rigning í grennd, og hér
því fer sem fer. hér er brostið á með loðdýradembu, hér rignir hundum og köttum. það er víst það albesta fyrir gróðurinn.
í svona veðri verður maður latur og nennir ekki að gera mikið, ég druslaðist samt í bæinn með þvottinn í morgun. vafraði milli bókabúða á meðan löðrið freyddi. kom heim með eina litla kilju sem ég ætla að kynna mér það sem eftir lifir dags.
góða helgi
Ziggy Flotti:
Var þetta nokkuð Halldór kiljan??
(09.04.05 11:18)