Þriðjudagur 15. febrúar

enn um snjó

tn_DSC06541.JPG

enn kyngir niður snjó hér í grenoble eins og sjá má ef bornar eru saman myndir frá gær og í dag. sem áður finnst mér það hið besta mál en þó er sá galli á gjöf njarðar að ég ætla til fjalla í dag og ég veit bara ekki hvað honum volfgang mínum finnst um það því hann er jú bara á sumarskónum. ætli ég bíði ekki átekta og hafi samband við gonna á eftir, hann er hérna núna en er að fara heim á eftir. hann er á vetrardekkjum og með keðjur!!!


annars ágætur dagur í gær, ýmsir snúningar framkvæmdir og svo hittum við Anne skólasystur svanhildar í gærkvöldi en sú átti afmæli. hún bjó á íslandi í eitt ár og var ofsahrifin. fyndið þegar maður talar við hana að hún er búin að fara gersamlega út um allt á íslandi, held ég bara á fleiri staði en ég, - á meðan við erum sennilega búin að sjá meira af frakklandi en hún!!! eða svona þannig.


er þetta ekki einmitt feillinn sem allir gera, - gleymir maður ekki allt of oft að vera bara túristi í sínu eigin landi...?

- mundi | 09:59
Umræður

jons:

Jú og spámaður :D

(15.02.05 12:15)

Heiða í Sviss:

jú ákkúrat...finnst oft alveg ótrúlegt að hitta útlendinga sem hafa komið nánast alls staðar á íslandi meðan ég hef rétt farið á milli ak-rey...skömm að því!

(15.02.05 13:08)

Torfi:

... maður skal vera túristi austur á fjörðum og vestur í dalasýslu.

(15.02.05 13:50)

Jón Gunnar:

Helvíti er huggulegt um að litast hjá ykkur. Þetta fer að verða spurning um að kíkja í heimsókn til ykkar. Hvert liggur leiðin til Grenoble ef maður flýgur til London? Er ekki Ryanair eða Go að fljúga í áttina til ykkar?

Hils,

Jón Gunnar.

(17.02.05 10:56)

svanhildur:

Jú jú, Easy Jet flýgur bæði til Lyon og Grenoble en þessir tveir flugvellir eru nánast hlið við hlið og mjög stutt hingað frá þeim báðum.

(17.02.05 11:31)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni