Mánudagur 7. febrúar

uppgjör helgarinnar

helgin hér í grenoblehreppi var öll hin ágætasta. það var verslað, snæddur góður matur og við hérna á hæðinni fórum saman að skemmta okkur á laugardaginn. allt gott.


ég fór í bæinn á laugardaginn meðan svanhildur var að læra. þar var mótmælaganga og múgur og margmenni. hér í landi eru mikil mótmæli núna vegna þess að franska ríkisstjórnin hyggst hreyfa við vinnulöggjöfinni. ég skellti mér með og söng maístjörnuna og veifaði rauðum fána. fátt eflir meira andann en að mótmæla aðeins... hahaha... nei, ég var bara að plata. ég var nú bara áhorfandi á hliðarlínunni í þetta skiptið.


á morgun fer ég svo til fjalla og kem sennilega ekki aftur til byggða fyrr en á föstudaginn, en það er þó óráðið.

- mundi | 12:30
Umræður

Ziggy Flotti:

Þú verður að redda þér heykvísl og fara og mótmæla með bændunum þarna úti, það er klárt nauðsynlega lífsreynsla!!

(07.02.05 12:36)

Torfi:

... þarna hefur Sigurður lög að mæla - og þess má sérstaklega geta að heykvíslin er grundvallaratriði !!


... gakk þú heill til fjalla - og alls ekki í björg !

(08.02.05 08:13)

Baldur H. Benjamínsson:

Tjah, væri ekki málið að ná sér í almennilegan mykjudreifara og dreifa eins og einu hlassi á tröppurnar á ráðhúsinu eða lögreglustöðinni....

(08.02.05 10:50)

Torfi:

Baldur,
nú vill svo til að þú hefur til umráða mykjdreifara og haugsugur í lange baner...

... ég mæli með því að þú setjist upp í Dautz vél eina græna og hjúpir ráðamenn.

(ég skal koma með ef þig vantar einhvern til að vera samsekur... )

(09.02.05 09:37)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni