Miðvikudagur 18. maí

Ég er að mygla

Er búin að eyða meirihluta dagsins í að fylla út umsókn um styrk hjá Franska sendiráðinu. Mikið er þetta leiðinlegt: fylla út eyðublöð, finna alla þessa pappíra sem þeir biðja um, skrifa bréf um mín framtíðarplön og reyna að láta þau líta þannig út að það sé ekki hægt að ganga fram hjá mér við styrkveitinguna...
Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem ég sæki um styrk en mér finnst þetta alltaf jafn erfitt og leiðinlegt. Ekki bætir úr skák að ég fæ alltaf nei :-(
Það hefur því lítið gerst í ritgerðarskrifum í dag enda er ég líka komin með upp í háls af því. Já, ekki mjög skemmtileg færsla í dag, mér leiðist. En það er víst best að fara að hætta því og fara að hlakka til morgundagsins því þá fer ég til Parísar! Vei!!!

- Svanhildur | 17:07
Umræður

signy frænka:

Hæ Svansí frænka.

Rosa gaman að fylgjast með ykkur frænkum á blogginu. Komst að bloggaddressunni þinni á blogginu hennar Söru. Vona að það hafi verið rosalega gaman í Paris um helgina. Gangi þér vel elsku litla frænka mín í umsóknarmálunum um styrkveitinguna, þú stendur þig svo vel að það er EKKI hægt að segja nei og hananú.
Kveðja,
Signý frænka.

(23.05.05 13:28)

svanhildur:

Hæ frænka.
En gaman að fá svona peppandi komment frá þér. Alltaf gaman að fá nýja lesendur, ekki síst lesendur sem nenna að kommenta (þetta eru skilaboð til ykkar hinna).

(23.05.05 13:39)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni