maí 29, 2005

Gærdagurinn

Gærdagurinn var svona líka vel heppnaður. Rölti niður í bæ upp úr hádegi í sól, blíðu og 30 stiga hita. Þegar ég kom á aðalgöngugötu bæjarins mætti mér mótorhjólaskrúðganga, ca. 100 mótórhjól í röð sem ákváðu allt í einu að sýna hvað þau gætu búið til mikinn hávaða. 100 mótorhjól að gera brumm brumm er um það bil það desibilamagn sem þarf til að gera fólk heyrnalaust og til að bjarga hljóðhimnunni minni forðaði ég mér inn í næstu búð. Þaðan kom ég svo út með buxur og bol í poka og það er allt mótorhjólatöffurunum að kenna því ég ætlaði bara að reyna að finna mér sandala. Við Anne vorum svo búnar að mæla okkur mót klukkan 14 og fórum á kaffihús og fengum okkur einn kaldan. Svo hélt leitin að flottum og þægilegum sandölum áfram og sú leit bar á endanum árangur. Svo freistaðist ég inn í eina aðra búð og kom þaðan út með kjól og pils. Ég kom því heim skóm, buxum, bol, pilsi og kjól ríkari og 12000 krónum fátækari. En það er allt í lagi því hann Mundi er búinn að vera að þéna svo vel á Íslandi :-)


Annars þá var ég að heyra í Munda og hann er í Leifstöð að fá sér einn Carlsberg í morgunmat, búinn að fjárfesta í einhverjum svaka iðnaðarmannasíma með myndavél í fríhöfninni. Ég hef aldrei skilið þetta með að fá sér bjór í flugstöðinni áður en maður fer í flug. Maður þarf alltaf að mæta í flug á einhverjum ókristilegum tíma og þá langar mig ekki mikið í brjór. Hef rætt þetta við marga og allir eru ósammála mér, segja að það tilheyri að drekka einn bjór í Leifsstöð áður en lagt sé í hann til útlanda. Ég verð að segja að ég skil þetta ekki alveg.


Svo má ekki gleyma því að hér eru kosningar um stjórnarskrá Evrópusambandsins í dag. Verður spennandi að sjá hvernig þær fara. Hér hefur fólk ekki talað um annað undanfarnar vikur og fólk hefur misjafnar skoðanir á þessu máli. Ég hef nú ekkert verið að setja mig of mikið inn í þetta mál en horfði þó á ákall Chiracs til frönsku þjóðarinnar í sjónvarpinu á fimmtudagskvöldið. Verð nú að játa að mér fannst hann vera mjög sannfærandi, að Frakkar yrðu bara að segja "já" því annars væri Evrópusamstarfið og staða Frakklands innan Evrópusambandsins í uppnámi. Anne hefur svolítið talað um þetta við mig en hún er "já" manneskja og eins og öðrum finnst henni þetta vera mjög mikilvægt mál. Virðist samt líklegt að þetta verði fellt, sennilega aðallega vegna þess að þjóðin er ósátt við ríkisstjórnina og vonast til að hún fari frá ef stjórnarskráin verður ekki samþykkt. Verð að segja að mér finnst nú alveg fáránlegt að segja "nei" ef þetta eru rökin fyrir því. Mér finnst eiginlega svolítið skrítið ef Frakkar hafna stjórnarskránni því hér eru allir svo miklir Evrópusinnar, sem er ekkert skrítið þar sem Frakkar eru jú "kóngarnir" í Evrópusambandinu. En eins og ég sagði áðan þá veit ég lítið um hvað þessi stjórnarskrá fjallar og veit því ekkert hvort ég myndi kjósa "já" eða "nei" ef ég væri Frakki. Jæja, nóg um þetta í bili, þetta kemur allt í ljós í kvöld, fannst ég bara verða að skrifa aðeins um þetta þar sem ég er nú í Frakklandi og allt snýst um þetta núna.

-Svanhildur | 07:08 | Comments (8)

maí 28, 2005

Tóm hamingja

Þá er ég búin að senda niðurlagið á ritgerðinni minni til yfirferðar hjá henni Betu. Alveg frábært að hafa einhvern sem er tilbúinn til að lesa þetta yfir fyrir mig og taka eftir hlutum sem fara framhjá mér. Takk takk Beta mín.


Í tilefni af þessu þá ætla ég að rölta í bæinn og reyna að finna mér góða sandala. Er komin með leið á að þurfa að velja á milli þess að fara í ljóta sandala eða að fara í flotta og koma heim með blöðrur út um allt. Er ég að ætlast til of mikils að vilja fá þægilega og flotta sandala??? Kemur í ljós á eftir. Þegar ég verð svo búin að finna draumaskóna mína má svo vel vera að maður tylli sér á kaffihús og sötri einn kaldann í sólinni.


Já lífið er yndislegt! Og til að toppa þetta allt saman þá er Mundi að koma á morgun og við að fara í ferðalag á mánudaginn sem við eigum meira að segja efni á því ég er búin að spara peninginn sem ég fékk í afmælisgjöf einmitt til að borga bensín á bílinn, tjaldtæði og fleira sem fylgir ferðalögum. Jahá, lífið er svo sannarlega dásamlegt!!!

-Svanhildur | 09:29 | Comments (3)

maí 26, 2005

Þið megið öfunda mig

Sumarið er komið til Frakklands þótt enn sé næturfrost á Íslandi. Það er því tekin klukkutíma pása á hverjum degi og farið út í sólina þessa dagana. Hér má sjá veðrið í Grenoble næstu daga.

-Svanhildur | 08:51 | Comments (7)

maí 25, 2005

Danirnir verða nú að fá bjórinn sinn

Já hvað á maður eiginlega að drekka í vinnunni þegar búið er að setja bann á bjórdrykkju? Er ekki best að hætta bara að vinna ef enginn er bjórinn?
Lesið þessa frétt.

-Svanhildur | 08:10 | Comments (6)

maí 23, 2005

París

Það var alveg æðislegt að eyða nokkru dögum í París, fjarri ritgerðarskrifum. Kom þangað á fimmtudagskvöldið og fór út að borða með Möggu og Tomma. Það var ofsalega gaman að ná að hitta þau aðeins. Við fórum á voða góðan veitingastað, fengum góðan mat og skemmtilegan þjón, sem er nú ekki sjálfgefið í París. Á leiðinni heim (til Jóns og Guðrúnar) með metróinu fékk ég sms frá Munda sem sagði mér að við hefðum ekki komist áfram í Júróvisjon. Ég ætlaði ekki að trúa honum, hélt eins og allir hinir að við hlytum nú alla vega að komast áfram þótt ég væri nú kannski ekki eins bjartsýn og margir aðrir um að við yrðum meðal fimm efstu. En þetta var víst engin lygi og því útséð með Júróvisjonpartý á laugardaginn.


Á föstudeginum kláraði ég umsóknina um styrkinn, sem er nú eiginlega efni í sjálfsævisögu með tilheyrandi monti, og sendi af stað til Íslands. Svo héldum við Jón og Guðrún gott partý um kvöldið. Guðrún fór svo til London á laugardagsmorguninn og við jón vorum ofurlöt og horfðum á eina 17 þætti af Arrested Development og borðuðum snakk og franskar með kokteilsósu (það er nú ekki á hverjum degi sem maður fær kokteilsósu hér í Frakklandi svo þetta var mikil hátíð). Ég tók þó pásu frá þáttunum til að horfa á Júróvisjon þar sem það var nú einu sinni hvatinn að för minni til Parísar. Áður en Jón skutlaði mér á lestarstöðina í gær kláruðum við svo að horfa á fyrstu seríuna, ekki amalegt að ná einni seríu á einum sólarhring!


Það verður því að segjast að heilinn minn fékk góða hvíld um helgina og nú er hann glaður og endurnærður. Ég get því vonandi haldið áfram að misbjóða honum út þessa viku, ekki síst þar sem hann veit að það styttist í næsta frí því næsta mánudag verður lagt upp í vikuferðalag. Er búin að hafa samband við vini okkar í Barcelona sem eru búin að samþykkja að hýsa okur í nokkra daga. Það á nú líka að skoða eitthvað fleira en Barcelona en ferðaáætlun er í býgerð.

-Svanhildur | 13:39 | Comments (3)

maí 18, 2005

Ég er að mygla

Er búin að eyða meirihluta dagsins í að fylla út umsókn um styrk hjá Franska sendiráðinu. Mikið er þetta leiðinlegt: fylla út eyðublöð, finna alla þessa pappíra sem þeir biðja um, skrifa bréf um mín framtíðarplön og reyna að láta þau líta þannig út að það sé ekki hægt að ganga fram hjá mér við styrkveitinguna...
Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem ég sæki um styrk en mér finnst þetta alltaf jafn erfitt og leiðinlegt. Ekki bætir úr skák að ég fæ alltaf nei :-(
Það hefur því lítið gerst í ritgerðarskrifum í dag enda er ég líka komin með upp í háls af því. Já, ekki mjög skemmtileg færsla í dag, mér leiðist. En það er víst best að fara að hætta því og fara að hlakka til morgundagsins því þá fer ég til Parísar! Vei!!!

-Svanhildur | 17:07 | Comments (2)

maí 16, 2005

Þetta er allt að koma

Kominn tími á smá pásu hjá mér núna. Er búin að sitja og horfa á skjáinn í hálftíma án þess að skrifa orð. Annars er búið að ganga bara vel í dag og í gær en svona upp og ofan dagana þar á undan, um það bil ekkert á laugardaginn enda tekið gott djamm á föstudaginn. Samt komið snemma heim og ekki mikið drukkið og því engin þynnka á laugardaginn en samt einhver leti. En ég held samt að þessi ákvörðun að fara til Parísar hafi verið ansi góð því nú stefni ég á að klára sem mest fyrir fimmtudag (helst bara klára allt nema lokaorðin) svo að ég geti bara hvílt heilann aðeins um helgina. Á nú alls ekki mikið eftir núna, er komin með 44 síður plús 16 blaðsíðna hljóðritun sem fer í fylgiskjöl. Á bara eftir síðasta kaflann og lokaorðin og miðað við það sem krakkarnir sem ég hitti úr skólanum á föstudagskvöldið sögðu þá virðist ég nú bara vera vel á veg komin í samanburði við hina. Svo er ég búin að fá eina einkunn og hún er svona líka góð að ég er bara handviss um að ég komist áfram. Jæja, nóg komið af sjálfumgleði í bili.


En ég hef svo sem ekki um mikið annað að tala en þessa ritgerðarsmíð mína. Hmmmm, Það var mjög gott að skreppa aðeins út á föstudaginn og hitta fólk. Anne vinkona mín ætlar svo að koma í mat til mín annað kvöld en annars verður bara setið við skriftir þangað til á fimmtudag. Mikið hlakka ég til að fara til Parísar og leika mér í nokkra daga!

-Svanhildur | 14:51 | Comments (2)

maí 13, 2005

Allt að gerast

Já nú er ég bara búin að smella mér á einn lestarmiða til Parísar næstu helgi. Er ekki bara á leiðinni í Júróvísjónpartý með honum Jóni (Guðrún verður víst fjarri góðu gamni í London) heldur næ ég líka að hitta Möggu aðeins sem verður í París með honum Tomma sínum. Stefnir því allt í að næsta helgi verði öll hin besta!

-Svanhildur | 12:09 | Comments (2)

Vorboðinn ljúfi, jah eða ekki bara

Haldiði ekki að moskítófluga hafi laumað sér inn um gluggann hjá mér í gær og ákveðið að eyða með mér nóttinni svo ég yrði ekki einmana án Munda. Hún hefði nú alveg mátt sleppa því því nú er ég með útbitinn handlegg (reyndar bara tvö bit en það er tveimur of mikið!).Það er greinilega kominn tími til að setja batterí í moskítófæluna!


Annars var ég að skoða verð á lestarmiða til Parísar til að koma mér í Júróvisjónpartý hjá jóni og Guðrúnu og sé að ég get farið þangað fyrir 6000 kall sem er nú alveg á sig leggjandi fyrir gott júróvisjónpartý í góðum félagsskap. En ákvað að kíkja aðeins á dagskránna hjá sjónvarpsstöðvunum til að vera viss um að þetta verði sýnt á sömu stöð og í fyrra og mér sýnist að keppni fimmtudagskvöldins sé bara ekki sýnd þar sem Frakkar þurfa ekki að taka þátt í forkeppninni. Þetta eru auðvitað hræðilegar fréttir og ég bara trúi því ekki að Frakkarnir ætli að bregðast mér svona á örlagastundu. Ætla því að hlaupa út í næsta Tabac (búðir sem eru hérna út um allt og selja blöð og tóbak) og smella mér á einn TV Guide.

-Svanhildur | 07:37 | Comments (2)

maí 12, 2005

Farið að styttast í annan endann.

Nú er maður loksins farinn að sjá fyrir endann á þessari önn. Skilaði þremur ritgerðum í morgun og þá er ekkert eftir nema að ljúka við lokaverkefnið. Stefni á að nýta grasekkjutímann vel og klára fyrstu útgáfu fyrir 30. maí en þá á ég tíma hjá leiðbeinandanum mínum. Henni leist mjög vel á það sem ég var búin með þegar ég hitti hana síðast svo að ég er bara að vona að hún verði jafn ánægð með seinni hlutann og gefi mér háa einkunn svo ég fái að halda áfram næstu önn. Það er því fátt annað á dagskránni næstu daga en að sitja við tölvuna og skrifa. Ég ætla nú samt að kíkja aðeins út annað kvöld því það er víst búið að plana hitting hjá bekknum á bar hérna í bænum. Verður ábyggilega gaman að hittast aðeins og slaka á saman enda allir sveittir við ritgerðarskrif um þessar mundir. Er að gera mér vonir um að einhver í hópnum sé Eurovision aðdáandi og tilbúinn að bjóða mér í heimsókn á fimmtudaginn til að horfa á hana Selmu, og svo aftur á laugardagskvöldið. Tel samt frekar ólíklegt að það heppnist þar sem enginn horfir á þetta hér nema gamlar konur. En ég má ekki til þess hugsa að missa af þessu (næ sko ekki stöðinni sem sýnir keppnina). Er búin að gera mér grein fyrir því að sem Íslnedingur þá get ég bara ekki látið það koma fyrir, það væri nú næstum því bara eins og að halda ekki upp á gamlárskvöld. Auk þess er ég viss um að við eigum eftir að standa okkur vel í ár (erum við ekki alltaf á leiðinni að vinna þessa keppni???) og vil nú ekki missa af því að sjá okkur vinna!

-Svanhildur | 11:15 | Comments (7)

maí 11, 2005

...úff - matin ....dure.... (útleggst: djöfull agalega er erfitt að vakna svona snemma maður!!!)

eins og alltaf þegar maður er að leggja af stað í ferðalag þá er maður vaknaður, - siðferðislega allt of snemma með kuldahroll og stírur.


en hér verður ekki til setu boðið þetta skiptið, en ekki veit ég nú svosem hvað ég er að álpast heim því mér skildist að þar ætti ekki að sitja heldur!!
:-)

ég segi bara eins og í laginu: "farvel frans" - en sjáumst innan tíðar þó.


Mundi í Grenoble over and out

-mundi | 03:56 | Comments (5)

maí 10, 2005

ALLT AÐ GERAST !!!!

já - aldeilis allt að gerast hérna í grenoble í dag.


þannig var nefnilega að ég fékk símtal um miðjan dag frá Gunnari Erni málarameistara í Reykjavík. en Gunni er sá sem ég hef unnið hjá þar undanfarið þegar ég hef verið heima á klaka. hann er víst að drukkna í verkefnum þessa dagana og annar ekki öllu og bað mig vinsamlegast að koma með næsta flugi og reyna að klóra í bakkann með sér!!!


okkur samdist svo um að það stæði - ég kæmi með næsta flugi, en færi hingað út aftur til Grenoble þann 29. maí til að fara í ferðalag sem við höfðum huxað okkur að fara í. ganga frá þeim málum sem ganga þarf frá og fara síðan til danmerkur með Volfgang, og þaðan heim.


því er ég að fara að pakka - ég á lest í fyrramálið kl 7.13 til Parísar og verð svo ef allt gengur að óskum í höfuðborginni seinnipartinn á morgun...


sjáumst


-mundi | 16:58 | Comments (1)

maí 9, 2005

mánudagspælingar

við komum af fjöllum í gærkvöldi. ég kom reyndar alveg af fjöllum líka í morgun þegar klukkan hringdi en það er nú alvanalegt.


morgninum eyddi ég í að vega og meta þá kosti sem eru í stöðunni varðandi það að koma mér og volfgang heim á klaka í júní, það mál er nú í nefnd og niðurstaðna er að vænta innan tíðar.


annars fórum við áðan og fengum okkur að borða hérna á "Le Grésivaudan" sem er staður uþb. 50m frá húsinu okkar. þeir stóla inn á hádegisumferð þar og þar getur maður fengið ágætan mat fyrir lítið. mér fannst það nú skondið að ég fór heim og náði mér í peysu til að sitja í við átið, þrátt fyrir að hér séu nú um 20 gráður - hvað er að gerast!!!!


annars það helst héðan að svanhildi gengur vel með lokaverkefnið - en hún segir nú kannski bara frá því sjálf hérna einhvern daginn, og það að ég hafði samband við Jóns hinn Paríslenska í gær og við erum að spá og spekúlera með að fara á Formúlu 1 keppninga í Monakó eftir 2 vikur. helsti þröskuldurinn sýnist mér verða miðaverð, því heldur er maður nú seinn með að hugsa um þetta, en miðarnir sem eru í boði eru margir hverjir á 250-550 evrur. Það er núheldur meira en við höfðum hugsað okkur! þetta kemur í ljós, ég er ekkert of bjartsýnn en kannski verður maður heppinn - hver veit....


grenoble over....

-mundi | 11:37 | Comments (2)

maí 4, 2005

kveðjur

í gærkvöldi fórum við út að borða með gestunum okkar á stað hérna í miðbænum. við fengum alveg magnaðan mat, kornhænur og nautasteik, sjávarréttasalöt og andalifrarpaté, créme brulée og chartreuse-ís. þvílík veisla og allir glaðir.


í morgun kvöddum við svo Magna og Hörpu en þau héldu áfram ferðalagi sínu og tóku lest til Parísar.


deginum í dag er ég að mestu búinn að eyða á dekkjaverkstæðum því að í fyrradag tókst mér að keyra á lítinn stein hérna upp í fjöllum og eyðileggja eitt dekk. það kostaði það að ég þurfti að kaupa minnst 2 ný til að hafa þetta nú samstætt. sem ég og gerði. þegar upp var staðið var þetta nú kannski ekki svo slæmt því að gömlu framdekkin voru orðin ansi slitin, enda búin að fá að rúlla um 60þ síðan í danmörku þar sem ég keypti þau um árið. nú er volfgang nýskóaður og klár í slaginn á ný, enda gott því að sem áður er ég á leið til fjalla og óska ykkur góðrar helgar.

-mundi | 17:12 | Comments (1)

maí 2, 2005

Harpa og Magni

tn_DSC00942.JPG

mánudagur og frábær helgi við annecy vatnið að baki. við fengum lánað tjald og skelltum okkur þangað með 2 tjöld grill og yfirleitt flest það sem þurfti annað en bát. en sommelierinn og sjómaðurinn magni leigði svoleiðis græju svo við "rérum saman" aftur eitthvað sem við höfum ekki gert lengi. því var róið um vatnið í 31 stigs hita og allir hér með bændaför, rauð enni og hlýraför í dag.


svo erum við bara að fara út í sólina og sæluna að skoða eitthvað meira.

Grenoble over and out

-mundi | 09:39 | Comments (5)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni