Laugardagur 28. maí

Tóm hamingja

Þá er ég búin að senda niðurlagið á ritgerðinni minni til yfirferðar hjá henni Betu. Alveg frábært að hafa einhvern sem er tilbúinn til að lesa þetta yfir fyrir mig og taka eftir hlutum sem fara framhjá mér. Takk takk Beta mín.


Í tilefni af þessu þá ætla ég að rölta í bæinn og reyna að finna mér góða sandala. Er komin með leið á að þurfa að velja á milli þess að fara í ljóta sandala eða að fara í flotta og koma heim með blöðrur út um allt. Er ég að ætlast til of mikils að vilja fá þægilega og flotta sandala??? Kemur í ljós á eftir. Þegar ég verð svo búin að finna draumaskóna mína má svo vel vera að maður tylli sér á kaffihús og sötri einn kaldann í sólinni.


Já lífið er yndislegt! Og til að toppa þetta allt saman þá er Mundi að koma á morgun og við að fara í ferðalag á mánudaginn sem við eigum meira að segja efni á því ég er búin að spara peninginn sem ég fékk í afmælisgjöf einmitt til að borga bensín á bílinn, tjaldtæði og fleira sem fylgir ferðalögum. Jahá, lífið er svo sannarlega dásamlegt!!!

- Svanhildur | 09:29
Umræður

mundi:

...já - ég er einmitt hérna hjá Torfa og Evu að kveðja Ísland á viðeigandi hátt með því að éta pylsur og skyr. sjáumst svo á morgun! ;)

(28.05.05 22:21)

Beta:

Humm humm, já, ég er ekki alveg búin að lesa þetta enda ýmislegt frábært búið að vera í gangi í vikunni... Segi þér frá því! Anyways, gott að þú ert að fara í ferðalag, þá hef ég aðeins meiri tíma til að klára þetta ;)

(29.05.05 00:10)

svanhildur:

OK, pas de problème.

(29.05.05 05:51)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni