Þriðjudagur 26. apríl

Læri læri tækifæri

Ég er búin að sitja sveitt við tölvuna frá því við komum heim frá Genf og er bara búin að vera ansi dugleg. Í gærmorgun var eitt skilaverkefni klárað og það bættust svo tvær blaðsíður við lokaritgerðina mína. Svo var ég að lesa yfir ritgerð fyrir mömmu eins og ég geri öðru hvoru þegar hún er að skila einhverjum stórum verkefnum og hef alltaf gaman að. Finnst bara verst að geta ekki sent henni verkefnin mín til yfirferðar áður en ég skila þeim. Það er svo gott að fá smá álit og leiðréttingar frá einhverjum sem kemur "ferskur" að verkinu. Þannig að ef einhver þarna úti hefur áhuga á að lesa mjög áhugaverða ritgerð um framburðarvillur hjá frönskumælandi Íslendingum þá endilega látið mig vita og ég sendi ykkur meistaraverkið mitt um hæl með tölvupósti. Ég get nú ímyndað mér fátt meira spennandi á sunnudagskvöldi en að lesa eins og eina fræðiritgerð á frönsku og leiðrétta málfræði- og stafsetningarvillur og koma með hugmyndir að betra orðalagi : )


Annars er planið fyrir daginn að halda áfram skrifunum (nú þegar komin ein ný síða!) því að ég er að fara að hitta leiðbeinandann minn í fyrramálið. Verð nú að viðurkenna að ég er pínu stressuð yfir því, hef ekkert hitt hana frá því við ræddum beinagrindina að ritgerðinni. Vona bara að henni lítist vel á þetta og láti mig ekki breyta allt of miklu. Svo er Anne vinkona mín að koma hingað á eftir til að hjálpa mér að greina framburðarvillurnar. Ég er búin að eyða mörgum dögum í að hlusta á það sem ég tók upp í jólafríinu og hljóðrita allt saman en jafnvel þótt ég sé búin að hlusta aftur og aftur á þetta allt saman þá er ég ekki alltaf alveg viss hvort það sé borið rétt fram eða ekki og því nauðsynlegt að fá smá aðstoð frá Frakka.


Jæja, þá vitið þið flest sennilega meira en þið höfðuð áhuga á að vita um þessa ritgerðarsmíði mína en vonandi hefur þessi pistill gefið einhverjum ákafa löngun til að fá að vita meira og lesa yfir hjá mér : )

- Svanhildur | 09:46
Umræður

sara:

þetta hljómar mjög spennandi, og ég vildi óska að ég gæti hjálpað. en ég er í sömu aðstöðu svo sem, engin heima sem skilur það sem ég er að skrifa og geta því ekki farið yfir. það er nefninlega svo nauðsynlegt að fá álit þeirra sem ekki koma nálægt þessu. ég því miður skil ekki nógu mikið í frönsku til þess að geta hjálpað.
en gangi þér vel.
knúsar

(26.04.05 13:39)

svanhildur:

Takk fyrir að finnast þetta hljóma spennandi og fyrir að mundu vilja hjálpa ef þú gætir og fyrir að óska mér góðs gengis.
Ég segi það sama með dönskuna, ég gæti svo sem vel lesið yfir hjá þér en veit ekki hvort ég kæmi að miklum notum við að breyta orðalagi og svoleiðis.

(26.04.05 14:34)

Beta:

Ég get lesið yfir ef þú vilt????? Etv um helgina ???? Þetta hljómar nefnilega ansi spennandi :D

(26.04.05 20:29)

svanhildur:

í alvöru!!! Það væri ofsalega vel þegið.
En ég er að fara að hitta leiðbeinandann eftir klukkutíma og ég ætla að sjá hvað hún gerir, hvort hún tekur það sem ég er komin með með sér heim til að leiðrétta og fara yfir eða hvort hún svarar bara mínum spurningum. Ef hún fer með þetta heim að lesa þá fæ ég þig til að fara yfir næstu útgáfu áður en ég læt hana sjá hana svo að hún verði nokkuð villulaus.
Læt þig vita hvað gerist og þúsund þakkir.

(27.04.05 05:46)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni