Föstudagur 1. apríl

Fögnuður

Það er sko aldeilis búið að fagna heimkomu bóndans sem og bóludauðans. Við vorum að koma heim eftir að hafa farið út að borða með Daníel og Kelit. Fórum á stað sem sérhæfir sig í réttum frá Máritaníu (segir maður það ekki annars á íslensku, eyjan heitir Ile Maurice á frönsku) og fengum alveg æðislega góðan mat. En það var nú bara byrjunin á góðu kvöldi því eftir matinn skelltum við okkur í tívolí og fórum í alveg brjálað tæki. Svo var tekinn einn bjór á heimleiðinni, bara setið úti og spjallað í sumarblíðunni.


En skemmtuninni er langt frá því að vera lokið. Á morgun er stefnan tekin á Lyon svo það er víst best að fara að koma sér í háttinn til vera ferskur í fyrramálið og leggja snemma af stað.

- Svanhildur | 22:08
Umræður




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni