Þriðjudagur 8. mars

Gleðilegan kvennadag

Í tilefni dagsins ætla ég að segja ykkur frá hugleiðingum mínum um kvennabaráttu og kynjamisrétti á Íslandi. Þeir sem ekki hafa áhuga á þessu málefni geta því hætt að lesa núna en að sjálfsögðu er þetta málefni sem allir ættu að hafa skoðun á og velta fyrir sér.


Ég var að heyra í fréttum áðan að launamisrétti er mest á Íslandi miðað við öll Evrópusambandslöndin. Þar erum við að tala um 25 lönd og teljum við flest þeirra (ef ekki öll) vera vanþróaðri en Ísland. Þau standa okkur þó öll framar í þessu máli. Ég verð nú að viðurkenna að þetta kom mér ansi mikið á óvart vitandi það að íslenskar konur eru almennt duglegar og ákveðnar og vita hvað þær vilja. Svo er maður auðvitað þvílíkt stoltur af því að koma frá landinu sem kaus fyrst allra konu til embættis forseta í lýðræðislegum kosningum. En sennileg hefur bara allt staðnað síðustu 20 árin hjá okkur á meðan kynjabundinn launamismunur hefur minnkað í öðrum löndum og þau farið fram úr okkur. Það er ljóst að einhverju þarf að breyta og án þess að hafa neinar undralausnir þá vil ég samt fá að segja að ég er komin með nóg af strákum og karlmönnum sem segja að þetta sé bara konum sjálfum að kenna því þær séu of hræddar við að biðja um launahækkanir. Það er ljóst að þetta er miklu stærra vandamál en það. Svo fer líka ofsalega í taugarnar á mér að það er aldrei hægt að tala um þetta mál við stráka/karlmenn, þá er maður bara algjör kvenremba sem vill misrétti í hina áttina. Ég spyr mig líka oft að því af hverju strákum/karlmönnum virðist vera nokkuð sama um þennan mun og jafnvel neita því að hann sé til og, eins og ég sagði áðan, ef þeir viðurkenna að hann sé til þá er það bara konunum sjálfum að kenna.


Vildi bara aðeins dreypa á þessu efni í tilefni dagsins til að vekja fólk til umhugsunar og reyna að fá fleiri stráka til að styðja launabaráttu kvenna en í dag virðist þetta eingöngu vera mál kvenna. Endilega látið ykkar skoðun heyrast. Það getur vel verið að ég sé að ganga of langt í að gagnrýna strákana að einhverra mati en þetta er samt sú tilfinning sem ég hef fyrir þessu máli. Ef þið viljið leiðrétta eða skamma mig þá ekki vera hrædd við það.

- Svanhildur | 18:27
Umræður

Heiða í Sviss:

góður pistill svanhildur:) ég varð einmitt pirruð þegar ég var að hlusta á útvarpið á leiðinni í skólann og á einni stöðinni hérna voru 2 konur í viðtali og önnur sagði að hún vildi nú að það væru allir dagar "V-'dagar" en ekki svona einn dagur! Mér finnst nú bara frábært að það sé þó alla veganna einn svona dagur þó að við myndum allar/(allir) vilja hafa mun fleiri daga!! Mér finnst nú samt ennþá konur vera enn "hræddari" við að biðja um launahækkanir og er alveg hægt að lesa kannanir um það að konum finnist þær t.d. bara eiga að vinna starfið en ekkert vera að berjast fyrir launahækkunum o.fl. Envonandi nær okkar kynslóð að breyta þessu:) úff ekkret smá löng athugasemd hérna hjá mér hehe;)

(08.03.05 20:59)

Jón Gunnar:

Sæl. Þetta virðist nú samt oft vera tendensían hjá kvenþjóðinni að verða annsi hatrammar þegar þessi mál ber á góma og orð eins og kvenremba og rauðsokka skjóta upp kollinum. Nú er ég ekki að segja að þessi ágætlega skrifaða grein þín eða hugleiðing sé af þeim toga en sem dæmi get ég nefnt það að ég á frænku sem er ábyggilega foringi í rauðsokku klúbbnum og alltaf þegar byrjað er að ræða þessi mál þá springur hún strax og fer að úthrópa okkur karlrembusvínin sem ættum nú bara að hafa okkur hæga og hugsa okkar gang o.sv.frv. Þetta veldur því að enginn nennir að hlusta á hana eða það sem hún hefur fram að færa og menn afskrifa allann hennar málflutning sem rauðsokku og kvenrembu þvaður og hreinlega hlægja bara....."ja, og spil nu igen!" Oftar en ekki held ég að þetta geti verið vandamál hjá þeim ágætu konum sem brenna fyrir jafnréttismálum almennt. Þær hreinlega missa sig strax og verða reiðar.

Annars hef ég ekki hundsvit á málinu. Ég sakna bara gömlu kvennaskólanna þó ég hafi aldrei kynnst þeim af eigin raun en þeirra tími hefur eflaust verið magnaður! Hugsiði ykkur strákar......nýjum árgöngum af fallegu kvenfólki bókstaflega dælt út í sveitir landsins ár eftir ár! Og stelpur.....þarna biðu fjallmyndarlegir bændasynirnir á Land Róverunum og Gibsononum, tilbúnir að taka skvísurnar með á rúntinn.
Þvílík sæla og rómantík.

Svo datt ykkur í hug stelpur að vilja allt í einu fara á þing og eyðileggja þetta allt??

Hvað var eiginlega málið?

Jah, maður spyr sig? :o)

Kveðja til France frá Öldugötu 61, 101 R.vík.

(08.03.05 23:24)

Torfi:

... ég hefði mætt á GAZ67 bifreið í húsmæðraskólann - alveg klárt !!!

... en... varðandi jafnlaunaréttindabaráttuna þá held ég að því miður hafi Jón Gunnar nokkuð til síns máls... aðgerðirnar hjá, sérstaklega eldri, kvennréttindakonum eru svo öfgakenndar að þær verða hálfgerð markleysa.

... femínistafélagið er tildæmis bara í tómu bulli finnst mér.

... sjálfur vil ég JAFNrétti!

... samkvæmt skilgreiningu er eitthvað sem kallað er "jákvæð" mismunum ekki til !

... búið.

(09.03.05 10:53)

Jón Gunnar:

Já Torfi, óneitanlega rúmgóður GAZ-inn.
Vil líka jafnrétti þannig að það sé á hreinu.

Benjamínsson...

.....out!

(09.03.05 12:30)

Margrét:

Blessuð!
Þín var saknað í kjaftaklúbbi í gærkvöldi, þessi umræða hefði aldeilis átt vel við þar, ekkert nema kjaftaglaðar tjellingar með fjall af kræsingum!
Kv. Margrét

(09.03.05 16:21)

svanhildur:

Oohhh, leiðinlegt að hafa misst af því. Veit það hefur verið gaman hjá ykkur. Veit fátt skemmtilegra en að vera í kjaftaklúbbi með kjaftaglöðum kellingum og fjall af kræsingum :)

(09.03.05 16:37)

jons:

Þetta þykir mér mjög undarlegt. Ég leitaði að þessarri frétt sem þú heyrðir á ruv.is og fann hana ekki, svo ég get ekki sagt neitt um hana. Ég hef hins vegar aldrei heirt neitt líkt þessu. Svanhildur, nafna þín, var einmitt að gera skýrslu um launamismun kvenna á Íslandi og ef ég man rétt þá var niðurstaðan að meðalmismunur á launum karla og kvenna á Íslandi, fyrir sömu stör, þegar búið er að taka inn vinnutíma og starfsreynslu sé 13%. Þeir sem eru að henda fram tölum eins og 30-40% eru annað hvort að tala um einstaka dæmi, eða að það er ekki búið að leiðrétta m.v. starfsaldur og vinnutíma.

Þetta er augljóslega 13% of mikill munur. En ég á mjög bágt með að trúa að þetta sé verra en í öllum löndum ESB. (Hef samt ekkert fyrir mér í því og þætti áhugavert að heyra þessa frétt). Við búum nú í Frakklandi og höfum lesið um t.d. hvernig hlutirnir eru í Þýskalandi. Ísland er ljósárum á undan öllum þessum löndum hvað varðar t.d. jafnrétti. Í þessum löndum er ennþá oft hugsanahátturinn "konan á heimilinu". Ég varð eiginlega bara orðlaus þegar ég las þetta því ég er stoltur af því hvað Ísland er framarlega á þessu sviði. Atvinnuþáttaka kvenna er með því mesta í heiminum og ég hef gaman að segja frá hlutum eins og feðraorlofi, fólk gapir hér þegar ég segi því frá því. Meira að segja konum um fertugt hér finnst ekkert eðlilegra en að konan mín eldi alltaf ofan í mig og sjái um heimilið. Þetta eru konur með Doktorsgráður í eðlifræði og verkfræði!

Ég fann hins vegar frétt frá 8. mars (www.ruv.is - sjónvarp) þar sem rætt var við kvenréttindakonu á tíræðisaldri, hún var einn af upprunalegu stofnendum kvennalistans. Hún sagði að vandamálið væri að konur eru konum verstar. Konur þyrftu að standa saman á þann hátt sem karlar gera og sýna þeim sem komast áfram vinsamleg viðhorf.

Ég veit að það pirrar þig að skuldinni sé að hluta skellt á konur sjálfar en ég er sannfærður að það er hluti af vandamálinu. Hinn hlutinn er líka hugarfarsbreyting hjá körlum, og þá sérstaklega þeim eldri, en það eru einmitt þeir sem eru oft í aðstöðu til að velja stjórnendur og laun.

Málið er bara að svona hlutir taka tíma, ég get vel tekið undir að í byrjun var þörf á svokallaðri "jákvæðri mismunun". Í dag er þetta í mínum huga nákvæmlega ekkert annað en mismunun og ekkert jákvætt við það. Að ráða einstakling í eitthvað starf fram yfir annan, bara vegna þess af hvaða kyni hann er, er hreinlega rangt. Þetta var nauðsyn í byrjun til að koma hlutunum af stað, en í dag er þetta ekki réttlætanlegt. Hluti af vandamálinu verður alltaf hugarfarsbreyting og það tekur tíma.

(10.03.05 10:18)

svanhildur:

Vá Jón. Held þetta sé lengsta komment sem hefur verið skrifað á síðuna. En það er gaman að sjá að strákar hafa líka skoðun á þessu máli og ég verð nú að segja að þú rökstyður mál þitt vel og ég er nú bara alveg sammála öllu sem þú segir.
Það er alveg rétt að launamisrétti er ekki bæði konum og körlum að kenna og ætlaði ég ekki með skrifum mínum að skella ábyrgðinni eingöngu á karlana. Ég var meira að tala um hvað það fer oft í taugarnar á mér þegar sumir karlar vilja ekki viðurkenna að þetta sé neitt vandamál.
En að sjálfsögðu er þetta mál alls þjóðfélagsins sem tekur tíma að breyta en það þýðir samt ekki að það eigi bara ekki að tala um það og bíða eftir að þetta breytist að sjálfu sér.
Ég geri mé rlíka grein fyrir því að íslenskar konur eiga mun auðveldara með að velja bæði barneignir og starfsframa og þurfa ekki að velja á milli eins og konur í mörgum öðrum löndum. Og ég veit líka að íslenskir karlar taka virkari þátt í heimilisverkunum en karlar flestra annarra landa. Þetta er auðvitað frábært og ég vil minna á að ég var eingöngu að tala um launamisrétti.

(10.03.05 10:50)

jons:

Heyrðu það er nú ekki leiðinlegt að eiga lengsta commentið á síðunni. Gaman að því :D

(10.03.05 15:15)

gretar rafn:

ég hætti að lesa um leið og tækifærið bauðst. hef enga trú á þessu málefni og mun áfram berjast fyrir sterkri stöðu íslenskra karla.

mundi hefuru enga stjórn á þessu.

(10.03.05 20:30)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni