Mánudagur 28. febrúar

Kominn tími til að blogga smá

Já það er ansi langt liðið frá því ég skrifaði síðast en það hefur bæði verið mikið að gera og frá litlu að segja. En nú hef ég frá nógu að segja og því best að hefjast handa.


Í síðustu viku reyndi ég að vera dugleg að læra til að geta tekið mér frí um helgina og það gekk alveg ágætlega, alla vega kíkti ég ekki í bók alla helgina. Torfi og Eva komu hingað seinni partinn á föstudaginn og svo Jón og Guðrún seinna um kvöldið. Þá var spjallað og drukkið smá rauðvín og snædd jarðaber með súkkulaði. Svo var farið eldsnemma á fætur á laugardaginn og skíðað allan daginn í glampandi sól. Alls ekki amalegt það! Þegar heim var komið skrapp ég upp á hæðina fyrir ofan til að spjalla við fólkið sem býr þar en þau voru búin að bjóða mér smá vinnu við að hjálpa syni þeirra með heimalærdóminn. Að lokum sömdum við um það að ég mun koma og hjálpa honum tvisvar í viku, klukkutíma í senn. Ég byrja á morgun og verður spennandi að sjá hvernig þetta gengur. Eftir "atvinnuviðtalið" borðuðum við raclette, drukkum rauðvín og spiluðum Sequence. Það var mikið fjör og mæli ég með þessu spili við alla sem finnst gaman að spila.


Gærdagurinn fór svo í almenn rólegheit. Við röltum aðeins um bæinn, fórum á kaffihús og fengum okkur ís í kuldanum, fórum heim og horfðum á vídeo, spiluðum Leonardo, Matador og Kana fram að háttatíma. Svo var farið eldsnemma á fætur í morgun og krakkarnir fóru á skíði en ég í skólann. Já það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera námsmaður og víst best ég fari að halda áfram að læra svo að ég geti tekið mér frí á miðvikudaginn og farið með á skíði.

- Svanhildur | 13:00
Umræður




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni