Mánudagur 9. maí

mánudagspælingar

við komum af fjöllum í gærkvöldi. ég kom reyndar alveg af fjöllum líka í morgun þegar klukkan hringdi en það er nú alvanalegt.


morgninum eyddi ég í að vega og meta þá kosti sem eru í stöðunni varðandi það að koma mér og volfgang heim á klaka í júní, það mál er nú í nefnd og niðurstaðna er að vænta innan tíðar.


annars fórum við áðan og fengum okkur að borða hérna á "Le Grésivaudan" sem er staður uþb. 50m frá húsinu okkar. þeir stóla inn á hádegisumferð þar og þar getur maður fengið ágætan mat fyrir lítið. mér fannst það nú skondið að ég fór heim og náði mér í peysu til að sitja í við átið, þrátt fyrir að hér séu nú um 20 gráður - hvað er að gerast!!!!


annars það helst héðan að svanhildi gengur vel með lokaverkefnið - en hún segir nú kannski bara frá því sjálf hérna einhvern daginn, og það að ég hafði samband við Jóns hinn Paríslenska í gær og við erum að spá og spekúlera með að fara á Formúlu 1 keppninga í Monakó eftir 2 vikur. helsti þröskuldurinn sýnist mér verða miðaverð, því heldur er maður nú seinn með að hugsa um þetta, en miðarnir sem eru í boði eru margir hverjir á 250-550 evrur. Það er núheldur meira en við höfðum hugsað okkur! þetta kemur í ljós, ég er ekkert of bjartsýnn en kannski verður maður heppinn - hver veit....


grenoble over....

- mundi | 11:37
Umræður

Ziggy Flotti:

Svona var þetta þegar maður kom heim frá danmörku, þá vour einhverjar 14-15°C og allir úti á bolnum en ég var í peysu og hristist um af kulda!! Núna er það bolurinn á 12°C !!! Þú ert orðin of góðu vanur! :-)

(10.05.05 11:10)

Torfi:

... peysa - bíddu varst ekki í þinni... :-|

(10.05.05 14:02)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni