Fimmtudagur 3. mars

Ferðadagur

tn_DSC06663.JPG


í dag var ferðadagur í frans. hann varð nú lengri en til stóð. í morgun kl 7 var lagt af stað til Pont du Gard til að skoða þá mögnuðu áveitu. ég er nú búinn að koma þarna all oft og það er alltaf jafn hressandi að komast þarna niður til "midi".


eftir skoðun og skógargöngu var svo haldið til Avignon að skoða þann snotra gamla bæ og höll páfa. að sjálfsögðu var keypt Côtes du Rhône þar, það er held ég hvergi betra að versla góð vín fyrir lítinn pening eins og þarna í languedoc.

enn var haldið af stað og rennt til Arles og tekinn túr um þann bæ. þegar við vorum þar byrjaði að rigna svo um munaði og fengum við næstum eldingu í ennið, en sluppum þó... en ljósastaurinn við hliðina á okkur varð fyrir smá tjóni þegar ljósaperan splúndraðist með neistaflugi yfir gangstéttina.


svo var haldið af stað heim. eitthvað klikkaði nú samt GPS-inn í höfði bílstjórans því einhversstaðar gleymdist að beygja út af hraðbrautinni og því enduðum við í útjaðri Lyon okkur algerlega að óvörum. því lengdist túrinn aðeins og við vorum ekki komin hingað til grenoble fyrr en um hálf níu í kvöld, eftir að hafa farið yfir heiðina milli grenoble og lyon í snjókomu og byl eftir stuttermabolsveður niður við miðjarðarhafið. algóður dagur og 660 km rúlluðust inn á reynslumæli volfgangs í dag.

- mundi | 21:36
Umræður

Jón Gunnar:

Heyrðu Margrét....sonur þinn drekkur! Vissirðu af þessum fjára? Að hugsa sér.....litli strákurinn þinn, bara byrjaður að dettíða, djamma og djúsa!

Við Baldur heimsóttum einmitt þennan bæ fyrir tveimur árum og kíktum þá einmitt á "Nýju Höll Páfans" Eittvað hefur hann nú verið slakur í viðhaldinu á höllinni sinni uppá síðkastið. Þyrfti nú aðeins að sletta smá ímúr hér og þar. Mundur, ert þú nokkuð rosalega bissí? Sendu kallinum meil og bjóddu honum starfskrafta þína. Bíddu, ég er með meilið hanns einhversstaðar.............já einmitt, hér er það: djonnpolpóp@thevatikanrocks.org

Hilsen,

Jón.

(04.03.05 12:11)

Heiða í Sviss:

þið eruð ótrúleg! finst alveg meiriháttar hvað þið eruð dugleg að ferðast og skoða ykkur um:)

(04.03.05 12:36)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni