannið. Finnst eiginlega verst að ég verð að hætta að drekka líka í nokkra mánuði svo að ég falli ekki á reykingabanninu í glasi. En nú er ég ákveðin, ég ætla að hætta þessu og vera mjög dugleg við að rækta líkamann í sumar, synda og hjóla á hverjum degi! Og bara svo þið vitið það, þá er ég ekki að skrifa þetta núna af því ég er pínu í glasi heldur er ég búin að ákveða þetta fyrir löngu og ekkert eftir nema að fara út í apótek og kaupa nikótín plástur.
Jæja, ekki fleiri fréttir í bili.
Góða nótt.
Hvað er að frétta?
Í fyrrakvöld kláraði ég að horfa á fyrstu seríuna í Lost. Fannst þessir þættir alveg ömurlegir í byrjun, þetta var allt OF eitthvað, sbr. skrímsli og máttur í lamaða fætur. En ég hélt þó áfram að fylgjast með þessu, sennilega bara af því að allir voru að tala um hvað þeir væru húkt á þessum þáttum. Og viti menn, eftir nokkra þætti var ég bara orðin svolítið húkt. Og án þess að ætla að fara að segja frá endinum þá get ég sagt að hann gerir mann enn meira húkt og nú bíð ég spennt eftir næstu seríu.
Í gær gormaði ég svo ritgerðina og var að enda við að skila henni. Þannig að það er bara frá og ég get bara farið að liggja í leti í nokkra daga. Hélt ég væri að verða veik í gær, byrjaði að fá hálsbólgu í fyrrakvöld og gúffaði í mig náttúrulyfjum fyrir svefninn. Vaknaði um nóttina að drepast í hálsinum og drakk meiri dropa en allt kom fyrir ekki, ég var drulluslöpp þegar ég vaknaði í gærmorgun. En ég gafst ekki upp, dældi í mig meiri náttúrlulyfjum, vítamínum og verkjatöflum, fór svo upp á háskólasvæði að binda inn ritgerðina og lagði mig svo þegar ég kom heim. Leið betur þegar ég vaknaði en hélt áfram að innbyrða þessa ógeðslegu propolisdropa og viti menn, ég er bara nokkuð hress í dag, bara smá hálsbólga og nefrennsli en ekkert til að tala um. Ég tel mig því hafa sigrað bakteríurnar eða vírusinn eða hvað þetta nú er. Annars er alveg týpískt fyrir mig að verða veik eftir svona törn, eins og um leið og ég slaki aðeins á, opni ég dyrnar fyrir bakteríunum. En ég get nú ekki kvartað yfir því, ætla frekar að þakka líkamanum mínum fyrir að standa sig þegar mikið liggur við. Mun betra að verða veikur þegar maður má alveg vera að því að liggja þrjá daga í rúminu heldur en þegar manni finnst maður engan tíma mega missa.
Þar sem lost serían er búin hef ég nú snúið mér að lestri. Er að lesa Góðir Íslendingar eftir Huldar Breiðfjörð og hún er líka bara svona stórskemmtileg. Planið næstu daga er að halda áfram að pakka niður dóti í rólegheitum, slappa af, fara út í sólina og lesa mikið, allt of sjaldan sem maður hefur tíma til að lesa sér til skemmtunar. Á 17. júní ætlar bekkurinn svo sama í Pikk nikk á Île d'Amour sem er grænt svæði hérna í útjaðri bæjarins. Þannig að ég fer að djamma á þjóðhátíðardaginn þrátt fyrir allt!
Sem sagt bara góður tími framundan!
-Svanhildur
| 08:14
| Comments (2)
júní 14, 2005
Billund
koma til Billund var um kveldmatarleyti á sunnudag. gærdeginum var svo að mestu eytt í að gera ekki neitt, en það er hæfileiki sem ég hef þróað með mér og er orðinn helvíti góður í.
í morgun skrapp ég svo í morgunkaffi til Bjarna og Bryndísar. Auðvitað átti ég líka smá erindi við Bjarna. þannig er nefnilega að Pabbi bað mig um að flísaleggja litla forstofu sem er hérna í "gesta-álmunni". Og mér skildist á föður mínum að í danmörku væri ekki ráðist í verklegar framkvæmdir öðruvísi en að ræða verkið við Ambassadorinn, fá framkvæmdaleyfi og ráðgjöf, nú í það minnsta að fá lánuð verkfæri. sem ég og gerði alltsaman og nú eru flísarnar komnar á gólfið. fúgan bíður morgundagsins.
mér heyrist dugnaðurinn teygja sig til Grenoble líka, í það minnsta skilst mér að Svanhildur ætli að skila ritgerðinni sinni, innbundinni og klárri á morgun. Mikið held ég að það verði nú góð tilfinning fyrir hana að losna við þetta úr höndunum eftir að hafa verið að vinna við þetta 24/7 undanfarna mánuði.
Annars sól og hiti hækkandi hér í baunalandi
júní 13, 2005
Búin...
með ritgerðina! Er búin að prenta allt út, en það tók rúma 2 tíma að prenta þetta allt saman, enda 80 blaðsíður í þríriti. Þá er bara eftir að binda þetta inn og það geri ég í fyrramálið. Það má því segja að ég sé komin í sumarfrí. Á bara eftir að ljúka við umsóknina um skólavist fyrir næsta vetur og klára að pakka. Annars get ég bara hangið í sólbaði þangað til að ég fer heim eftir viku. Bara verst að vera einn í fríi. Nú er ég búin að vera ein í þrjá daga og er alveg komin með nóg af því. Reyndi að breyta fluginu mínu til að koma fyrr heim en það var allt uppbókað. Svo að ég verð bara að láta mig hafa það að liggja í sólbaði og lesa bækur í nokkra daga. Það hljómar nú reyndar alls ekkert illa svo það er bara um að gera að njóta þess og hætta þessu væli. Verður sennilega lítið um afslöppunartíma í sumar svo það er bara gott að geta hlaðið batteríin aðeins núna.
Annars er það helst í fréttum að ég fékk óvæntan gest í heimsókn í gær. Flaug lítil og sæt finka inn um gluggann minn og settist í eina hilluna hjá mér og dvaldi þar í nokkrar mínútur og flaug svo út aftur. Verð að viðurkenna að mér finnst mun skemmtilegara að fá fugla en flugur í heimsókn.
Mundi kom til Billund í gærkvöldi og mun dvelja þar í góðu yfirlæti næstu daga áður en haldið verður áfram til Færeyja.
Þangað til næst...
-Svanhildur
| 13:31
| Comments (8)
júní 10, 2005
Pakkað og allt að verða klárt
litli 15fm klefinn okkar hérna í Grenoble er að verða tómlegur. við erum að verða búin að koma flestu því er í volfgang skal fara í viðeigandi umbúðir og bera það niður í bílskúrinn til að auðvelda lestun í fyrramálið.
ef að einhver hefði sagt mér fyrir sléttu ári síðan að ég ætti eftir að kveðja grenoble með söknuði þá hefði ég sagt hinn sama kolruglaðan og lygara. en ég get ekki neitað því að það er smá saknaðarfílingur í þessu öllu.
á morgun á ég svo rendez-vous við Billundbúana í smábænum Hann Münden sem er skammt frá Kässel. en þangað er um 940 km skreppur. nú á eftir að mæða mikið á volfgang, fulllestuðum og 2 árum eldri en síðast! 7-9-13 allir saman nú !
júní 9, 2005
Chamechaude (2082m)

chamechaude var tekinn með trompi í dag. heldur þótti mér nú samt vera kalt þegar maður var kominn úr skjólinu hérna milli fjallanna. en það er víst kalt á toppnum !
afgangi af degi hefur verið eytt í að troða í kassa.
brottför á laugardagsmorgun
tíminn hér í grenoble er senn að renna frá okkur. gærdagurinn fór í allskonar útréttingar, til að undirbúa brottför. náðum í pappakassa til að pakka því dóti í sem á ekki að fara til íslands, pakka aðeins í þá. komum "tengdamömmuboxinu" á toppinn og jú, það er komið útvarp í bílinn á ný.
enduðum svo daginn á því að fara út að borða með Daniel og Kelit, svona nokkurskonar kveðjudinner.
í dag væri svo skynsamlegt að pakka, en veðrið er fallegt svo að við ætlum að skella okkur í síðustu fjallgönguna að sinni. ég tel að svanhildur verði að fá að njóta útsýnisins á Chamechaude, tindinum sem við stebbi gengum á í snjó í apríl.
því erum við að fara þangað og höldum bara áfram að pakka seinna...
júní 7, 2005
FERÐASAGA

ferðalagið byrjaði eiginlega hjá mér sunnudaginn 29. þegar ég fór frá íslandi hingað til grenoble eftir massa vinnutúr á klakanum. hingað kom ég svo á sunnudagskvöld og upp úr hádegi á mánudegi var svo lagt af stað.
ARDÈCHE: var fyrsti viðkomustaður. Þangað ókum við, slógum upp tjaldi og kveiktum upp í grilli. Það var reyndar í síðasta skipti sem við notuðum grillið okkar en það hvarf um nóttina. það var bara í góðu lagi, það var orðið gamalt og lúið og okkar bíður nýtt ferðagrill af sömu gerð í Billund.
morguninn eftir var svo farið í kanósiglingu niður ardeche-ánna í bongóblíðu. synt í ánni innan um fiskana, já fiskana, ég hef aldrei séð nokkra á jafn fulla af stórum silungi og þessa og hafði slæma samúðarverki með veiðistönginni minni sem stóð ónotuð á íslandi á sama tíma.
CARCASSONNE: þangað ókum við svo seinnipart þessa dags og skoðuðum okkur um í þeim miðaldabæ. hann er nokkuð svalur, einn af þessum með borgarmúrunum utan um. það sem er innan múranna er nú ekki stórt svæði en gaman að skoða.
PÝRENEAFJÖLL: að kvöldi var svo ekið upp í Pýreneafjöll og tjaldað þar á ný. Virkilega fallegt þar uppi, en ansi mikið kaldra þar en niður á láglendi. Held að það hafi farið niður í 4-5 gráður um nóttina, enda tjaldað í um 1500metra hæð. nýju svefnpokarnir okkar sönnuðu sig þar.
ANDORRA: þetta var í annað skiptið sem ég heimsæki það smáríki. fyrra skiptinu man ég nú ekki eftir en þá var ég þriggja ára að mér skilst. Þarna var gríðarleg landamæravarsla og ég hef aldrei séð jafn mikið af lögreglu og á þessum bleðli. huxanlega hefur það verið vegna smáþjóðaleikanna en við fengum einmitt sms frá snæbirni þegar við vorum þarna og hann sagði okkur að þeir stæðu einmitt yfir. okkur var svosem farið að gruna það því við höfðum séð mikið af fólki í merktum íþróttafatnaði svo og íslenska fánann. ekki leið svo á löngu þangað til við hittum 3 íslendinga og spjölluðum við þá. deginum eyddum við í það að rölta þarna um og skoða, fá okkur að borða og leita að tjaldstæði. heldur gekk nú illa með það að finna slíkt, þau 2 sem við fundum voru gersamlega ofan í þjóðbrautinni og höfðu ekki mikinn sjarma. því ákváðum við að aka aðeins lengra, yfir til spánar og reyna að finna tjaldstæði þeim megin við pýreneafjöllin.
SPÁNN: af stað var ekið og ekki leið á löngu þangað til við sáum skilti sem beindi okkur að tjaldstæði. þegar þangað var komið var tjaldstæðið lokað! en við héldum áfram og sagan endurtók sig hvað eftir annað. það var ekki fyrr en mörgum kílómetrum seinna að við fundum eitt sem var opið en þá áttum við ekki nema um 100km eftir til barcelona. gripum það, steiktum ket á pönnu og töluðum við hollendinga sem voru að spá í bílnúmerinu okkar.
Þetta tjaldstæði var í útjaðri bæjar sem heitir Solsona. umsjónarmanni tjaldstæðisins var virkilega umhugað um að kynna sitt hérað og þegar við töluðum við hann dældi hann svoleiðis í okkur bæklingum á ensku, frönsku og katalónsku að það hálfa hefði verið nóg. en í einum þeirra fundum við nokkuð sem vakti áhuga og ákváðum að gera það daginn eftir. Það var að skoða saltfjall sem er þarna ekki langt frá í smábæ sem heitir Cardona. þetta varð algóður túr, virkilega áhugavert að skoða fjallið og ekki síður öll þau göng sem búið er að grafa inn í það vegna þess að þar var náma. ótrúlega fallegt. svo röltum við okkur um Cardona, skoðuðum kastalann sem er þar á hæðinni og héldum svo áfram ferð okkar eftir hádegið.
BARCELONA: já, - barcelona. hvað getur maður sagt. hvílík borg. þangað vorum við komin og á réttan stað meira að segja um kl 16 en Roger og Nadia voru í vinnu og skóla og gátu ekki hitt okkur fyrr en upp úr kvöldmat. þannig að við lögðum bílnum þarna upp í fjalli og tókum röltið. Svo hittum við þau um kvöldið og fórum og fengum okkur tapas. Ég er ansi hræddur um að ef að ég ætlaði að segja nákvæma ferðalýsingu frá barcelona þá yrði þessi pistill ennþá lengri en gott getur talist, er hann nú nógu langur samt. En í AFAR stuttu máli þá var mikið labbað, mikið skoðað, gaudí tekinn frá A-Z, farið á strönd, verslað pínu, borðaður góður matur, farið aftur á strönd, farið á skrítið diskótek, þar var svíi með sítt að aftan og svo margt margt meira. Móttökur katalónanna voru stórkostlegar og Roger og Nadia eru höbbðingjar heim að sækja. MERCI ROGER, MERCI NADIA.
en eitt lærði maður af því að heimsækja Barcelona, þe. að annarsstaðar eru bílastæði!!!! þau séu ekki þarna...
PERPIGNAN: heim var haldið í gær. við kvöddum okkar frábæru gestgjafa og ókum af stað til frans. við ákváðum að stoppa í Perpignan og fá okkur snarl upp úr hádegi. að sjálfsögðu tekinn bæjarrölt-túr þar eins og annarsstaðar. og áfram haldið og hitinn hækkaði. við vorum að bráðna í bílnum, ákváðum að stoppa aðeins og skelltum okkur á ströndina við Grande Motte, sem er rétt hjá Montpellier. Algott að pása sig smá frá akstrinum og kíkja í miðjarðarhafið. og fyrst við vorum nú á annað borð þarna þá litum við líka við í Aigues Mortes en þar höfðum við farið áður. Snotur bær.
að þessu öllu loknu var svo haldið inn í alpafjöllin og heimkoma var um kl 21.
Þetta var lágmarksstutt ferðasaga og eins og alltaf þá er sjón sögu ríkari. ég náði því að taka tæpt megabæt af myndum! eitthvað af þeim er komið í albúmið okkar fyrir ykkur þau sem vilja vita og sjá meira. en kannski nennir enginn að lesa svona langar færslur, - hvað þá að skoða svo myndir til viðbótar. smella má á feitletraðar fyrirsagnir til að komast beint í viðkomandi albúm, en atugið að ég er ekki alveg með tök á þessu albúmi svo að myndirnar í þeim eru allar í öfugri tímaröð sem áður.
...takk
júní 6, 2005
komin heim

´
...úr hreint frábæru ferðalagi. myndir og ferðasaga koma innan skamms...