Fimmtudagur 12. maíFarið að styttast í annan endann.Nú er maður loksins farinn að sjá fyrir endann á þessari önn. Skilaði þremur ritgerðum í morgun og þá er ekkert eftir nema að ljúka við lokaverkefnið. Stefni á að nýta grasekkjutímann vel og klára fyrstu útgáfu fyrir 30. maí en þá á ég tíma hjá leiðbeinandanum mínum. Henni leist mjög vel á það sem ég var búin með þegar ég hitti hana síðast svo að ég er bara að vona að hún verði jafn ánægð með seinni hlutann og gefi mér háa einkunn svo ég fái að halda áfram næstu önn. Það er því fátt annað á dagskránni næstu daga en að sitja við tölvuna og skrifa. Ég ætla nú samt að kíkja aðeins út annað kvöld því það er víst búið að plana hitting hjá bekknum á bar hérna í bænum. Verður ábyggilega gaman að hittast aðeins og slaka á saman enda allir sveittir við ritgerðarskrif um þessar mundir. Er að gera mér vonir um að einhver í hópnum sé Eurovision aðdáandi og tilbúinn að bjóða mér í heimsókn á fimmtudaginn til að horfa á hana Selmu, og svo aftur á laugardagskvöldið. Tel samt frekar ólíklegt að það heppnist þar sem enginn horfir á þetta hér nema gamlar konur. En ég má ekki til þess hugsa að missa af þessu (næ sko ekki stöðinni sem sýnir keppnina). Er búin að gera mér grein fyrir því að sem Íslnedingur þá get ég bara ekki látið það koma fyrir, það væri nú næstum því bara eins og að halda ekki upp á gamlárskvöld. Auk þess er ég viss um að við eigum eftir að standa okkur vel í ár (erum við ekki alltaf á leiðinni að vinna þessa keppni???) og vil nú ekki missa af því að sjá okkur vinna! - Svanhildur | 11:15
Umræður
sara: hæ til hamingju með að fá góðar viðtökur hjá kennaranum. það er alltaf gott. var einmitt að fá svoleiðs sjálf, og það gefur manni alltaf gott sjálfstraust. (12.05.05 16:42)
svanhildur: Já það væri algjör skandall að missa af þessu. (12.05.05 16:48)
Hildur Guðný: Úff skil þig vel með júróvisjón, ég verð einmitt úti í New york á sama tíma og það verður ansi skrítið að sjá þetta ekki og vera með í stemmningunni.. Gangi þér vel að vera dugleg grasekkja :) (12.05.05 16:58)
svanhildur: Já Hildur, það verður skrítið fyrir þig að missa af júrúvisjón þó ég vorkenni þér nú ekki mikið þar sem þú færð að sjá U2 tónleika í staðinn! (12.05.05 18:01)
Jóhanna Héðinsdóttir: Hvað sem öllu Júróvisjón líður þá er ég með þér í anda í lokaverkefninu þínu.. finnst ég geta fullyrt að ég viti í hvaða sporum þú stendur um þessar mundir ! hahaha (12.05.05 19:08)
jons: Hehe, hoppa bara í næstu lest og við höldum Paríslenskt EvróvisjónPartý :) (13.05.05 06:25)
svanhildur: Heyrðu, þú segir nokkuð Jón. Ætla að tékka á prísum, annars skiptir auðvitað engu máli hvað þetta kostar þar sem bóndinn er að þéna pening núna og ég fæ hann bara til að bjóða mér :) (13.05.05 07:03)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
Yfir móðuna miklu
Síða í dauðateygjunum? Jólaútilegan 2007 Gleðileg Jól Að eiga erindi Fyrir utan Hamrahlíðina í dag... Nú bar vel í veiði Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|