Fimmtudagur 17. mars

grenoble í gær og í dag

tn_DSC06755.JPG

það viðraði prýðilega á okkur á skíðunum í gær. eiginlega var eins mikil sól og hiti og hugsast getur í skíðaferð. það gerir veruna í fjöllunum virkilega ánægjulega en það hefur mun verri áhrif á skíðafærið sem varð helst til slepjulegt upp úr hádegi.


svo enduðum við daginn með því að gera "fondue" hérna í nýja pottinum okkar og í þetta skiptið varð það að mat, - ekki ostalími...!


- mannlífið er heldur betur að kvikna, við settumst út á kaffihúsi í hádeginu í dag til að fá okkur snarl og máttum bara bíða töluverða stund eftir borði, enda ekki nema von 23 stig og glampandi sól og allir að keppast við að njóta þess. með þessu áframhaldi fer maður nú að dusta rykið af tjaldinu og þeim gír öllum. kunnugir segja þó að það eigi eftir að koma páskahret - það virðist vera til hérna líka. neyttu á meðan nefinu stendur, segir máltækið og er ekki bara málið að gera það...

- mundi | 16:20
Umræður

Jóhanna Héðinsdóttir:

er að passa að slefa ekki í lyklaborðið hjá mér.. !
kv. jóhanna

(17.03.05 18:35)

Eva:

Það er alveg ljóst að gestir eru stórhættulegur þegar kemur að góðviðri.. best að halda gestum í góðri fjarlægð svo að sólin haldi áfram að skína á ykkur ;-)

(17.03.05 21:11)

svanhildur:

Já það virðist því miður vera nokkur til í þessu hjá þér. Alla vega hafa ansi margir gestir verið óheppnir með veður hjá okkur. En mér finnst það nú verra fyrir gestina sjálfa heldur en okkur, við getum alveg þolað smá leiðnlegt veður vitandi að það mun batna um leið og gestirnir fara :)

(18.03.05 06:32)

jons:

sama hér, foreldrar mínir voru í heimsókn í viku, fóru einmitt heim á sama tíma og þið Eva. Frost og læti allan tímann!

Mundi ertu að klikka á Ostalíminu?

(18.03.05 08:18)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni