Miðvikudagur 9. febrúar

Gallup

Maður er rétt búinn að tengja síma í herbergið og Gallup strax byrjaður að hringja. Sat hér í rólegheitum við tölvuna og var að skrifa ritgerð þegar síminn hringdi. Þetta var reyndar í annað skiptið sem síminn hringir í dag og í bæði skiptin veðraðist ég upp, handviss um að þetta væri mamma. En það var ekki svo gott; í fyrra skiptið var þetta vitlaust númer og nú áðan var það Gallup að gera könnun fyrir bankann minn hér í Frakklandi. Mér fannst þetta nú ekki sérlega spennandi könnun en samþykkti engu að síður að svara spurningunum. Hefði betur sleppt því þar sem á eftir fylgdu ábyggilega hundrað spurningar um eitthvað sem ég hafði enga skoðun á. Datt ekki í hug að það væri hægt að búa til svona langan spurningalista um þjónustu banka. Við öllum þessum spurningum gat ég valið um eftirfarandi svör: mjög sátt, frekar sátt, frekar ósátt, mjög ósátt. Held ég hafi alltaf sagst vera frekar sátt svo að eftir þetta símtal get ég sennilega dregið þá ályktun að ég sé frekar sátt við bankann minn! Hins vegar er ég ekki sátt við það hvað hraðbankarnir eru oft tómir (sem er slæmt þar sem hér eru engir gjaldkerar heldur bara hraðbankar) og var alltaf að bíða eftir spurningu um það til að geta sagst vera mjög ósátt en að sjálfsögðu var ekkert spurt um það.

- Svanhildur | 13:44
Umræður

Heiða í Sviss:

hvergi friður fyrir gallup greinilega!! Hvað er samt málið með að hraðbankarnir séu tómir??? það finnst mér nú alveg síðasta sort!!

(09.02.05 21:37)

Svanhildur:

Já það er alveg glatað, en kemur nú samt engu að síður ótrúlega oft fyrir.

(09.02.05 21:56)

sara:

hihi... það bregður fyrir vott af eikjuvogsættinni hérna. tekið til orða eins og amma og hlalla stóra. bara gaman.
knúsar.

(10.02.05 22:57)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni