Föstudagur 13. maí

Vorboðinn ljúfi, jah eða ekki bara

Haldiði ekki að moskítófluga hafi laumað sér inn um gluggann hjá mér í gær og ákveðið að eyða með mér nóttinni svo ég yrði ekki einmana án Munda. Hún hefði nú alveg mátt sleppa því því nú er ég með útbitinn handlegg (reyndar bara tvö bit en það er tveimur of mikið!).Það er greinilega kominn tími til að setja batterí í moskítófæluna!


Annars var ég að skoða verð á lestarmiða til Parísar til að koma mér í Júróvisjónpartý hjá jóni og Guðrúnu og sé að ég get farið þangað fyrir 6000 kall sem er nú alveg á sig leggjandi fyrir gott júróvisjónpartý í góðum félagsskap. En ákvað að kíkja aðeins á dagskránna hjá sjónvarpsstöðvunum til að vera viss um að þetta verði sýnt á sömu stöð og í fyrra og mér sýnist að keppni fimmtudagskvöldins sé bara ekki sýnd þar sem Frakkar þurfa ekki að taka þátt í forkeppninni. Þetta eru auðvitað hræðilegar fréttir og ég bara trúi því ekki að Frakkarnir ætli að bregðast mér svona á örlagastundu. Ætla því að hlaupa út í næsta Tabac (búðir sem eru hérna út um allt og selja blöð og tóbak) og smella mér á einn TV Guide.

- Svanhildur | 07:37
Umræður

Margrét:

Blessuð!
Takk fyrir kveðjuna! Óneitanlega gott að vera kominn í sumarfrí, og nú er bara vika í brottför til Germaníu...sól, bjór, feitar pylsur í metravís, ætli þetta endi ekki með kransæðastíflu á sundlaugarbakkanum! En ég verð þá allavega brún (c;
Gangi þér vel á lokasprettinum!
Kv. Margrét
P.s. Nói biður að heilsa (c:

(13.05.05 12:00)

svanhildur:

Góða skemmtun í Germaníu, sól, bjór og feita pylsur hljóma vel!
Ég bið að heilsa Nóa.

(13.05.05 12:06)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni