Þriðjudagur 22. febrúar

farir ekki sléttar....

uss uss uss hvað er nú eiginlega að gerast hérna í frans??? hér er allt í kalda koli í dag. eiginlega byrjaði þetta í gær í búðinni með því að bíllinn var að stríða okkur. svo inn í búðinni þá tókst mig að skera mig á pappírnum sem nýji fondúpotturinn okkar var og er pakkaður í.


þetta blessaðist nú allt giftusamlega og þegar heim var komið fór ég í það að afísa ískápinn okkar. hann er gamall og hurðin skökk á lömunum svo hann er fljótur að fyllast af ís. þar sem ég kraup á flísalögðu gólfinu fyrir framan íssskápinn við iðju mína þá setti ég gat á annað hnéð á uppáhalds gallabuxunum mínum. það þarf semsagt að kaupa nýjar þannig.


svo lauk þessum annars ágæta degi. í morgun vaknaði ég svo á undan hananum til að halda til fjalla. en þá kom nú babb í bátinn. nú harðneitaði volfgang gangsetningu. varð eiginlega bara að volf-ekkí-gang. þetta í morgun ásamt því í gær lýsti sér sem straumleysi af einhverju tagi, kannski ekki leysi, - en lítið var um rafmagnið. ég ákvað því að fara í hinn enda bæjarins með sporvagninum til að ná í nýtt batterí í greyjið. auðvitað tókst mér hálfsofandi að klúðra því ferðalagi með því að gleyma að skipta um spor með sporvagninum og fattaði það mátulega of seint. þess vegna fékk ég hálftíma auka skoðunarferð um grenoble eldsnemma í morgun. á endanum fékk ég þó batteríið og fór heim og skipti um. allt rauk í gang. allt í einu mundi ég að rússinn sem býr með okkur hérna á svona græju til að mæla rafmagn með. ég bankaði hjá honum og vakti og fékk mælinn. þá komst ég að því að sennilega hefur ekkert verið að þeim rafgeymi sem var í bílnum heldur hlóð bíllinn ekki.


þar með gafst ég upp og fór og talaði við vin minn á verkstæðinu hérna við hliðina á. hann pantaði fyrir mig nýjan alternator og ætlar meira að segja að vera svo vinalegur að skipta um hann fyrir mig á morgun.


ég hringdi því í gonna og sagði honum mína raunasögu. við urðum sammála um það að best væri að bíða þar til allt væri komið í lag. ekki væri nú betra ef dósin bilaði í fjöllunum. við sammældumst svo um að ég mundi laga smá flísalögn hérna niðurfrá í staðin. ég var passlega búinn að leggja símann á þegar ég uppgötvaði að öll mín verkfæri eru uppfrá!!! alger skita!


þegar mér svo datt í hug að deila þessum annars skondna óhappasólarhring mínum með ykkur - þá virkar ekki heimasíðan, Daia systir "vefstjórinn minn" segir engu líkara en einhverjir ódámar hafi hakkað sig inn á kerfið og sett allt í rúst. það er huggun harmi gegn að vita það að ef að einhver getur leyst það mál þá er það hún Daia mín.


jæja - eldfjallið búið að blása.... ég er bara farinn að sofa, ég þori ekki að hreyfa mig af hættu við það að beinbrotna... góðar stundir

- mundi | 14:42
Umræður

Torfi:

sjaldan er ein báran stök...


... í átta vindstigum !

(22.02.05 15:35)

Helga:

vonandi detturðu ekki fram úr rúmminu, það væri nottúrleg tíbískur erndir á þessum degi

(22.02.05 15:49)

Helga:

Vonandi detturðu ekki út úr rúmminu það væri tíbískur endir á þessum degi : )

(22.02.05 15:59)

mundi:

já ekki síst þar sem að rúmið er koja!!!

(22.02.05 17:31)

Kolla:

Passaðu þig bara að skakklappast ekki frammúr!!!

(22.02.05 21:26)

Ziggy Flotti:

Segi eins og í laginu: Are you gonna go my way gonni?? Þetta hefur verið æðislegur sólahringur hjá þér, mæli með hálfum lítra af vodka til að setja sig á svona andlegt reset!!

(23.02.05 10:56)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni