Fimmtudagur 7. apríl

meinhægt

það heppnaðist bara vel snæðingurinn í gær. jón var að vísu tímabundinn og gat ekki staldrað lengi við, en við hin gerðum fondúinu góð skil.


annars meinlætis dagur hérna hjá mér, mér líst verst á ef að - veðurspáin - á eftir að ganga eftir. ég trúi því bara ekki að það eigi að fara að koma næturfrost eftir ermalaust tímabil. :)


en skítt með það, myndirnar sem ég lofaði eru komnar á sinn stað í albúmið. smellið -> hér <- til að komast þangað á svipstundu.

- mundi | 13:14
Umræður

svanhildur:

Þú gleymdir að segja frá því að við fengum dýrindis Nóa páskaegg sem við erum að háma í okkur núna :) Það fór því aldrei svo að maður upplifði páskaeggjalaust ár :)
Fyrir málsháttaunnendur þá var málshátturinn okkar: Kapp er best með forsjá

(07.04.05 13:37)

Ziggy Flotti:

Myndin af þér við borðið í Lyon með bjórinn Mundi var eitthvað kunnugleg :-)
Ég fékk um daginn: Óheppnir eru ríkir því þeir munu aldrei upplifa mestu sælu sem til er, að borga síðustu afborgunina!!!

(07.04.05 15:47)

Torfi:

Myndir - 12 sitg

(08.04.05 09:09)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni