mars 31, 2005

Skemmtilegar fréttir: heimferð og bóludauði

Það helsta í fréttum héðan frá Grenoble er að það er komin dagstning á heimferð hjá mér sem verður 21. júní. Enn er óljóst hvernig Mundi fer heim en það verður sennilega um svipað leyti. Aðrar skemmtilegar fréttir eru að ég er loksins að losna við bólu sem ég fékk á hökuna í lok janúar. Var farin að halda að hún væri bara komin til að vera og var farin að hafa verulegar áhyggjur af þessu og þegar ég leit í spegil sá ég ekkert annað en ljótu stóru bóluna mína sem vildi bara alls ekki fara. En hún virðist loksins hafa fengið nóg af mér og er það mikið gleðiefni og spurning um að fagna því þessa helgi. Helgin er annars alveg óráðin og veltur sennilega á því hvort maður ákveður að vera samviskusamur eða kærulaus hvað verður gert.

-Svanhildur | 09:26 | Comments (7)

mars 28, 2005

Páskahérinn

tn_DSC06852.JPG


þarna má sjá svanhildi með páskahérnann sinn. mér datt í hug að gefa henni svoleiðis því mér fannst hann svo sniðugur. en ég fæ nú sennilega að njóta hans sjálfur þar sem hann er víst ekki frá nóa síríus. mig grunaði það nú svosem *hóst* :-)


í gær small sumartíminn á okkur hérna í evrópu eins og frakkarnir kalla það. nútímaskilgreining þeirra á evrópu er nefnilega: löndin sem eru í EU. ég rek þetta nú ofan í þá hægri vinstri og segi þeim það að þó að þessi klúbbur þeirra sé eflaust ágætur fyrir þá, þá breyti það nú ekki aldagömlum skilgreiningum á heimsálfum !! ;-)

- en jæja....


að páskum loknum, í fyrramálið semsagt, held ég til fjalla eina ferðina enn og verð ekki meðal manna fyrr en á föstudag á ný. bið að heilsa ykkur að sinni.

-mundi | 20:12 | Comments (3)

mars 26, 2005

Gleðilega páska

tn_DSC06805.JPG


allt í sóma.


ég er búinn að síma svolítið til Íslands í dag og það virðist vera allt gott að frétta af öllum. foreldrarnir saddir og sáttir á Sauðárkróki, vinirnir þreyttir en glaðir eftir leiktækjadaga á norðurlandinu og vinnuveitandinn sæll í sumarbústað á klaustri. svona eiga páskar að vera. sjálf erum við að fara að hitta góðan vin - hinn katalónski Roger, sambýlingur okkar frá fyrra ári, er í bænum og við ætlum að hitta hann eftir örfáar mínútur.


við óskum öllum vinum og vandamönnum gleðilegra páska.

-mundi | 21:44 | Comments (7)

mars 25, 2005

Göngutúr

tn_DSC06820.JPG

í dag var svanhildur ansi mikið að læra eins og undanfarið. ég fékk því þá hugmynd að ganga á eins og eitt fjall. ég gekk á fjallið sem þið sem lesið þessa síðu hafið oft séð, þetta sem er hérna fyrir utan gluggann okkar. það leynir lúmskt á sér að komast þangað á toppinn, þó ekki sé hann nú mjög hár (1046m), en þegar honum er náð þá er útsýnið líka verðlaun. stórfínt. set hér inn 3 myndir frá deginum.


núna sturta

-mundi | 18:04 | Comments (0)

inni í bugðunni á ánni er hverfið okkar Ile verte

tn_DSC06810.JPG

-mundi | 18:03 | Comments (1)

eðla í sólbaði

tn_DSC06826.JPG

-mundi | 18:02 | Comments (0)

mars 24, 2005

Hákarl og brennivín

Nú er ég komin heim úr skólanum en hér er ekki gefið neitt frí um páskana nema á annan í páskum. En þar sem ég er ekki í skólanum á föstudögum má segja að ég sé komin í fjögurra daga páskafrí.


Á þriðjudagskvöldið var haldið sameiginlegt partý fyrir bekkinn minn og útlendingana sem eru að læra frönsku í útlendingadeildinni. Allir áttu að koma með eitthvað að borða eða drekka frá sínu heimalandi eða sínu héraði og að sjálfsögðu mættum við Mundi með hákarl og brennivín. Mamma var nú búin að spá því fyrirfram að þetta myndi bara skapa mér óvinsældir, öllum myndi þykja þetta ógeðslegt og missa matarlystina af hákarlsfýlunni. En það var nú öðru nær. Öllum fannst þvílíkt spennandi að fá að smakka hákarl og allir voru mjög stoltir af sér að hafa prufað og vildu vita allt um hvernig þetta væri matreitt og hvort þetta væri mikið borðað og svo framvegis. Hákarlinn og brennivínið sköpuðu því hinar skemmtilegustu umræður og allir voru að spyrja alla "ertu búin að smakka hákarlinn?" og það var enn verið að tala um hann í skólanum í morgun. Ég met það því þannig að ég hafi þvert á spádóm mömmu skapað mér miklar vinsældir hí hí. En þetta var sem sagt hið skemmtilegasta kvöld en gærdagurinn að sama skapi leiðinlegur. Gallinn við að borða og drekka svona þegar allir leggja í púkk er að maður drekkur einn bjór, eitt glas af hvítvíni, eitt glas af rauðvíni, smá brennivín og smá romm og smá pastis... Maginn og hausinn voru ekki mjög ánægð með það í gær.

-Svanhildur | 10:18 | Comments (0)

mars 22, 2005

Bobby

Bobby bara kominn með íslenskan ríkisborgararétt. Þetta er nú allt meira ruglið. Við vísum útlendingum úr landi hægri vinstri en svo er ekkert mál að bjóða einhverjum klikkuðum sérvitringi að koma hingað og gefa honum bara ríkisborgararétt. Æ, nenni ekki að röfla meira um þetta mál, þið megið bara vita að mér finnst þetta allt fáránlegt.


Annars er það nú að frétta að ég er komin með vinnu í sumar. Verð að vinna hjá ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar. Átti nú frekar von á því að fá vinnu þar en var að bíða eftir staðfestingu sem nú er komin. Var líka búin að sækja um til vara að vinna í Skaftafelli með henni Söru frænku sem hefði ábyggilega verið gaman líka en ég var samt spenntari fyrir að vinna í borginni þar sem maður er nú ekki síst að fara heim til að geta verið nálægt fjölskyldu og vinum og þið eruð nú langflest á höfuðborgarsvæðinu. Svo er ég líka mjög spennt fyrir að prufa að vinna á ferðaskrifstofu. Já ég er bara farin að hlakka til sumarsins!

-Svanhildur | 06:34 | Comments (7)

mars 21, 2005

þvottadagur

í dag er þannig dagur. það hefur safnast upp þvottur og ég er að spá í að skella mér með hann í þvottahúsið í dag meðan að svanhildur er í skólanum. ég verð nú að viðurkenna, að af heimilisstörfum þá er þvottur nú það sem ég mundi sakna minnst - en það þarf að gera þetta eins og annað.


í dag ættu Rafn og Margrét svo að vakna í Kópavogi ef að allt hefur gengið eftir með flug í gær. gamla settið er nefnilega á íslandi í fyrsta skipti í ein 4 ár held ég bara. ég vona bara að þau eigi góða daga fyrir höndum, en mér skilst að það eigi að gera nokkuð víðreist.


að lokum þá langar mig að tilkynna, að ég var að setja skype-ið inn aftur. ég tók það út fyrir nokkru síðan en nú er það komið inn á ný. notendanafnið okkar er mundi74

-mundi | 08:29 | Comments (5)

mars 20, 2005

sunnudagur - mynd úr morgunsól

tn_DSC06767.JPG


þá er maður kominn til baka í klefann sinn í Grenoble. Sól og blíða einkenndi þessa útilegu. þetta var letigerðin af slíkri ferð - ekki mikið aðhafst annað en að liggja í sólbaði og grilla svo á kvöldin og spila. "mission brókarfar" varð söggsess, og einnig náðist að fara aðeins til fjalla því að við keyrðum fjallveginn um Chartreuse fjallgarðinn heim í dag. sól, fjöll, grill og strönd. ljúfa lífið maður minn...

-mundi | 15:49 | Comments (2)

mars 18, 2005

Aix les bains

það tók ekki langan tíma að dusta rykið af útilegugræjunum. það var gert eldsnöggt núna í morgun. nú er flest allt að verða komið í bílinn og brottför áætluð kl 11.00 að staðartíma. áfangastaður - Lac du Bourget -


góða helgi


-mundi | 09:30 | Comments (2)

mars 17, 2005

grenoble í gær og í dag

tn_DSC06755.JPG

það viðraði prýðilega á okkur á skíðunum í gær. eiginlega var eins mikil sól og hiti og hugsast getur í skíðaferð. það gerir veruna í fjöllunum virkilega ánægjulega en það hefur mun verri áhrif á skíðafærið sem varð helst til slepjulegt upp úr hádegi.


svo enduðum við daginn með því að gera "fondue" hérna í nýja pottinum okkar og í þetta skiptið varð það að mat, - ekki ostalími...!


- mannlífið er heldur betur að kvikna, við settumst út á kaffihúsi í hádeginu í dag til að fá okkur snarl og máttum bara bíða töluverða stund eftir borði, enda ekki nema von 23 stig og glampandi sól og allir að keppast við að njóta þess. með þessu áframhaldi fer maður nú að dusta rykið af tjaldinu og þeim gír öllum. kunnugir segja þó að það eigi eftir að koma páskahret - það virðist vera til hérna líka. neyttu á meðan nefinu stendur, segir máltækið og er ekki bara málið að gera það...

-mundi | 16:20 | Comments (4)

mars 16, 2005

sól

á slíkum degi sem þessum er fátt annað í stöðunni að gera en að fara á skíði


njótið dagsins

-mundi | 06:57 | Comments (3)

mars 15, 2005

hmmmm....

fyrir ykkur sem voruð að leita að dúnúlpunni og rúðusköfunni í morgun langar mig að benda ykkur á -þetta-


merkilegt hvað árstíðirnar koma hratt hér suðurfrá, haustið hefur komið á einni helgi í bæði skiptin okkar hérna og nú ætlar vorið að feta í þau fótspor. ætli maður rölti ekki bara í bæinn og fari á kaffihús í dag.


ég náði því að sofa í næstum 12 tíma í nótt - var farinn að skulda svefn eftir átökin undanfarið - annars hljóðlátt og rólegt hér í borg í dag

-mundi | 11:19 | Comments (6)

mars 13, 2005

þreyttur

kæru lesendur kallinn er kominn af fjalli. svaðatörn að baki og mun snyrilegra um að litast á heimili Gonordhjónanna nú en síðastliðiðn 25 ár. já þar var nefnilega síðast málað árið 1980 og sótandi arininn hefur logað síðan. jesús minn, það mátti olíugrunna allt klabbið áður en nokkur málning festist á því. sprungurnar í veggjunum voru sumar líka svo stórar að það mátti hreinlega skella karmi og hurð í þær.


þar sem frúin geðþekka var í noregi í heimsókn hjá dótturinni þá vorum við bara tveir þarna þetta skiptið ég og gonni, kallinn notaði tækifærið og kynnti mig fyrir nýju frönsku eðalvíni á hverju kvöldi. það var alveg magnað að fá svoleiðis með örbylguréttunum sem frúin hafði skilið eftir. hún hafði nefnilega eldað fyrir alla vikuna, sett í töpperverið og svo í ísskápinn áður en hún yfirgaf.


já og vorboðinn ljúfi roðamaurinn er kominn á kreik.


grenoble over and out

-mundi | 19:49 | Comments (3)

mars 12, 2005

sumar og sól

Á meðan hafís ræðst með ofurhraða að Íslandi ákvað vorið að koma með jafn miklum skelli hingað til Grenoble. Alveg fáránlegt að hér var allt á kafi í snjó á mánudaginn en hann hvarf svo allur á þriðjudaginn og búin að vera sól og hiti síðan og á víst bara að hitna og hitna og fara upp í 20 gráður í næstu viku. Það er nú alveg frábært að komast í vorfíling svona snemma og ég er sko alveg komin í hann strax. Leit út um gluggann í morgun og pírði augun framan í glampandi sólina, skellti mér í sumarkjól, sandala og peysu og rölti í bæinn. Þó það séu bara 12 gráður er vel heitt í sólinni og búið að setja borð fyrir framan öll kaffihús og veitingastaði og borðin voru þétt setin af fólki sem gladdist yfir góða veðrinu og sötraði kaffi eða bjór. Mér finnst tilheyra að borða ber og ávexti í góðu veðri og fór því á grænmetismarkaðinn og keypti mér jarðarber og ferskan ananas, namminamm.


Já það styttist í sumarið sem þýðir líka það þetta skólaár er farið að styttast all verulega í annan endann og aðeins of mikið sem ég á eftir að gera. Best að fara að taka á því núna.

-Svanhildur | 14:17 | Comments (5)

mars 11, 2005

Síðustu dagar hafa að mestu farið í lærdóm og stefnir í að það verði lítið litið upp frá tölvuskjánum næstu tvo mánuði. Alve endalaust mikið af verkefnum og svo má ekki gleyma blessuðu ritgerðinni sem mun þó sennilega verða að sitja aðeins á hakanum næstu vikurnar. Það er því lítið markvert að frétta af mér.


Ég kíkti þó á hádegistónleika í fyrradag en nú er djasshátíð í Grenoble og mikið af tónleikum í boði og sumir þeirra eru án aðgangseyris. Það var einmitt þannig með þessa tónleika sem ég fór á og því mjög mikið af fólki. Tónleikarnir voru í litlum sal inni í FNAC (sem er fyrir þá sem ekki þekkja verslun sem selur rafmagnstæki, geisladiska og bækur) og ansi heitt þar inni. Svo byrjuðu tónleikarnir og fram kom einn maður með selló sem spilaði eigin verk sem voru, svo ekki sé meira sagt, mjög nútímaleg. Það var augljóst að þessi tónlistarmaður var mjög fær en þessi verk hans voru nú mjög misáhugaverð. En það var samt gaman að brjóta aðeins upp daginn með því að kíkja á tónleika og ég vildi benda ykkur sem búið í Reykjavík á að á morgun eru tónleikar eða sýning á Nasa sem mig langar mikið að fara á. Þetta er franskur fjöllistahópur sem búið er að tala töluvert um á rás2 og hljómar mjög spennandi. Hvet því alla sem hafa lausan tíma á morgun til að fara á Nasa á morgun klukkan 5. Það er frítt inn og því tilvalið að skella sér.


En nóg um það, fyrir utan lærdóm og tónleikaferðir þá hef ég verið að hjálpa stráknum á efri hæðinni með heimalærdóminn og í gær bauð mamman mér að borða með þeim kvöldmat. Það var mjög gaman að fá að borða góðan franskan mat með franskri fjölskyldu og var þetta bara hið besta kvöld. Þetta er ofsalega fínt fólk, bæði foreldrarnir og strákarnir sem eru 12 og 14 ára (ég er að hjálpa yngri stráknum) og það spunnust skemmtilegar umræður við matarborðið sem allir tóku þátt í. Það kom mér hins vegar á óvart þegar yngri strákurinn var sendur í rúmið klukkan níu og sá eldri hálftíma seinna og báðir fóru beint í háttinn án þess að segja múkk.

-Svanhildur | 08:28 | Comments (0)

mars 8, 2005

Gleðilegan kvennadag

Í tilefni dagsins ætla ég að segja ykkur frá hugleiðingum mínum um kvennabaráttu og kynjamisrétti á Íslandi. Þeir sem ekki hafa áhuga á þessu málefni geta því hætt að lesa núna en að sjálfsögðu er þetta málefni sem allir ættu að hafa skoðun á og velta fyrir sér.


Ég var að heyra í fréttum áðan að launamisrétti er mest á Íslandi miðað við öll Evrópusambandslöndin. Þar erum við að tala um 25 lönd og teljum við flest þeirra (ef ekki öll) vera vanþróaðri en Ísland. Þau standa okkur þó öll framar í þessu máli. Ég verð nú að viðurkenna að þetta kom mér ansi mikið á óvart vitandi það að íslenskar konur eru almennt duglegar og ákveðnar og vita hvað þær vilja. Svo er maður auðvitað þvílíkt stoltur af því að koma frá landinu sem kaus fyrst allra konu til embættis forseta í lýðræðislegum kosningum. En sennileg hefur bara allt staðnað síðustu 20 árin hjá okkur á meðan kynjabundinn launamismunur hefur minnkað í öðrum löndum og þau farið fram úr okkur. Það er ljóst að einhverju þarf að breyta og án þess að hafa neinar undralausnir þá vil ég samt fá að segja að ég er komin með nóg af strákum og karlmönnum sem segja að þetta sé bara konum sjálfum að kenna því þær séu of hræddar við að biðja um launahækkanir. Það er ljóst að þetta er miklu stærra vandamál en það. Svo fer líka ofsalega í taugarnar á mér að það er aldrei hægt að tala um þetta mál við stráka/karlmenn, þá er maður bara algjör kvenremba sem vill misrétti í hina áttina. Ég spyr mig líka oft að því af hverju strákum/karlmönnum virðist vera nokkuð sama um þennan mun og jafnvel neita því að hann sé til og, eins og ég sagði áðan, ef þeir viðurkenna að hann sé til þá er það bara konunum sjálfum að kenna.


Vildi bara aðeins dreypa á þessu efni í tilefni dagsins til að vekja fólk til umhugsunar og reyna að fá fleiri stráka til að styðja launabaráttu kvenna en í dag virðist þetta eingöngu vera mál kvenna. Endilega látið ykkar skoðun heyrast. Það getur vel verið að ég sé að ganga of langt í að gagnrýna strákana að einhverra mati en þetta er samt sú tilfinning sem ég hef fyrir þessu máli. Ef þið viljið leiðrétta eða skamma mig þá ekki vera hrædd við það.

-Svanhildur | 18:27 | Comments (10)

mars 7, 2005

gólfið okkar

deginum í grenoble var eytt við lagfæringar á gólfi. hérna hafa flísarnar verið að losna upp af gólfinu ein af annarri og í síðustu viku versnaði þetta mikið, svo að ekki varð lengur hjá því komist að rífa upp laga og bæta.


ferðalangarnir sem ég sagði ykkur frá í morgun komust heilu og höldnu til síns heima en það var víst alls ekki átakalaust. lestakerfið var bara alls ekki að virka hér í dag - en ég á nú von á því að fyrir áhugasama komi stutt ferðasaga á atgangnum um þetta mál á morgun.


á morgun held ég svo eitt skiptið enn til fjalla. áætluð heimkoma er í þetta skiptið algerlega óljós.

-mundi | 18:27 | Comments (1)

engin lest...!

góð var síðasta vika. það er búið að gera flest sem skemmtilegt er. á föstudaginn fórum við á pöbbinn og skemmtum okkur, versluðum á laugardaginn og skelltum okkur svo á skíði í 50cm nýföllnu púðri í gær. enduðum gærdaginn svo með veislu í boði gesta okkar og þökkum við þeim ánægjulega samveru undanfarna daga.


en þau lentu í hremmingum í morgun greyin, lestin þeirra til Lyon var nefnilega allt of sein, eiginlega kom hún bara ekki. sem varð til þess að þau misstu af lestinni frá Lyon og upp á flugvöll. hérna hefur nefnilega snjóað helling og samgöngur allar úr lagi gengnar.
hálftíma síðar náðu þau hins vegar að grípa lest sem gengur til parísar. ég er búinn að hafa samband við mína mögnuðu leiðsögumenn í parís og fá hjá þeim allar upplýsingar um framvindu ferðar og senda þeim á sms og símleiðis líka. nú er bara að vona að allt gangi upp svo að þau nái flugvélinni. annars er sú næsta á föstudaginn - en spáin er svosem góð og nóg er af snjó.

-mundi | 06:43 | Comments (1)

mars 3, 2005

Ferðadagur

tn_DSC06663.JPG


í dag var ferðadagur í frans. hann varð nú lengri en til stóð. í morgun kl 7 var lagt af stað til Pont du Gard til að skoða þá mögnuðu áveitu. ég er nú búinn að koma þarna all oft og það er alltaf jafn hressandi að komast þarna niður til "midi".


eftir skoðun og skógargöngu var svo haldið til Avignon að skoða þann snotra gamla bæ og höll páfa. að sjálfsögðu var keypt Côtes du Rhône þar, það er held ég hvergi betra að versla góð vín fyrir lítinn pening eins og þarna í languedoc.

enn var haldið af stað og rennt til Arles og tekinn túr um þann bæ. þegar við vorum þar byrjaði að rigna svo um munaði og fengum við næstum eldingu í ennið, en sluppum þó... en ljósastaurinn við hliðina á okkur varð fyrir smá tjóni þegar ljósaperan splúndraðist með neistaflugi yfir gangstéttina.


svo var haldið af stað heim. eitthvað klikkaði nú samt GPS-inn í höfði bílstjórans því einhversstaðar gleymdist að beygja út af hraðbrautinni og því enduðum við í útjaðri Lyon okkur algerlega að óvörum. því lengdist túrinn aðeins og við vorum ekki komin hingað til grenoble fyrr en um hálf níu í kvöld, eftir að hafa farið yfir heiðina milli grenoble og lyon í snjókomu og byl eftir stuttermabolsveður niður við miðjarðarhafið. algóður dagur og 660 km rúlluðust inn á reynslumæli volfgangs í dag.

-mundi | 21:36 | Comments (2)

mars 2, 2005

Síðasti móhíkaninn

tn_DSC06654.JPG


geggjaður skíðadagur hérna hjá okkur í dag. við sleiktum sólina og sólskinið okkur. allir í kotinu rjóðir og sællegir með titrandi þreytta lærvöðva. í tilefni af því svipti ég mig hárinu, - já hvað gerir maður ekki fyrir lesendur þessarar síðu...

-mundi | 17:47 | Comments (5)

mars 1, 2005

Bíltúr

DSC06617tn_.JPG

í dag fórum ég, Torfi og Eva í ágætan bíltúr um Vercors. þeir sem hafa komið hingað til okkar þekkja þennan ágæta hring um fjalllendið hérna vestan við okkur, þetta er svona "túristahringur" sem við förum með alla í vegna gríðarlegar náttúrufegurðar. ekki var það nú verra í dag en áður. allt í klakaböndum og gaman að sjá.


í kvöld var svo safnað kröftum og snætt Crepes að hætti húsráðenda. að því loknu smá sequence - en núna beint í bælið því það á að fara í sept laux í fyrramálið að skíða.

-mundi | 22:18 | Comments (1)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni