Mánudagur 23. maí

París

Það var alveg æðislegt að eyða nokkru dögum í París, fjarri ritgerðarskrifum. Kom þangað á fimmtudagskvöldið og fór út að borða með Möggu og Tomma. Það var ofsalega gaman að ná að hitta þau aðeins. Við fórum á voða góðan veitingastað, fengum góðan mat og skemmtilegan þjón, sem er nú ekki sjálfgefið í París. Á leiðinni heim (til Jóns og Guðrúnar) með metróinu fékk ég sms frá Munda sem sagði mér að við hefðum ekki komist áfram í Júróvisjon. Ég ætlaði ekki að trúa honum, hélt eins og allir hinir að við hlytum nú alla vega að komast áfram þótt ég væri nú kannski ekki eins bjartsýn og margir aðrir um að við yrðum meðal fimm efstu. En þetta var víst engin lygi og því útséð með Júróvisjonpartý á laugardaginn.


Á föstudeginum kláraði ég umsóknina um styrkinn, sem er nú eiginlega efni í sjálfsævisögu með tilheyrandi monti, og sendi af stað til Íslands. Svo héldum við Jón og Guðrún gott partý um kvöldið. Guðrún fór svo til London á laugardagsmorguninn og við jón vorum ofurlöt og horfðum á eina 17 þætti af Arrested Development og borðuðum snakk og franskar með kokteilsósu (það er nú ekki á hverjum degi sem maður fær kokteilsósu hér í Frakklandi svo þetta var mikil hátíð). Ég tók þó pásu frá þáttunum til að horfa á Júróvisjon þar sem það var nú einu sinni hvatinn að för minni til Parísar. Áður en Jón skutlaði mér á lestarstöðina í gær kláruðum við svo að horfa á fyrstu seríuna, ekki amalegt að ná einni seríu á einum sólarhring!


Það verður því að segjast að heilinn minn fékk góða hvíld um helgina og nú er hann glaður og endurnærður. Ég get því vonandi haldið áfram að misbjóða honum út þessa viku, ekki síst þar sem hann veit að það styttist í næsta frí því næsta mánudag verður lagt upp í vikuferðalag. Er búin að hafa samband við vini okkar í Barcelona sem eru búin að samþykkja að hýsa okur í nokkra daga. Það á nú líka að skoða eitthvað fleira en Barcelona en ferðaáætlun er í býgerð.

- Svanhildur | 13:39
Umræður

sara:

hljómar sem yndisleg helgi.
knúsar

(23.05.05 16:06)

jons:

Já, 1 sería er ekki slæm frammistaða. Gangi þér vel að misbjóða heilanum!

(24.05.05 08:54)

svanhildur:

Takk takk, ekki veitir af :)

(24.05.05 09:12)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni