á skíðum skemmt ég mér

Frábær skíðadagur að baki hér hjá okkur í grenoble. Glampandi sól og ekki ský á himni í allan dag. skíðafæri einnig eins og best verður á kosið. Ég ætla svosem ekki að segja meira um þetta en spánýjar myndir má nálgast í myndaalbúminu hér til hliðar.
ég henti líka þar inn myndum frá gönguferðinni sem ég fór með norska tengdasyni gonna upp að lac des quirlies í nóvember. betra seint en aldrei er það ekki...!
góða helgi.
Torfi:
... gott skal það vera :-)
(06.02.05 13:31)
Ziggy Flotti:
Það er ekkert sérlega ógeðslegt á ykkur veðrið!! Viljið þið skipta á rigningu og slabbi???
(07.02.05 10:35)
mundi:
já endilega alveg....
(07.02.05 12:19)