Laugardagur 12. mars

sumar og sól

Á meðan hafís ræðst með ofurhraða að Íslandi ákvað vorið að koma með jafn miklum skelli hingað til Grenoble. Alveg fáránlegt að hér var allt á kafi í snjó á mánudaginn en hann hvarf svo allur á þriðjudaginn og búin að vera sól og hiti síðan og á víst bara að hitna og hitna og fara upp í 20 gráður í næstu viku. Það er nú alveg frábært að komast í vorfíling svona snemma og ég er sko alveg komin í hann strax. Leit út um gluggann í morgun og pírði augun framan í glampandi sólina, skellti mér í sumarkjól, sandala og peysu og rölti í bæinn. Þó það séu bara 12 gráður er vel heitt í sólinni og búið að setja borð fyrir framan öll kaffihús og veitingastaði og borðin voru þétt setin af fólki sem gladdist yfir góða veðrinu og sötraði kaffi eða bjór. Mér finnst tilheyra að borða ber og ávexti í góðu veðri og fór því á grænmetismarkaðinn og keypti mér jarðarber og ferskan ananas, namminamm.


Já það styttist í sumarið sem þýðir líka það þetta skólaár er farið að styttast all verulega í annan endann og aðeins of mikið sem ég á eftir að gera. Best að fara að taka á því núna.

- Svanhildur | 14:17
Umræður

Björk:

Það snjóar hérna núna!!!

(13.03.05 17:12)

sara:

hérna líka!!

(13.03.05 19:25)

svanhildur:

Já það vill nú þannig til að þið búið í sama landinu :)

(14.03.05 10:06)

jons:

Jámm, gargandi snilldin, það er spáð 18°C í París í vikunni :D

(14.03.05 13:22)

svanhildur:

Já þetta er algjört æði, svo kemst maður í svo gott sumarskap í svona veðri. Ég er bara að fara yfirum af hamingju :)

(14.03.05 13:42)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni