Fimmtudagur 3. febrúar

um daginn og veginn

það var mikið málað í gær. dagurinn í dag hefur hins vegar liðið áfram átakalítið en með talsverðum framkvæmdum. það er nefnilega ekki svo auðvelt að búa á 15 fm með allt þetta dót sem manni fylgir. maður er sennilega ekki sá nægjusamasti, mér finnst alveg ómögulegt að hafa ekki allt til alls og ég held að ég hafi nú umþaðbil næstumþví flest hér í þessum klefa. því þarf allt að vera skipulega upp sett.


ég tók því smá törn í dag og endurskipulagði, kom hlutum í kassa sem ekki eru í notkun og setti þá upp í hillu. öðru var umstaflað og sumu hent. að lokum létt þrif.


ég skrapp líka í bæinn og keypti nýjan harðann disk í tölvuna. ég ætla að skipta um hann við tækifæri. ég set nú inn færslu áður en ég fer í það - ef að það skyldi nú verða síðasta færslan!! :)


annars rjómablíða sól og næs - stefnir allt í skíðaferð í les7laux á morgun og svo í les2alpes á laugardaginn.

- mundi | 15:06
Umræður

mundi:

ég þakka fyrir kommentið....

(04.02.05 06:01)

Ziggy Flotti:

Hvernig vita þeir að þig vantar svona pillur??
Nei djók þetta var nú illa sagt!! Ömurleg þessi helv.. auglýsinga fyrirtæki sem er að ráðast inn á vefina manns, ekki nóg með að pósthólfið sé full af þessum óþverra, heldur er bloggið mans ekki látið í friði!

(04.02.05 12:12)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni