Mánudagur 21. mars

þvottadagur

í dag er þannig dagur. það hefur safnast upp þvottur og ég er að spá í að skella mér með hann í þvottahúsið í dag meðan að svanhildur er í skólanum. ég verð nú að viðurkenna, að af heimilisstörfum þá er þvottur nú það sem ég mundi sakna minnst - en það þarf að gera þetta eins og annað.


í dag ættu Rafn og Margrét svo að vakna í Kópavogi ef að allt hefur gengið eftir með flug í gær. gamla settið er nefnilega á íslandi í fyrsta skipti í ein 4 ár held ég bara. ég vona bara að þau eigi góða daga fyrir höndum, en mér skilst að það eigi að gera nokkuð víðreist.


að lokum þá langar mig að tilkynna, að ég var að setja skype-ið inn aftur. ég tók það út fyrir nokkru síðan en nú er það komið inn á ný. notendanafnið okkar er mundi74

- mundi | 08:29
Umræður

Ziggy Flotti:

Persónulega hef ég meira gaman af Skype en þvotti!!!

(21.03.05 08:44)

mundi:

úff já þvottur sýgur maður - og svo er maður eitthvað svo latur af stað þegar maður þarf að rölta með allt hafurtaskið í þvottahús og horfa á löður eins og hafnfirðingur í 2 tíma.

(21.03.05 08:47)

jons:

Já, þetta er líka svo mikið "athöfn" þegar maður þarf að fara og þvo! Samúð!

(21.03.05 09:38)

dagný:

vá.. og ég sem er varla að nenna að fara niður á inniskónum og henda í vél.. ef ég þyrfti að labba út úr húsi eða tala nú ekki um hanga niðri og bíða eftir vélinni.. það væri bara.. usssssssss...

(21.03.05 21:20)

baddy:

mér finnst sérstaklega gaman þegar þvotturinn er orðinn þurr og þarf að ganga frá honum, þá finnst mér eins og ég hafi eignast fullt af nýjum fötum..... já það er gott að geta glaðst yfir litlu;)

(22.03.05 11:48)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni