Þriðjudagur 8. febrúar

aftur orðin ein í kotinu

Já Mundi bara rétt kominn og farinn aftur. Það þýðir að planið næstu daga hjá mér er lærdómur og meiri lærdómur enda veitir víst ekki af. Maður má ekkert slaka á ef maður ætlar að ná að verða einn af 25 hæstu og ég er orðin nett stressuð yfir að vera ekki komin lengra af stað með rannsóknarverkefnið mitt. Stefni því að því að vera mjög dugleg næstu 3 daga allavega, svo kannski einn dag í pásu þegar Mundi kemur aftur en svo bara aftur að læra. Reyndar var verið að bjóða mér í partý á fimmtudagskvöldið og auðvitað mun ég fara í það, ekki það oft sem mér er boðið í partý hjá öðrum en hér á hæðinni, en þetta er hjá stelpu í skólanum.


En já sem sagt, lærdómur með partýpásu. Er það ekki bara hið fínasta plan?

- Svanhildur | 18:43
Umræður

Torfi:

... mér heyrist þetta var síldarplan !

(09.02.05 09:38)

Ziggy Flotti:

Partý með lærdómspásu hljómar samt betur :-)

(09.02.05 10:24)

Svanhildur:

Það væri nú samt sennilega hálf glatað partý :-)

(09.02.05 10:35)

Heiða í Sviss:

Rosa fínt plan hjá þér:) Þú ert nú svo ótrúleg dugleg og klár stelpa já og náttúrulega skemmtileg:) að þú átt vel skilið að taka þér góðar pásur...mundu samt bara að læra ekki frá þér allt vit chérie:) Gangi þér annars vel!!!

(09.02.05 21:35)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni