Laugardagur 26. mars

Gleðilega páska

tn_DSC06805.JPG


allt í sóma.


ég er búinn að síma svolítið til Íslands í dag og það virðist vera allt gott að frétta af öllum. foreldrarnir saddir og sáttir á Sauðárkróki, vinirnir þreyttir en glaðir eftir leiktækjadaga á norðurlandinu og vinnuveitandinn sæll í sumarbústað á klaustri. svona eiga páskar að vera. sjálf erum við að fara að hitta góðan vin - hinn katalónski Roger, sambýlingur okkar frá fyrra ári, er í bænum og við ætlum að hitta hann eftir örfáar mínútur.


við óskum öllum vinum og vandamönnum gleðilegra páska.

- mundi | 21:44
Umræður

Hildur:

Gleðilega páska :)

(26.03.05 23:00)

sara:

gleðilega páska, og til hamingju með vinnuna svanhildur.
vona þið hafið haft það gott um páskana. ég koma einmitt aftur út til DK í gær, það var rosa gott að komast heim í nokkra daga, hitta familiuna og vini. ætlið þið heim í ferminguna hans gauta?
herru, svanhildur, hún eva frænka varð reykjavíkur og íslandsmeistari í freestyle 13-16 ára um daginn, þú getur séð dansinn hennar inn á www.folk.is/ballerinan og ýta á FREESTYLE og þá geturðu séð vinningsdansinn hennar.
kveðja, sara

(28.03.05 10:05)

svanhildur:

Nei við getum því miður ekki farið heim í ferminguna en já ég var búin að frétta af þessum frábæra árangri frænku minnar og var mjög stolt af henni. Kíki strax á dansinn hennar.

(28.03.05 19:42)

svanhildur:

Ég var að enda við að horfa á dansinn hennar Evu. Ótrúlega flott hjá henni og vakti hjá mér skemmtilegar minningar :)

(28.03.05 19:53)

sara:

æði, já dansinn hennar er ótrúlega flottur. samanbland af mörgun stílum.
leiðinlegt að þið komist ekki heim í ferminguna, en farið þið eitthvað heim í sumar?

(29.03.05 13:38)

svanhildur:

Bíddu, þú varst að enda við að óska mér til hamingju með sumarvinnuna mína á Íslandi þannig að það er nú nokkuð ljóst að það verður farið heim í sumar er það ekki???

Ég kem heim 21. júní og Mundi einhvern tíman um svipað leyti. Sí jú ðen!!!

(29.03.05 17:36)

sara:

hihihi... me stupid með gullfiskaminni

knús

(30.03.05 10:58)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni