Þriðjudagur 22. mars

Bobby

Bobby bara kominn með íslenskan ríkisborgararétt. Þetta er nú allt meira ruglið. Við vísum útlendingum úr landi hægri vinstri en svo er ekkert mál að bjóða einhverjum klikkuðum sérvitringi að koma hingað og gefa honum bara ríkisborgararétt. Æ, nenni ekki að röfla meira um þetta mál, þið megið bara vita að mér finnst þetta allt fáránlegt.


Annars er það nú að frétta að ég er komin með vinnu í sumar. Verð að vinna hjá ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar. Átti nú frekar von á því að fá vinnu þar en var að bíða eftir staðfestingu sem nú er komin. Var líka búin að sækja um til vara að vinna í Skaftafelli með henni Söru frænku sem hefði ábyggilega verið gaman líka en ég var samt spenntari fyrir að vinna í borginni þar sem maður er nú ekki síst að fara heim til að geta verið nálægt fjölskyldu og vinum og þið eruð nú langflest á höfuðborgarsvæðinu. Svo er ég líka mjög spennt fyrir að prufa að vinna á ferðaskrifstofu. Já ég er bara farin að hlakka til sumarsins!

- Svanhildur | 06:34
Umræður

jons:

Til ofnbakaðrar jólaskinku með vinnuna!

(22.03.05 08:43)

Hildur:

Til lukku lukku, hlakka til að fá ykkur í bæinn! það lítur allt út fyrir að ég verði í túni sólarinnar að vinna í sumar svo við getum farið í helling af sundferðum, fjallgöngum o.fl eftir vinnu saman :)

(22.03.05 10:37)

Torfi:

það er enganveginn nógu mikið af klikkuðum skákmönnum á íslandi...

... ég vil bobby á kalakkann og svo spasky (eða hvað hann nú heitir) líka - bara allt heila djöfuls klabbið og svo mæta allir á útitaflið við lækjargötu!!

... til lukku með vinnuna.

(22.03.05 10:46)

baddy:

til hamingju með vinnuna, já það er eins gott að sólin skíni í höfuðborginni í sumar, hér verður gleðin;)

(22.03.05 11:45)

Óli Helgi:

Já, ég er sammála þér með Bobby. Svo tel ég mig nú vita að USA eiga eftir að fá hann framseldan, það bara þýðir ekkert að vera með e-ð vesen gagnvart USA.
En til lukku með vinnuna.

(23.03.05 11:58)

svanhildur:

Takk Takk Takk

(23.03.05 12:18)

Björk:

TIl lukku með vinnuna. Hitti einmitt Söru frænku þína í Skaftafelli síðasta sumar. Hef hitt hana í gegnum þig og spjallaði lítillega við hana. Gæti samt trúað því að það sé æðislegt að vinna þar.

(24.03.05 10:06)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni