Fimmtudagur 24. febrúar

daglegt amstur

þegar fátt er að frétta er talað um veðrið.


hér er búið að snjóa hvern einasta dag í rúma viku. suma daga lítið aðra daga meira. það hefur líka verið býsna kalt, og svo rammt kveður að að þjóðverjinn í herberginu við hliðina á var að botnfrjósa svo að í gær var hækkað á kyndingunni. bjarta hliðin á þessu að spáin fyrir fjöllin er góð og skíðaveður á að verða með ágætum frá og með morgundegi. annaðkvöld koma svo Torfi og Eva og hver veit nema parísarbúarnir láti sjá sig líka - en það á eftir að koma í ljós.


já svona líður lífið áfram - volfgang kominn í fullt form á nýjan leik og mér ekki til setunnar boðið. verð að fara að drífa mig í brúnu flaujelsbuxurnar, köflóttu skyrtuna og ullarvestið og setja rauða snýtuklútinn í rassvasann, já þórður húsvörður er farinn af stað, hér er lek vatnslögn.


ROGER - over and out

- mundi | 09:25
Umræður

Ziggy Flotti:

Það er betra að vera með leka vatnslögn en lekan endaþ.... já eða eitthvað :-)

(24.02.05 10:12)

Torfi:

Sé maður húsvörður - sé maður þá með klútinn...

... sjáumst :-)

(24.02.05 17:31)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni