Miðvikudagur 13. apríl

Nú er Mundi staddur á brautarpallinum að bíða eftir Stebba sem ætti að renna í hlað eftir örfáar mínútur. Því miður virðist hann ekki ætla að sleppa við álögin sem veðurguðirnir virðast hafa lagt á alla okkar gesti: spáir bara rigningu eins langt og spáin nær. Á þó að vera fínt á morgun svo að þeir félagarnir ná alla vega einni fjallgöngu. Ég þarf að fara í skólann á morgun og er það síðasti kennsludagurinn. Þetta er þó langt frá því að vera búið: endalaust mikið af stórum verkefnaskilum framundan og ég finn hvað ég verð pínu stressaðri með hverjum deginum sem líður, á eftir að gera allt of mikið og pressa á manni að standa sig vel til að komast áfram. Það á þó að taka frí frá lærdómnum þarnæstu helgi og fara í heimsókn til Heiðu í Genf. Ég hlakka mikið til!

- Svanhildur | 17:40
Umræður




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni