Sunnudagur 29. maí

Gærdagurinn

Gærdagurinn var svona líka vel heppnaður. Rölti niður í bæ upp úr hádegi í sól, blíðu og 30 stiga hita. Þegar ég kom á aðalgöngugötu bæjarins mætti mér mótorhjólaskrúðganga, ca. 100 mótórhjól í röð sem ákváðu allt í einu að sýna hvað þau gætu búið til mikinn hávaða. 100 mótorhjól að gera brumm brumm er um það bil það desibilamagn sem þarf til að gera fólk heyrnalaust og til að bjarga hljóðhimnunni minni forðaði ég mér inn í næstu búð. Þaðan kom ég svo út með buxur og bol í poka og það er allt mótorhjólatöffurunum að kenna því ég ætlaði bara að reyna að finna mér sandala. Við Anne vorum svo búnar að mæla okkur mót klukkan 14 og fórum á kaffihús og fengum okkur einn kaldan. Svo hélt leitin að flottum og þægilegum sandölum áfram og sú leit bar á endanum árangur. Svo freistaðist ég inn í eina aðra búð og kom þaðan út með kjól og pils. Ég kom því heim skóm, buxum, bol, pilsi og kjól ríkari og 12000 krónum fátækari. En það er allt í lagi því hann Mundi er búinn að vera að þéna svo vel á Íslandi :-)


Annars þá var ég að heyra í Munda og hann er í Leifstöð að fá sér einn Carlsberg í morgunmat, búinn að fjárfesta í einhverjum svaka iðnaðarmannasíma með myndavél í fríhöfninni. Ég hef aldrei skilið þetta með að fá sér bjór í flugstöðinni áður en maður fer í flug. Maður þarf alltaf að mæta í flug á einhverjum ókristilegum tíma og þá langar mig ekki mikið í brjór. Hef rætt þetta við marga og allir eru ósammála mér, segja að það tilheyri að drekka einn bjór í Leifsstöð áður en lagt sé í hann til útlanda. Ég verð að segja að ég skil þetta ekki alveg.


Svo má ekki gleyma því að hér eru kosningar um stjórnarskrá Evrópusambandsins í dag. Verður spennandi að sjá hvernig þær fara. Hér hefur fólk ekki talað um annað undanfarnar vikur og fólk hefur misjafnar skoðanir á þessu máli. Ég hef nú ekkert verið að setja mig of mikið inn í þetta mál en horfði þó á ákall Chiracs til frönsku þjóðarinnar í sjónvarpinu á fimmtudagskvöldið. Verð nú að játa að mér fannst hann vera mjög sannfærandi, að Frakkar yrðu bara að segja "já" því annars væri Evrópusamstarfið og staða Frakklands innan Evrópusambandsins í uppnámi. Anne hefur svolítið talað um þetta við mig en hún er "já" manneskja og eins og öðrum finnst henni þetta vera mjög mikilvægt mál. Virðist samt líklegt að þetta verði fellt, sennilega aðallega vegna þess að þjóðin er ósátt við ríkisstjórnina og vonast til að hún fari frá ef stjórnarskráin verður ekki samþykkt. Verð að segja að mér finnst nú alveg fáránlegt að segja "nei" ef þetta eru rökin fyrir því. Mér finnst eiginlega svolítið skrítið ef Frakkar hafna stjórnarskránni því hér eru allir svo miklir Evrópusinnar, sem er ekkert skrítið þar sem Frakkar eru jú "kóngarnir" í Evrópusambandinu. En eins og ég sagði áðan þá veit ég lítið um hvað þessi stjórnarskrá fjallar og veit því ekkert hvort ég myndi kjósa "já" eða "nei" ef ég væri Frakki. Jæja, nóg um þetta í bili, þetta kemur allt í ljós í kvöld, fannst ég bara verða að skrifa aðeins um þetta þar sem ég er nú í Frakklandi og allt snýst um þetta núna.

- Svanhildur | 07:08
Umræður

Hildur:

Er alveg sammála þér með bjórinn í Leifstöð, hef aldrei skilið af hverju maður á endilega að fá sér bjór fyrir flug en hef oft gert það svona af skyldurækni.. Skemmtið ykkur rosalega vel í ferðinni og njóttu nú lífsins í botn næstu daga :)

(29.05.05 11:47)

svanhildur:

Takk takk, það er engin spurning að ég mun gera það!

(29.05.05 13:20)

sara:

skil heldir ekki bjórinn í leifstöð, maður þarf líka alltaf að vera pissandi, og hvað er leiðinlegra en að pissa í flugvél?? svo er bjór bara ekki góður klukkan 7 á morgnanna.
ég vona að þið eigið góða viku, og skemmtið ykkur vel. farið varlega, og margir knúsar frá mér.

(29.05.05 16:15)

svanhildur:

Takk takk, við eigum alveg örugglega eftir að skemmta okkur rosa vel. Erum alla vega bæði farin að hlakka mikið til.

Annars var ég að heyra í Munda áðan. Hann fékk algjört sjokk þegar hann þurfti að skipta um lest í Lyon. Gallabuxur og flíspeysa ekki alveg að gera sig í 33 stiga hita.

(29.05.05 16:32)

Torfi:

... gott hjá frökkum að segja nei - allt sem kemur Evrópusambandinu í uppnám er gott!

(30.05.05 09:02)

jons:

Hahaha, sammála síðasta ræðumanni!

(01.06.05 09:29)

jons:

Haha, sammála síðasta ræðumanni!

(01.06.05 11:02)

heida h:

dugleg stelpa ad versla:) eg verd nu annars ad segja ad eg er alveg i tessum gir ad fa mer bjor adur en eg fer i flug....tilheyrir bara eitthvad....
eg se samt, tvi midur, ekki fram a ad koma i heimsokn...a 2 daga i fri adur en mamma kemur til min og ta bar VERD eg ad nota i helv... lokaverkefnid mitt.....hundfult en eins og frakkarnir segja...c'est la vie! gros bisous ma puce

(01.06.05 15:56)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni