Sunnudagur 3. apríl

Góð helgi

tn_DSC06941.JPG

þetta hefur verið viðburðarík og skemmtileg helgi. í gær fórum við til Lyon í borgarferð. við tókum lest um morguninn, reyndar ekki þá sem við óskuðum en henni var aflýst vegna verkfalls. við fengum lest aðeins seinna og vorum í Lyon rétt fyrir hádegið. svo eyddum við deginum í svona týpískan túrisma, löbbuðum um og skoðuðum og fengum okkur að borða. virkilega fínn dagur. skoðuðum meðal annars Basilique Saint-Jean en hana má sjá hérna á neðstu myndinni.


í dag skelltum við okkur svo upp á eitt fjall. það er nú alveg nauðsynlegt að fara á eitt þannig við og við. þetta skiptið þurfti nú ekki mikla líkamlega þjáningu við að komast í útsýnið því vegur liggur því sem næst alla leið upp. síðustu metrana upp að virkinu Fort Saint-Eynard sem er á toppnum fer maður svo fótgangandi.


ég ætla að reyna að setja inn myndir í albúmið seinni hluta vikunnar, því að í fyrramálið verður farið til fjalla....

- mundi | 18:38
Umræður

Torfi:

virkar ?

(05.04.05 08:07)

Torfi:

tattarrata - svarkefnið farið að virka (var ekki hægt að svara í gær)

Hér kemur svarið sem ég hugðist setja inn í gærdag:


Eyvindur þú ert !

Búið

(05.04.05 08:09)

baddy:

baddy
hæ hæ og takk fyrir kveðjuna í gær;)

(05.04.05 12:21)

svanhildur:

Hlaut að vera að eitthvað væri að kommentakerfinu í gær. Ég beið allan daginn eftir skemmtilegu kommenti frá þér Torfi.

(05.04.05 15:55)

Ziggy Flotti:

Já þetta var bara ekki að virka blessað kerfið. Menn fengu bara meldingu um að menn hefðu ekki leyfi til að accessa serverinn!!!

(06.04.05 10:18)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni