Fimmtudagur 31. mars

Skemmtilegar fréttir: heimferð og bóludauði

Það helsta í fréttum héðan frá Grenoble er að það er komin dagstning á heimferð hjá mér sem verður 21. júní. Enn er óljóst hvernig Mundi fer heim en það verður sennilega um svipað leyti. Aðrar skemmtilegar fréttir eru að ég er loksins að losna við bólu sem ég fékk á hökuna í lok janúar. Var farin að halda að hún væri bara komin til að vera og var farin að hafa verulegar áhyggjur af þessu og þegar ég leit í spegil sá ég ekkert annað en ljótu stóru bóluna mína sem vildi bara alls ekki fara. En hún virðist loksins hafa fengið nóg af mér og er það mikið gleðiefni og spurning um að fagna því þessa helgi. Helgin er annars alveg óráðin og veltur sennilega á því hvort maður ákveður að vera samviskusamur eða kærulaus hvað verður gert.

- Svanhildur | 09:26
Umræður

Torfi:

Kemur bóndinn ekki af fjalli um helgina...

... slíku ber að fagna - óháð önnum.

(31.03.05 11:20)

svanhildur:

Jú einmitt, hann kemur á morgun og að sjálfsögðu mun ég taka fagnandi á móti honum og þá verða fagnaðarfundir og kannski við förum eitthvað að fagna þessu öllu saman.

(31.03.05 11:27)

Ziggy Flotti:

Þið öll mínus bólan :-)

(31.03.05 17:01)

Jóhanna Héðinsdóttir:

Ég mæli með kæruleysi.. þetta er einfaldlega tíminn til að vera kærulaus ! Vor í lofti og maður á allt gott skilið eftir erfiðan vetur ;) tíhí hí
kv. Jóhanna H.

(01.04.05 08:03)

jons:

Til hamingju með bóluna!

(01.04.05 08:21)

Hildur:

Úff úff- ég ætlaði bara ekki að trúa fréttinni um bóluna, hélt þetta væri aprílgabb en sá svo að þetta var skrifað í gær svo þetta hljóta að vera hrein sannindi! Óska ég þér innilega til hamingju með þennan áfanga og mæli með því selebreitir ærlega :)

(01.04.05 09:29)

svanhildur:

Já þetta með bóluna er alveg dagsatt og eiginlega nauðsynlegt að fagna dauða hennar. Held það verði jafnvel gert með því að kíkja eitthvað út úr bænum á morgun og njóta góða veðursins :)

(01.04.05 10:50)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni