apríl 29, 2005fréttaskeytiallt í gúddí. stopp. 28 gráður og næs. stopp. gestir í lest og allt klárt. stopp. áhugasamir um tónlist ættu að kíkja á tónlist.is, þeir eru að gefa tónlist núna í 3 daga. stopp. hér eru semsagt allir þræðir rauðir. stopp. góða helgi. stopp.
-mundi | 14:51
| Comments (3)
apríl 28, 2005MeindýrÉg er búin að vera dugleg við það undafarna tvo mánuði að skella mér út að skokka á morgnanna, alveg frábært um leið og maður er búinn að drífa sig af stað og þó að fitunni líði nú enn aðeins of vel á líkamanum mínum þá finn ég hvað þolið hefur aukist og ég er ekki frá því að ég hafi líka meiri orku á daginn en áður. En ég ætlaði nú ekki að tala um þetta heldur ætlaði ég að segja ykkur frá skokkferð minni í morgun. Ég hleyp alltaf smá hring hérna meðfram ánni og á einum stað er brú yfir ánna og göngustígurinn liggur undir brúnna meðfram ánni. Haldið ekki að þar sem ég er að hlaupa undir brúnna verði á vegi mínum risastór og loðin dauð rotta. Frekar ógeðslegt og ég tók stóran sveig til að koma ekki nálægt henni og spretti aðeins úr spori.
-Svanhildur | 10:25
| Comments (8)
apríl 26, 2005AAAAAAAAAARRRRRRRRRRRRRRRRRGGGHaldiði að blessuð tölvan hafi ekki tekið upp á því að vera með einhver leiðindi og ákveðið að frjósa. Þar með hvarf hálf blaðsíða. ÓÞOLANDI!
-Svanhildur | 11:34
| Comments (0)
Læri læri tækifæriÉg er búin að sitja sveitt við tölvuna frá því við komum heim frá Genf og er bara búin að vera ansi dugleg. Í gærmorgun var eitt skilaverkefni klárað og það bættust svo tvær blaðsíður við lokaritgerðina mína. Svo var ég að lesa yfir ritgerð fyrir mömmu eins og ég geri öðru hvoru þegar hún er að skila einhverjum stórum verkefnum og hef alltaf gaman að. Finnst bara verst að geta ekki sent henni verkefnin mín til yfirferðar áður en ég skila þeim. Það er svo gott að fá smá álit og leiðréttingar frá einhverjum sem kemur "ferskur" að verkinu. Þannig að ef einhver þarna úti hefur áhuga á að lesa mjög áhugaverða ritgerð um framburðarvillur hjá frönskumælandi Íslendingum þá endilega látið mig vita og ég sendi ykkur meistaraverkið mitt um hæl með tölvupósti. Ég get nú ímyndað mér fátt meira spennandi á sunnudagskvöldi en að lesa eins og eina fræðiritgerð á frönsku og leiðrétta málfræði- og stafsetningarvillur og koma með hugmyndir að betra orðalagi : )
-Svanhildur | 09:46
| Comments (4)
apríl 25, 2005fin des vacancesþá er alvaran tekin við á ný eftir gott grín undanfarnar 2 vikur. ég ætla að snara mér til fjalla innan stundar og vera þar fram að næstu helgi við allskonar snúninga. og munið að öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir...
-mundi | 08:51
| Comments (2)
apríl 24, 2005GENF
-mundi | 18:06
| Comments (1)
apríl 21, 2005GLEÐILEGT SUMARJá sumardagurinn fyrsti virðist vera á fleiri stöðum en á Íslandi því hér er sólin loksins farin að skína aftur, enda gesturinn farinn.
-Svanhildur | 07:38
| Comments (3)
apríl 20, 2005komur og brottfarirþá er stefán floginn til heimalandsins. þessi vika var allt of fljót að líða og eins og alltaf þegar fólk kemur þá var mikið gert og haft gaman af.
-mundi | 16:26
| Comments (0)
apríl 17, 2005ég skil hvorki upp né niður...
-mundi | 15:06
| Comments (3)
apríl 16, 2005apríl 15, 2005Mont Rachais (1046m)
-mundi | 21:01
| Comments (0)
apríl 14, 2005Chamechaude (2082m)
ég lofa myndaseríu í albúmið innan tíðar frá þessari fínu för.
-mundi | 15:39
| Comments (4)
apríl 13, 2005Nú er Mundi staddur á brautarpallinum að bíða eftir Stebba sem ætti að renna í hlað eftir örfáar mínútur. Því miður virðist hann ekki ætla að sleppa við álögin sem veðurguðirnir virðast hafa lagt á alla okkar gesti: spáir bara rigningu eins langt og spáin nær. Á þó að vera fínt á morgun svo að þeir félagarnir ná alla vega einni fjallgöngu. Ég þarf að fara í skólann á morgun og er það síðasti kennsludagurinn. Þetta er þó langt frá því að vera búið: endalaust mikið af stórum verkefnaskilum framundan og ég finn hvað ég verð pínu stressaðri með hverjum deginum sem líður, á eftir að gera allt of mikið og pressa á manni að standa sig vel til að komast áfram. Það á þó að taka frí frá lærdómnum þarnæstu helgi og fara í heimsókn til Heiðu í Genf. Ég hlakka mikið til!
-Svanhildur | 17:40
| Comments (0)
apríl 12, 2005Olía og síaVolfgang fékk glænýja smurolíu og síu í gær. ég lagði honum upp á kantsteininn hérna fyrir utan, skreið undir og tappaði af honum gamla sullinu og setti á hann nýja og fína olíu. það hefur ekki farið af honum brosið síðan blessuðum. þegar ég var nú búinn að þessu þá leit ég í smurbókina og sá að það er akkúrat ár síðan ég skipti um olíu síðast, sem hljómar nú sem hreinasti trassaskapur, en hins vegar voru kílómetrarnir aðeins 7000! það er nú ekki mikill akstur á einu ári. úr þessu þarf að bæta snarlega.
-mundi | 10:53
| Comments (4)
apríl 11, 2005grátthelgin sem var að líða var grár hversdaxleiki. í raun gerðist ekkert alla helgina. veðrið snérist úr sumri í vetur og mann langaði í raun ekkert út að gera eitthvað. það snjóaði í fjöllin og að mér skilst bara helling á skíðasvæðunum. en nú er sólin farin að skína á ný, þó svo að það vanti talsvert upp á að hitastigið sé orðið það sama og fyrir þetta hret.
-mundi | 10:13
| Comments (1)
apríl 8, 2005rigning í grennd, og hérþví fer sem fer. hér er brostið á með loðdýradembu, hér rignir hundum og köttum. það er víst það albesta fyrir gróðurinn.
-mundi | 13:10
| Comments (1)
apríl 7, 2005meinhægtþað heppnaðist bara vel snæðingurinn í gær. jón var að vísu tímabundinn og gat ekki staldrað lengi við, en við hin gerðum fondúinu góð skil.
-mundi | 13:14
| Comments (3)
apríl 6, 2005éta það er það sem þeir geta - vinna það er minnastutt var fjalladvölin í þetta skiptið og er það vel.... það kemur til af því að í kvöld ætla Georges hinn fjölþjóðlegi og Jóns hinn paríslenski að koma í kveldmat. ég hef grun um að það verði kveikt undir fondúpotti í tilefni af því og tekin fram flaska af eðalhvítvíni frá næsta héraði, Savoie. myndirnar sem ég lofaði verða því að bíða morgundax eða föstudax - fylgist með.
-mundi | 15:20
| Comments (2)
apríl 3, 2005Góð helgiþetta hefur verið viðburðarík og skemmtileg helgi. í gær fórum við til Lyon í borgarferð. við tókum lest um morguninn, reyndar ekki þá sem við óskuðum en henni var aflýst vegna verkfalls. við fengum lest aðeins seinna og vorum í Lyon rétt fyrir hádegið. svo eyddum við deginum í svona týpískan túrisma, löbbuðum um og skoðuðum og fengum okkur að borða. virkilega fínn dagur. skoðuðum meðal annars Basilique Saint-Jean en hana má sjá hérna á neðstu myndinni.
-mundi | 18:38
| Comments (5)
apríl 1, 2005FögnuðurÞað er sko aldeilis búið að fagna heimkomu bóndans sem og bóludauðans. Við vorum að koma heim eftir að hafa farið út að borða með Daníel og Kelit. Fórum á stað sem sérhæfir sig í réttum frá Máritaníu (segir maður það ekki annars á íslensku, eyjan heitir Ile Maurice á frönsku) og fengum alveg æðislega góðan mat. En það var nú bara byrjunin á góðu kvöldi því eftir matinn skelltum við okkur í tívolí og fórum í alveg brjálað tæki. Svo var tekinn einn bjór á heimleiðinni, bara setið úti og spjallað í sumarblíðunni.
-Svanhildur | 22:08
| Comments (0)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
fréttaskeyti
Meindýr AAAAAAAAAARRRRRRRRRRRRRRRRRGGG Læri læri tækifæri fin des vacances GENF GLEÐILEGT SUMAR komur og brottfarir ég skil hvorki upp né niður... ...kunnugleg stytta... Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|