Þriðjudagur 1. febrúar

Fönn fönn fönn fönn frönsk fönn

já þá hefur tæknin hafið innreið sína í frakkland. já góðir gestir, er'ekk allir sestir!VIÐ ERUM KOMIN MEÐ SÍMA!!!! við tengdum monstersímann sem við fengum gefinn á íslandi og okkur til furðu þá virkaði allt strax, án allra adsl filtera og vesenis. þannig að nýtt símanúmer hjá okkur er því 0033-476-42-30-94. nú er semsagt hægt að hringja beint hingað í klefann okkar, það þarf ekki lengur að hringja í sameiginlega símann frammi á gangi.


annars tekur frakkland vel á móti mér. hér í grenoble var kalt en logn þegar ég kom í gærkveldi. í nótt hefur hins vegar snjóað það mikið að það hefur náð að festa á götunum og hér er nú hálka og snjór yfir öllu. þetta er semsagt meira en við höfum séð hér áður og enn er að snjóa. frábært húrra húrra segi ég - nú fyllast fjöllin af "fönn fönn fönn". þetta eru gleðifréttir fyrir okkur og ekki síður þá góðu gesti sem hér ætla að reka inn nefið í lok þess mánaðar sem hófst á miðnætti síðastliðnu.


annars á ég von á gonna vini á hverri stundu, hann er að koma með mál og kítti því það er einn klefinn hérna sem þarf að eiga skyndikynni við mig í dag og á morgun því við erum að fá nýjan þjóðverja í stað þess er fór í úreldingu til parísar fyrir helgi, hann hagen er nefnilega því miður farinn.


svo ætla ég að fara að vinna í því að setja inn myndir, það hefur safnast upp heill hellingur og það þarf að fara að gera eitthvað í því, en ég lofa engu fyrr en undir helgi með það.


ég mun svo breyta heimasímanúmerinu hérna til hliðar í dag eða morgun svo að þið getið nálgast það þar.

- mundi | 12:09
Umræður

Torfi:

gott að lesa og sjá...


... þú ert væntanlega að undirbúa komu mína til frans, ekki er ráð nema í tíma sé tekið ;-)

(01.02.05 21:40)

Ziggy Flotti:

Til lykke með símann, en ekki eyða of miklum tíma á rauðatorginu :-)

(02.02.05 10:52)

mundi:

...fengin reynsla eða...? :)

(02.02.05 13:42)

Ziggy Flotti:

Ef það væri nú svo gott :-)

(02.02.05 16:20)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni